Fréttablaðið - 01.06.2013, Page 100
1. júní 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 64
TÓNLIST ★★★★ ★
Seiður frá Spáni
Sonor Ensemble undir stjórn Luis Aguirre flutti
tónlist eftir ýmis tónskáld í Norðuljósum Hörpu. Ein-
söngvari: Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir.
LISTAHÁTÍÐ, 27. MAÍ
Sonor Ensemble undir stjórn Luis Aguirre flutti
tónlist eftir ýmis tónskáld. Einsöngvari: Guð-
rún Jóhanna Ólafsdóttir. Mánudagur 27. maí á
Listahátíð í Reykjavík í Norðurljósum Hörpu.
Seiður frá Spáni var yfirskrift tónleika sem
haldnir voru í Norðurljósum á Listahátíð á
mánudagskvöldið. Yfirskriftin segir eiginlega
allt. Þarna var lítil hljómsveit sem spilaði seið-
andi spænska tónlist, fyrst Musica Nocturna
de Madrid eftir Boccherini. Hann var reynd-
ar Ítali, en bjó lengst af á Spáni þar sem hann
starfaði fyrir hirðina. Það er eitthvað sérkenni-
lega tælandi við tónlistina hans, sem kemur
ekki síst í ljós í kvikmyndinni You Will Meet a
Tall Dark Stranger eftir Woody Allen. Þar fell-
ur giftur rithöfundur fyrir dularfullri konu í
næstu íbúð, en hún er alltaf að spila Boccherini
á gítar. Það er svo sannarlega seiður frá Spáni.
Á tónleikunum var ekki spilað á gítar. Hljóm-
sveitin samanstóð af píanóleikara og tveimur
fiðluleikurum ásamt víólu-, selló- og kontra-
bassaleikara. Það var léttur andi yfir henni,
hún minnti á hljómsveit í gamalli kvikmynd
að leika fyrir dansi. Þetta var undirstrikað
með yfirbragði hljómsveitarstjórans, sem var
skemmtileg týpa, einhvers staðar mitt á milli
þess að vera Jose Carreras og Fredo Corleone.
Hljómsveitin spilaði fallega, stundum reynd-
ar ekki alveg hreint, en það jók bara stemn-
inguna. Þetta var LIFANDI tónlist. Rapsódía
eftir Turina var glæsileg, tveir dansar úr El
amor brujo eftir de Falla leiftruðu af fjöri.
Vissulega voru hnökrar, en lifandi tónlist er
aldrei fullkomin.
Einsöngvari var Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir
mezzósópran. Hún söng lög eftir Alís, de Falla,
Lorca og Daníel Bjarnason. Daníel er reyndar
ekki Spánverji, og ljóðin sem hann samdi tón-
list við ekki heldur; þau eru eftir Philip Larkin
sem var Breti. En tónlist Daníels var samt líka
seiðandi, það var einhver dularfullur, dökkur
undir tónn í þeim sem passaði prýðilega inn í
dagskrána.
Guðrún Jóhanna söng af einstakri fegurð.
Röddin var mjúk en hljómmikil, lifandi og
sjarmer andi. Túlkun hennar var ávallt kraft-
mikil og í anda hvers tónskálds. Hún býr líka á
Spáni og hefur lifað og hrærst í spænskri menn-
ingu um árabil. Spænsk tónlist er sérgrein henn-
ar. Hún syngur því oft eitthvað spænskt þegar
hún kemur fram hér á landi. Það er einmitt svo
gaman, því tónlist frá Spáni er fremur van-
rækt listform á Íslandi. Ég hef sjaldan upp lifað
íslenska söngkonu ná að heilla áheyrendur jafn
rækilega upp úr skónum. Kannski vegna þess
að það var fullt af útlendingum á tónleikunum.
Gömul spænsk hjón fyrir framan mig æptu
„brava!“ á eftir hverju einasta lagi. Og í lokin
stóðu tónleikagestirnir upp fyrir söngkonunni,
algerlega frá sér numdir. Ég var það sjálfur.
Þetta voru flottir tónleikar. Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Líflegir tónleikar með söngkonu á
heimavelli.
Senjórítan heillaði í Norðurljósum
TÓNLIST
★★★★ ★
Vorblót og Petrúska eftir
Stravinskí
Sinfóníuhljómsveit Íslands og Íslenski
dansflokkurinn
Dansar í Eldborg voru magnaðir,
tónlistar flutningurinn frábær, dansinn
glæsilegur. - js
★★★ ★★
Routeopia
Davíð Þór Jónsson og Ilmur Stefánsdóttir
Í vissum skilningi voru þetta vondir
tónleikar, en í öðrum skilningi frábært
ferða lag. - js
★★★ ★★
Stefnumót við Lutoslawski
Kammersveit Reykjavíkur
Sumt var skelfilega leiðinlegt, annað
frábært. En tónleikarnir í heild gáfu
góða mynd af hinni miklu breidd í tón-
list Lutoslawskis. - js
LISTAHÁTÍÐ „Guðrún Jóhanna söng af einstakri fegurð.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DANS
★★★★ ★
Vorblótið
Íslenski dansflokkurinn og Sinfóníu-
hljómsveit Íslands
Út frá sjónarhorni dansins var Dansar
í Eldborg áhrifarík sýning og það að
takast á við tónlist Stravinskys og hafa
sigur ber vott um færni danshöfundan-
na sem og dansaranna. - sgm
DÓMAR
26.05.2013 ➜ 31.05.2013
Hátíð hafsins
Hátíðarstemning
í Hörpu
Húsið þitt
12.00 Heimsfræga fiskisúpan hans Þóris í Prag
á hátíðartilboði í Munnhörpunni.
12:30 Skoppa og Skrítla taka á móti börnum við Hörpu.
Maxímús Músíkús heilsar krökkunum og vísar Skoppu
og Skrítlu uppáhaldsleiðina sína meðfram höfninni.
13:00 Skrúðganga leggur af stað frá Hörpu við
undirleik Skólahljómsveitar Austurbæjar. Maxímús
Músíkús, Skoppa og Skrítla verða með í för.
Sunnudagurinn 2. júní
11:00 – 14:00 CrossFit Reykjavík mætir við Hörpu
með Kross(fiska)Fit í tilefni Hátíðar Hafsins.
11:00 – 11:15 Krakka CrossFit 6–9 ára taka æfingu.
11:15 – 12:00 Krakka CrossFit keppni 10–12 ára.
12:00 – 13:00 Krakka CrossFit keppni 13–16 ára.
13:00 - 14:00 Almennt wod (æfing dagsins).
Keppnislið CFRvk sem er á leið á Heimsleikana
í Los Angeles í júlí verður á staðnum og tekur
þátt í æfingunni.
12:00 Heimsfræga fiskisúpan hans Þóris í Prag
á hátíðartilboði í Munnhörpunni.
13:00 Rósa Margrét Húnadóttir þjóðfræðingur fjallar
um sjómannalög í Kaldalóni í erindi sínu ,,Draumur
hins djarfa manns: frá sjómannalögum til gúanórokks.“
13:30 Þjóðdansafélag Reykjavíkur dansar á bryggju
Hörpu. Börn og fullorðnir stíga dans við harmonikkuleik.
14:30 Söguferð um Gömlu höfnina með Guðjóni
Friðrikssyni sagnfræðingi. Gangan hefst við Hörpu.
17:00 og 21:00 Óskalög sjómanna.
Laugardagurinn 1. júní