Fréttablaðið - 01.06.2013, Síða 94

Fréttablaðið - 01.06.2013, Síða 94
1. júní 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 58 Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför okkar ástkæra JÓNS ÞÓRS TRAUSTASONAR. Díana S. Sveinbjörnsdóttir Linda Björk Jónsdóttir Aron Örn Jónsson Sólveig Eva Pétursdóttir Egill Þór Jónsson Ellen Katrín Kristinsdóttir Þórunn Jónsdóttir Steinn Þór Karlsson Sigurbjörg Jóna Ágúst Friðgeirsson Pétur Kristinn Elín Valdís Rögnvaldur Guðmundsson Gróa Guðbjörg Óttar Már Ellingsen Steinþór Darri Ingibjörg Halldórsdóttir Ástkær eiginmaður minn, BALDUR JÓNASSON Furugerði 17, lést aðfaranótt föstudags 31. maí á gjörgæsludeild Landspítalans. Jarðarför auglýst síðar. Margrét Einarsdóttir og fjölskylda. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, VILBORG EMILSDÓTTIR BONYAI 54 Knobb Hill Road, Milford, Connecticut, lést í heimabæ sínum 27. apríl. Mary Bonyai Melone og fjölsk. Michael J. Bonyai og fjölsk. Sigurður Emilsson og fjölsk. Guðrún Emilsdóttir og fjölsk. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÉTUR KR. PÉTURSSON Gullsmára 7, lést á heimili sínu mánudaginn 27. maí. Aðalheiður Jónsdóttir börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, ÓLAFS ÞÓRÐAR SÆMUNDSSONAR rafvirkja, Mávahlíð 33. Jónína Sigurðardóttir Vigdís Sjöfn Ólafsdóttir Sigurður H. Ólafsson Guðfinna Hákonardóttir Hafdís Ólafsdóttir Guðmundur Már Ragnarsson og barnabörn. Innilegar þakkir og kveðjur til ykkar allra sem sýnduð okkur ástúð og hlýju með nærveru ykkar, blómum og vinarkveðjum við fráfall og kveðjuathöfn ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, MÖRTU FANNEYJAR SVAVARSDÓTTUR Víðidal. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 3 á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki fyrir alla umhyggju, ástúð og hlýju. Guð blessi ykkur öll. Stefán Gunnar Haraldsson Svavar Haraldur Stefánsson Ragnheiður G. Kolbeins Pétur Helgi Stefánsson Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir Jóhanna Sigríður Stefánsdóttir Einar Örn Einarsson Margrét Sigurlaug Stefánsdóttir Ólafur Hafsteinn Einarsson Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG H. BECK Hrafnistu Hafnarfirði, áður Hamraborg 36, lést að Hrafnistu Hafnarfirði 28. maí sl. Útför fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 7. júní kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Páll Þórir Beck. Innilegar þakkir fyrir hlýhug og auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, MARGRÉTAR GUÐBJÖRNSDÓTTUR Jaðarsbraut 33, Akranesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimilis, fyrir góða umönnun. Tryggvi Björnsson Helga Bjarnadóttir Bryndís Tryggvadóttir Áki Jónsson Guðbjörn Tryggvason Þóra Sigurðardóttir Tryggvi Grétar Tryggvason Þórey Þórarinsdóttir og ömmubörn. Kær systir okkar VIGDÍS MAGNÚSDÓTTIR lést 15. maí sl. að hjúkrunarheimilinu að Fellsenda. Jarðarförin hefur farið fram og vilja aðstandendur þakka starfsfólki Fellsenda fyrir skilning og góða umönnun. Valgerður Magnúsdóttir Guðrún Magnúsdóttir Magnús Magnússon Guðmundur Magnússon Hrefna Magnúsdóttir Elliði Magnússon „Sýningin Norðrið í norðrinu varpar ljósi á það fólk sem býr í bæ sem er á norðurhjara veraldarinnar, 900 km norðar en næsta byggð. Þá er ég að tala um Scoresby-sund eða Ittooq- qortoormiit eins og bærinn heitir á grænlensku,“ segir Íris Ólöf Sigur- jónsdóttir, forstöðumaður byggða- safnsins Hvols á Dalvík. Hún sér um sýninguna sem opnuð er þar í dag og snýst um sögu þessa litla bæjar á austurströnd Grænlands, líf kvennanna þar og barnamenn- ingu. Scoresby-sund er einn af vina- bæjum Dalvíkur og að sögn Ólafar er grunnur að sýningunni sá að fyrir fimm árum gaf fyrrum veðurathug- unarmaður þar byggðasafninu Hvoli merka grænlenska gripi frá bænum. „Áherslan er á hvað konurnar gera í þessu veiðimannasamfélagi og hvernig börnin leika sér,“ lýsir Ólöf. „Forfeður þeirra sem þar búa núna voru fluttir á þennan stað 1925, um 900 km langa leið. Það var mjög lær- dómsríkt að fara þangað og sjá við hvaða aðstæður fólk býr í dag. Þarna er ekkert rennandi vatn í húsum og það er ekki ljósmóðir á staðnum og það er ekki mikið sem gerist þarna. En náttúran er sterk og fólkið er yndislegt og kátt. Og nútíminn er þar að vissu marki. Unga fólkið er með snjallsíma og það eru allir með ipad. Það hlýtur að vera erfitt að vera þarna á norðurhjara veraldarinnar og sjá hvað til er í heiminum sem það nær ekki til. Ég talaði við tíu konur um hvernig lífi þær lifa og þau við- töl eru á sýningunni. Sumar konurnar eru í sveitarstjórn og komast stundum í burtu, þær elska til dæmis Ísland og Kringluna. Flest sem þær voru í var keypt í Kringlunni. Ég var mest með konu sem er tæplega þrítug, hún er komin í sveitarstjórn, einstæð móðir með tvö börn og var ekkert sérstak- lega ólík ungum konum hér. Bara alger dugnaðarforkur sem ferðaðist um á fjórhjóli með börnin, þriggja og fimm ára, framan og aftan á. Þegar ég var búin að vera þarna fannst mér enn meira gaman að gera sýninguna og ég vona að það skili sér.“ Ólöf fer með sýninguna til Dan- merkur í mars, í glænýtt hús sem er verið að reisa í Óðinsvéum og heitir Norðuratlantshafshúsið, og síðan liggur leiðin til Grænlands með sýn- ingarmunina í koffortum. gun@frettabladid.is Allir með snjallsíma Grænlenskur söngur og dans verður á dagskrá við opnun sýningarinnar Norðrið í Norðrinu á Byggðasafninu á Dalvík í dag, þar sem konur og börn hafa mest vægi. ÍRIS ÓLÖF Miðlar austurgrænlenskri menningu frá nyrstu byggð Grænlands til almennings hér á landi og víðar með farandsýningu. MYNDIR/VÖLUNDUR JÓNSSON Á SÝNINGUNNI Gripirnir sem danski veðurathugunarmaðurinn gaf safninu á Dalvík reyndust merkir. Sumar konurnar eru í sveitarstjórn Scoresby- sunds og komast stundum í burtu, þær elska til dæmis Ísland og Kringluna. Flest fötin sem þær voru í voru keypt í Kringlunni.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.