Fréttablaðið - 01.06.2013, Qupperneq 110
1. júní 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 74
Írski hjartaknúsarinn Michael
Fassbender er kominn með nýja
dömu upp á arminn, en sú heitir
Louise Hazel og keppti í sjöþraut
fyrir hönd Bretlands á síðustu
Ólympíuleikum.
Til parsins sást í síðustu viku er
þau snæddu með Bradley Cooper
á veitingastaðnum Wolseley við
Piccadilly.
„Þau eru saman. Þau hafa átt
í fjarsambandi á meðan Micha-
el er við tökur á X-Men: Days of
Future Past í Montreal. Hann
flýgur reglulega til London til að
hitta hana,“ hafði Us Weekly eftir
heimildar manni sínum.
Kominn á fast
Michael Fassbender er á föstu með íþróttakonu.
Á FAST Michael Fassbender er kominn
á fast. NORDICPHOTOS/GETTY
Hönnunarsjóður Auroru úthlutaði
styrkjum til hönnunarverkefna á
fimmtudag. Þetta er í tíunda sinn
sem veitt er úr sjóðnum og að
þessu sinni voru veittar 9,6 milljón-
ir króna til níu hönnunarverkefna.
Þeir einstaklingar og fyrirtæki
sem hlutu styrki eru hönnuðurinn
Siggi Eggerts, fyrirtækið SLÍJM
SF, Guðbjörg Káradóttir og Ólöf
Jakobína fyrir verkefnið Postu-
lína, Steinunn Sigurðardóttir fata-
hönnuður, Halldóra Arnar dóttir
doktor í listfræði og Margrét
Hlöðversdóttir, Guðrún Ragna
Sigurjónsdóttir og María Th.
Ólafsdóttir fá styrk til markaðs-
setningar erlendis á barnafatalín-
unni As We Grow. Þá hlaut Félag
íslenskra landslagsarkitekta
styrkt til þróunar gagnagrunns,
Sunna Örlygsdóttir fatahönnuður
fékk styrk til starfsnáms og loks
fékk Hönnunarmiðstöð Íslands
styrk til skrásetningar og kynn-
ingar um HönnunarMars.
Níu fengu styrk
úr hönnunarsjóði
Styrkjum úr hönnunarsjóði Auroru var úthlutað á
fi mmtudag. Níu verkefni fengu styrk úr sjóðnum.
FENGU STYRK Styrkþegar samankomnir fyrir utan skrifstofur Hönnunarsjóðs.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SKÁLAÐ Greipur Gíslason, verkefna-
stjóri hjá Hönnunarmiðstöð Íslands,
ásamt Kristínu Gunnarsdóttur.
GÓÐIR GESTIR Kjartan Kjartansson
og Hrafnkell Sigurðsson voru á meðal
gesta.
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
•
131749
GEFÐU
DRAUMNUM
VÆNGI
Umsóknarfrestur til 19. júní
FLUGAKADEMÍA
Flugakademía Keilis býður upp á nám í einkaflugi, atvinnuflugi, flugþjónustu,
flugumferðarstjórn og flugvirkjun. Staðsetning skólans skapar frábærar
aðstæður til kennslu flugtengdra greina.
Flugfloti Keilis er bæði nýstárlegur og hátæknilegur. Flugnemar Keilis njóta
þess að fljúga nýjustu kennsluvélum landsins og lögð er áhersla á að flug-
mælitæki samsvari því sem flugrekendur nota í sínum rekstri. Nú er bæði
verklegt og bóklegt nám í atvinnuflugi lánshæft hjá LÍN.
NÁMSFRAMBOÐ
EINKAFLUG
ATVINNUFLUG
FLUGUMFERÐARSTJÓRN
FLUGÞJÓNUSTA
FLUGVIRKJUN
KEILIR
ÁSBRÚ
578 4000
keilir.net