Fréttablaðið - 01.06.2013, Qupperneq 104
1. júní 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 68
LAUGARDAGURHVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Sýningar
14.00 Derek K. Mundell sýnir vatnslita-
myndir undir yfirskriftinni Birtubrigði
í verslun og veitingastofu Þjóðmenn-
ingarhússins.
14.00 Þrjár nýjar sýningar opna í Duus-
húsum í Reykjanesbæ. Fyrst er það
brúðusýningin Móðir, kona, meyja,
eftir Helgu Ingólfsdóttur. Pabbi minn
er róinn opnar líka en það er sjóm-
injasýning með bátalíkönum, ýmsum
munum og myndum. Við geigvænan
mar - Reykjanes og myndlistin er svo sú
þriðja en verkin á þeirri sýningu sýna
náttúru Reykjanessins.
15.00 Minjasafnið á Akureyri opnar
sýninguna Norðurljós - næturbirta
norðurs ins. Sýningin samanstendur af
ljósmyndum frá 2013, eftir Gísla Krist-
insson, og málverkum frá 1899, eftir
danska málarann Harald Moltke.
16.00 Soffía Sæmundsdóttir opnar
sýningu á verkum sínum í sal Íslenskrar
grafíkur í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu
18.
16.00 Sýningin Íslensk myndlist 1900-
1950: Frá landslagi til abstraktlistar
opnuð á Kjarvalsstöðum. Um er að
ræða sögulegt yfirlit íslenskrar mynd-
listar.
Hátíðir
08.30 Hátíð hafsins verður haldin
hátíðleg í Reykjavík. Nánari upplýsingar
og dagskrá má finna á heimasíðunni
hatidhafsins.is.
10.00 Sjómannahelginni verður fagnað
með dagskrá á Akureyri. Nánari upp-
lýsingar má finna á heimasíðunni
visitakureyri.is
10.00 Menningar- og listahátíð Hafnar-
fjarðar, Bjartir dagar, heldur áfram.
Nánari upplýsingar og dagskrá má finna
á heimasíðunni hafnarfjordur.is.
10.00 Listahátíð í Reykjavík heldur
áfram. Nánari upplýsingar um hátíðina
má finna á heimasíðunni artfest.is.
12.30 Glæsileg dagskrá verður í boði á
Höfn á Hornafirði í tilefni Sjómanna-
dagsins. Dagskrána má nálgast á heima-
síðunni rikivatnajokuls.is.
14.00 Sumarstarf Árbæjarsafns hefst í
dag með flottri dagskrá. Meðal annars
verður þar opnuð sýningin Fram-
tíðarsýn og fortíðarhyggja,sýning í
Listmunahorni sem nefnist Fjöruperlur
og leikfangasýningin Komdu að leika
verður á sínum stað.
Uppákomur
11.00 Hjálpræðisherinn blæs til við-
burðarins Hertex dags 2013. Fata- og
nytjamarkaður opnaður í Herkastal-
anum við Kirkjustræti 2 og popp-
stjörnur stíga á svið frá klukkan 14. Þar
á meðal verður Eurovision-farinn Eyþór
Ingi Gunnlaugsson, Steini í Hjálmum og
hljómsveitirnar Sísý Ey og Leaves.
12.00 Thorvaldsensbazar, Austurstræti
4, fagnar 112 ára afmæli sínu með því
að bjóða viðskiptavinum og gestum upp
á kaffisopa og pönnukökur í versluninni.
13.00 Barnaheimilið Ós, eini foreldra-
rekni leikskóli landsins, heldur fjöl-
skylduskemmtun og fjársöfnun í hús-
næði sínu að Bergþórugötu 20. Tilefnið
er 40 ára afmæli heimilisins. Meðal
þeirra sem koma fram eru Prins Pólí, Óli
Palli, Hugleikur Dagsson og Bergur Ebbi.
Auk þess verður uppboð til styrktar
starfinu. Aðgangur er ókeypis.
Leikrit
17.30 Leikritið Blinda konan og þjónn-
inn, eftir Sigurð Pálsson, verður flutt í
Kringlusafni. Leikarar eru Ólafía Hrönn
Jónsdóttir og Valur Freyr Einarsson.
Miðaverð er kr. 2.000.
19.00 Leikritið Slysagildran, eftir Stein-
unni Sigurðardóttur, verður sýnt á
Gerðubergssafni, Gerðubergi 3-5. Leik-
arar eru Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Miðaverð
er kr. 2.000.
Málþing
09.45 Málþing til heiðurs Guðbergi
Bergssyni verður haldið í Hátíðasal
Háskóla Íslands. Málþingið er haldið í
tilefni af stórafmæli skáldsins og ber
yfirskriftina Að heiman og heim.
Tónlist
15.00 Hin árvissa jazzsumartónleikaröð
veitingahússins Jómfrúrinnar við
Lækjargötu hefst laugardaginn 1. júní. Í
ár verða tónleikar á öllum laugardögum
í júní, júlí og ágúst. Á fyrstu tónleikum
sumarsins leikur kvartett söngkon-
unnar Kristjönu Stefánsdóttur. Tónleik-
arnir hefjast kl. 15 og standa til kl. 17.
Aðgangur er ókeypis.
16.00 Norski kórinn Ljomen blandkor
heldur tónleika í Langholtskirkju.
Stjórnandi er Geir Aksdal. Kammerkór
Mosfellsbæjar og félagar úr Óperukór
Garðars Cortes kome einnig fram á
tónleikunum, auk píanóleikarans Önnu
Guðnýjar Guðmundsdóttur. Aðgangur
er ókeypis.
19.30 Opnir gospeltónleikar verða
haldnir í Áskirkju þar sem gestir verða
hvattir til að taka undir í söng. Á tón-
leikana mæta góðir vinir frá Danmörku.
Aðgangur er ókeypis.
20.00 Barnaheimilið Ós heldur ball í
Þjóðleikhúskjallaranum, Hverfisgötu 20.
Meðal þeirra sem fram koma eru Prins
Póló, Bergur Ebbi, Skilnaðarbörn og DJ
Yamaho. Ágóði ballsins rennur óskiptur
til Óss.
21.00 Hörður Áskelsson, kantor Hall-
grímskirkju, hefur Orgelsumar í Hall-
grímskirkju á hátíðlegan hátt.
23.00 Pálmi Hjaltason og félagar
skemmta á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakka-
stíg 8.
23.00 Nuke Dukem, Bender Gender og
Trifecta spila á Faktorý.
23.00 Plötusnúðarnir Orang Volante
og Karíus þeyta skífum á Volta undir
nafninu Quijada Orchestra. Aðgangur
er ókeypis.
TIL HAMINGJU MEÐ
SJÓMANNADAGINN
FERÐADAGUR FJÖLSKYLDUNNAR Í DAG
ÍSLENSKIR FISKAR
Kynningarverð
í Bókabúð Forlagsins
aðeins í dag:
4.290 kr.
B Ó K A B Ú Ð F O R L A G S I N S – F I S K I S L Ó Ð 3 9