Fréttablaðið - 01.06.2013, Page 106
1. júní 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 70
Björg Magnúsdóttir fagnaði útgáfu fyrstu bókar
sinnar, Ekki þessi týpa, á Loft inu á fi mmtudag. Boðið
var upp á konfekt og brennivín og einnig var lesið
upp úr bókinni fyrir gesti. Ekki þessi týpa segir frá
lífi fj ögurra ungra kvenna sem búsettar eru í Reykja-
vík og er bókin byggð á lífi Bjargar sjálfrar.
Fagnaði útgáfu fyrstu
skáldsögunnar
SÆLL RITHÖFUNDUR Rithöfundurinn Björg Magnúsdóttir sælleg á að líta. Með
henni eru Katrín Ásgeirsdóttir og Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir (fyrir miðju).
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
FORMAÐURINN OG VINKONA Áslaug
Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður Heim-
dallar, ásamt vinkonu sinni, Melkorku
Þöll Vilhjálmsdóttur.
BROSTU ÚT Í EITT Þær Eva Margrét
Kristinsdóttir og Anna Dröfn Ágústs-
dóttir skemmtu sér konunglega.
GÓÐIR GESTIR Díana Dögg
Víglundsdóttir, vefstjóri Háskólavefsins,
ásamt Einari Gústafssyni.
KÁTAR VINKONUR Helga Hrönn
Norðfjörð og Dagný Friðriksdóttir
fögnuðu með rithöfundinum.
„Við eigum svo ótrúlega mikið af flottu ungu
fólki sem er að skara fram úr og er til fyrir-
myndar. Það er mikilvægt að gleyma ekki að
hrósa fólki fyrir vel unnin störf, en alltof lítið
er gert af því,“ segir Tryggvi Freyr Elínar-
son, verkefnastjóri hjá JCI á Íslandi.
JCI á Íslandi hefur nú birt lista yfir tíu
unga einstaklinga sem eru tilnefndir til verð-
launanna Framúrskarandi ungir Íslendingar
þetta árið. Keppnin er haldin í flestum aðild-
arlöndum JCI á heimsvísu og sigurvegararnir
í hverju landi halda svo áfram og keppa sín á
milli í alþjóðlegu keppninni Ten Outstanding
Young Persons Awards þar sem tíu einstak-
lingum eru veitt verðlaun. „Við höfum haldið
þetta í ellefu ár núna og tvisvar sinnum átt
fulltrúa á topp 10 listanum á heimsvísu,“ segir
Tryggvi en þeir eru sundkonan Kristín Rós
Hákonardóttir árið 2003 og frumkvöðullinn
Guðjón Már Guðjónsson árið 2009. „Það verð-
ur að teljast þrælgóður árangur. Sérstaklega
miðað við að það eru um 100 lönd sem taka
þátt í keppninni ár hvert,“ bætir Tryggvi við.
Vel á þriðja hundrað tilnefninga bárust JCI
á Íslandi þetta árið en allir gátu sent inn til-
nefningar. Það var því mikið verk fyrir dóm-
nefndina að velja úr þá efstu tíu. „Þetta er ríf-
lega tvöföldun á tilnefningum frá því í fyrra,“
segir Tryggvi og skrifar það aðallega á það að
nú í ár var tekin í notkun ný heimasíða fyrir
verkefnið, www.framurskarandi.is, sem gerði
ferlið bæði auðveldara og sýnilegra.
Úr tíu manna hópnum hefur dómnefnd svo
valið fjóra verðlaunahafa. Hverjir það eru
verður opinberað þann 6. júní næstkomandi
þegar forseti Íslands afhendir verðlaunin við
hátíðlega athöfn. tinnaros@frettabladid.is
Ungir Íslendingar
hljóta viðurkenningu
JCI á Íslandi hefur valið tíu unga einstaklinga úr hópi hátt í 300 tilnefndra.
Elísabet Ingólfsdóttir Til-
nefnd vegna vinnu sinnar í þágu
heimsfriðar og/eða mannrétt-
inda. Hún kom að stofnsetningu
ungliðahreyfingar Amnesty
International, stofnaði Stop
the Traffik, hreyfingu sem berst
gegn mansali í heiminum, og
hefur verið virk í að vekja athygli á
barnaþrælkun víða um heiminn.
Fida Muhammad Abu
Libdeh Tilnefnd vegna einstak-
lingssigurs og/eða afreks. Hún fluttist
hingað sem flóttamaður frá Palestínu
þegar hún var 16 ára og hefur
nú stofnað fjölskyldu hér, klárað
B.Sc.-gráðu frá HÍ í umhverfis- og
orkutæknifræði og stofnað fyrirtækið
GeoSilica þar sem hún starfar sem
framkvæmdastjóri.
