Fréttablaðið - 01.06.2013, Síða 108
1. júní 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 72
„Ég nota íslenskt fiskroð mikið í
hönnun minni. Mér finnst efnið
bæði fallegt og svo er einnig þægi-
legt að vinna með það. Roðið vekur
mikla athygli hérna úti og það
sýnir líka hvar ræturnar mínar
liggja,“ segir Hedi Jónsdóttir,
hönnuður í London. Hún hannar
fallegar og litríkar töskur undir
nafninu Daughter of Jón.
Hedi stundaði nám í fatahönnun
og klæðskeraiðn í Vínarborg og
starfaði meðal annars sem bún-
ingahönnuður þar í landi að nám-
inu loknu. Því næst flutti hún til
Barcelona þar sem hún starfaði
sem stílisti og vann meðal ann-
ars mikið fyrir tískumerkið Custo
Barcelona. Eftir nokkur ár á Spáni
ákvað hún að flytja aftur til Vínar
og nema menningarstjórnun. „Ég
er hálfgerður sígauni í mér,“ segir
Hedi og hlær.
Hönnun sína selur Hedi í gegnum
vefsíðu sína Daughterofjon.com, en
síðan fór í loftið fyrir rúmri viku
síðan. Að hennar sögn hafa móttök-
urnar verið vonum framar. „Sumar
týpurnar eru uppseldar, þannig að
ég get ekki kvartað.“ Þegar hún er
að lokum spurð út í nafnið á merk-
inu segist Hedi hafa valið nafn sem
væri í senn persónulegt og lýsandi
fyrir hana. „Margir hafa spurt
hvaðan nafnið kemur og þegar ég
segist vera íslensk þá fatta flestir
nafngiftina,“ segir hún að lokum.
sara@frettabladid.is
Dóttir Jóns
hannar töskur
Hedi Jónsdóttir, hönnuður í London, hannar fallegar
og litríkar töskur undir nafninu Daughter of Jón.
SÍGAUNALÍFERNI Hedi Jónsdóttir hefur búið víða. Nú býr hún í London þar sem
hún hannar töskur úr fiskroði. MYNDIR/WWW.WATCHLOOKSEE.COM
➜ Töskurnar kosta á milli
6.500 til 43 þúsund krónur.
Hedi ólst upp á Íslandi og í Austurríki, en
móðir hennar er hálfur Austurríkismaður
og hálfur Íslendingur. Hún er nú búsett í
London ásamt ítölskum kærasta sínum og
kveðst kunna vel við sig í stórborginni.
„Ég flutti út af ást. Kærasti minn býr
í London og mig langaði að vera með
honum, en auðvitað var ég líka virkilega
spennt fyrir borginni. London er mjög
lifandi og héðan er stutt að fara til Íslands
og Ítalíu,“ segir Hedi.
Ísland, Vínarborg
og London
BÍÓ ★★★ ★★
The Great Gatsby
Leikstjóri: Baz Luhrmann
LEIKARAR: LEONARDO DICAPRIO, TOBEY MAGUIRE, CAREY MULLIGAN, JOEL
EDGERTON, ISLA FISHER
Leikstjórinn Baz Luhrmann er þekktur fyrir dálæti sitt á glys og
glamúr. Kvikmyndun skáldsögunnar The Great Gatsby liggur því
einkar vel fyrir honum, en sögusvið hennar er samkvæmislíf New
York-borgar á þriðja áratug síðustu aldar.
Sagan hefur verið kvikmynduð margsinnis áður, en aldrei hefur
útkoman verið neitt í líkingu við þetta. Líkt og í fyrri myndum sínum
lagar Luhrmann fortíðina að nýjustu straumum og stefnum í tónlist,
og dansa persónur F. Scott Fitzgerald því Charleston-dansinn við Jay-Z
og Beyoncé. Skemmtilegt tilbrigði við normið, en hætt er við að Fitz-
gerald gamli hringsnúist í gröf sinni.
Myndin er hins vegar tveir og hálfur tími að lengd og áhorfandinn
finnur vel fyrir lengdinni. Leikhópurinn stendur sig vel, að frátöldum
Tobey Maguire sem á sína passífustu frammistöðu til þessa. Þá er útlit
og umgjörð til fyrirmyndar, enda Luhrmann fyrst og fremst að þessu
til að gleðja augu og eyru. Haukur Viðar Alfreðsson
NIÐURSTAÐA: Skemmtileg en dregst heldur á langinn.
Fitzgerald hringsnýst SKEMMTILEG EN LANGDREGIN
Kvikmyndin The
Great Gatsby er
skemmtileg en helst
til of löng.
– Lifið heil
20%
Sheer Blonde®
afsláttur af Go Blonder
hárvörum frá John Frieda
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
6
42
96
0
5/
13
Gildir 23. maí – 4. júní
Lægra
verð
í Lyfju