Guð-
mundur
Stefán
Gunn-
arsson
Tilnefndur
á sviði
mannúðar- eða
sjálfboðaliðamála.
Hann er íþróttakennari
og júdókennari í Reykjanesbæ og
stofnandi stærstu júdódeildar lands-
ins. Sú deild er alfarið rekin í sjálf-
boðavinnu og nemendurnir þurfa
því ekki að greiða nein iðkendagjöld.
Gunnar Hólmsteinn
Guðmundsson Tilnefndur
vegna starfa sinna á sviði við-
skipta, frumkvöðla og/eða
hagfræði. Hann hefur náð
undraverðum árangri í við-
skiptum og verið virkur í sprota-
og frumkvöðlaumhverfinu. Hann
seldi fyrirtæki sitt CLARA til Jive
Software fyrir milljarð íslenskra króna.
Hilmar Veigar Pétursson
Tilnefndur fyrir störf sín á
sviði tækni og vísinda. Hilmar
Veigar er maðurinn í brúnni
hjá tölvuleikjafyrirtækinu
CCP sem hefur náð gríðar-
legum árangri að undanförnu.
Hann hefur tekið virkan þátt í
að móta leikjaiðnaðinn sem og
uppvöxt upplýsingatækni og frum-
kvöðlastarfsemi almennt á Íslandi.
Jón Margeir Sverrisson
Tilnefndur fyrir
einstaklingssigra
og/eða afrek.
Hann vann
gullverðlaun
í 200 metra
skriðsundi
á Ólympíu-
leikum fatlaðra
í London síðast-
liðið sumar og varð
þriðji í valinu um Íþrótta-
mann ársins 2012. Jón Margeir æfir
sund af kappi og keppir bæði með
fötluðum og ófötluðum.
Sigrún Björk
Sævarsdóttir
Tilnefnd vegna
starfa/upp-
götvana á sviði
læknisfræði.
Sigrún Björk er
aðeins 22 ára en
hefur vakið mikla
athygli fyrir loka-
verkefni sitt úr Háskólanum
í Reykjavík. Það fjallaði um notkun
þrívíddarmódela og staðsetningar-
tækja við undirbúning skurðaðgerða
á höfði. Aðferðin hefur þegar verið
reynd á Landspítalanum með góðum
árangri.
Sindri Snær
Einarsson
Tilnefndur
vegna
leiðtogahæfi-
leika/
afreka á sviði
mennta-
mála. Hann
er formaður
Landssambands
æskulýðsfélaga, vinnur hjá Hinu
Húsinu í Reykjavík og er einn af
stofnendum Sambands íslenskra
framhaldsskólanema. Sindri hefur
verið öflugur leiðtogi ungs fólks á
sviði æskulýðsmála.
Vilborg
Arna
Gissurar-
dóttir Til-
nefnd vegna
einstaklings-
sigra og/eða
afreka. Hún var
fyrsta íslenska konan
til að ganga á suðurpólinn nú í vetur
og safnaði í leiðinni 37 milljónum
króna til styrktar kvennadeildar Land-
spítalans. Vilborg hefur haldið fjölda
fyrirlestra og hvatt fólk til að láta
drauma sína rætast.
MIKIÐ AF FYRIRMYNDARFÓLKI Tryggvi Freyr segir mikilvægt að fólk
gleymi ekki að hrósa hvert öðru fyrir vel unnin störf. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Melkorka Ólafsdóttir
Tilnefnd fyrir störf/afrek á sviði
menningar. Hún er framúrskarandi
hljóðfæraleikari sem hefur komist
inn í nokkra af bestu tónlistar-
háskólum heims. Síðustu ár hefur
hún starfað við sinfóníuhljóm-
sveit í Japan og er nú í úrslitum
í keppni um tímabundið starf í
Fílharmóníuhljómsveit Lundúna.
ÞAU ERU FRAMÚRSKARANDI
JCI á Íslandi er hluti af alþjóðlegu samtökunum Junior
Chamber International sem starfa í 120 löndum á heimsvísu.
Hlutverk JCI er að skapa tækifæri fyrir ungt fólk til að efla
hæfileika sína. Félagið er rekið sem sjálfboðaliðahreyfing og
býður ungu fólki upp á ýmiss konar námskeið og verkefni til
að kenna því, hvetja það og efla. Allir á aldrinum 18 til 40 ára
geta gengið í félagið og tekið þátt í starfi þess.
Hvað er JCI?
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Kæli- og frystiskápar
25%
afsláttur