Fréttablaðið - 01.06.2013, Page 114

Fréttablaðið - 01.06.2013, Page 114
1. júní 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 78 Eyþór Ingi virðist hafa heillað Evrópubúa töluvert meira en dómnefndina þegar hann keppti með lagið Ég á líf í Eurovision nú um miðjan mánuðinn. Eins og fór líklega ekki framhjá neinum komst Eyþór áfram úr undan- keppninni og lenti í 17. sæti í aðal- keppninni í Malmö með 47 stig. Nú hafa aðstandendur keppn- innar gefið út lista yfir það hvernig atkvæðin skiptust niður og margt þar sem kemur á óvart. Hin danska Emmilie de Forest stóð reyndar uppi sem sigur- vegari bæði meðal dómara og óbreyttra Evrópubúa. Það var þó dómnefndin sem dró Eyþór Inga niður í atkvæðagreiðslunni því eftir símakosninguna í aðal- keppninni sat hann í 12. sæti og var þar ofar á lista en Moldavía, Belgía, Svíþjóð, Georgía og Hvíta-Rússland sem öll lentu ofar en hann þegar atkvæðum dómnefndar hafði verið blandað saman við atkvæði Evrópubúa. Sérstaka athygli vakti hversu skiptar skoðanir voru um rúm- enska framlagið. Hinn rúmenski Cezar lenti í 13. sæti með hið stórfurðulega lag It‘s My Life þrátt fyrir að Evrópubúar hafi kosið hann í það sjöunda, þar sem hann lenti í því 24. hjá dóm- nefndinni. - trs Náði 12. sæti í símakosningunni Dómnefndin dró Ég á líf niður um fi mm sæti. Lagið vinsælt í Evrópu. Ég á líf hefur átt góðu gengi að fagna um gjörvalla Evrópu eftir Eurovision. Lagið var á lista yfir 200 söluhæstu lög í Evrópu í þessari viku og í 46. sæti vinsældalistans í Sviss. Það er í mikilli spilun í mörgum öðrum löndum og meðal annars vinsælt hjá sænska ríkisútvarpinu, sem spilar yfirleitt ekki lög úr Eurovision. Meðal 200 sölu- hæstu laga í Evrópu DÓMNEFNDIN ERFIÐ Það var dómnefndin sem dró Eyþór Inga niður í Eurovision. NORDICPHOTOS/GETTY „Ég var mjög hissa á að fá styrkinn þar sem ég er á fyrsta ári, en það eru yfirleitt annars árs nemar sem fá þetta tækifæri. Þetta er alveg rosalega mikill heiður og geðveikt tækifæri að fá að vinna verkefnið við einn virtasta rannsóknarhá- skóla í heimi,“ segir Kristján Eld- járn, meðlimur danshljóm- sveitarinnar Sykurs. Hann er einn sautján nemenda við Háskóla Íslands sem munu dvelja við rannsókn- ir og nám við heimsþekkta háskóla í Bandaríkjunum í sumar en Kristján er nemi í tölvunarfræði. Kristján mun rannsaka svo- kallaða tölvusjón við California Institute of Technology, Caltech, í Kaliforníu. Rannsóknarverkefni Kristjáns snýst um svokallaða tölvusjón. „Í stuttu máli er ég að kenna tölv- um að þekkja hluti í sjón. Þetta er alveg rosalega flókið en ég hef mjög gaman af þessu. Tölvunar- fræðin er alveg ofur lúða- leg en á sama tíma fárán- lega skemmtileg. Mér finnst bara fínt að vera lúði úti í horni inni á milli,“ segir hann að lokum. - þþo Í sumarnám við heim- sþekktan háskóla Kristján Eldjárn nemur við Caltech í sumar. Nicki Minaj mun ekki setjast aftur í dómarasætið í sjónvarpsþættin- um American Idol. Tilkynning- in kemur í kjölfar frétta um að Mariah Carey og Randy Jackson hafi bæði ákveðið að hætta sem dómarar í þættinum. Minaj deildi ákvörðun sinni með aðdáendum sínum í gegn- um Twitter. „Takk American Idol fyrir reynslu sem breytti lífi mínu. Hefði ekki viljað missa af þessu. Nú er tími til kominn að einbeita sér að tónlist,“ skrifaði hin litríka rappsöngkona á síðu sína. Þetta var fyrsta þáttaröðin sem Minaj og Carey spreyttu sig sem dómarar en Jackson hafði vermt dómarasætið í einar tólf þátta- raðir. Hætt sem dómari Nicki Minaj snýr ekki aft ur í American Idol. HÆTT Nicki Minaj er hætt sem dómari í American Idol. NORDICPHOTOS/GETTY Á LEIÐ TIL BANDARÍKJANNA Kristján Eldjárn, meðlimur í danssveitinni Sykur, er á leið í sumarnám við heim- sþekktan háskóla. Leikarinn Ethan Hawke segir dásamlegt að kyssa Angel- inu Jolie, en þau léku saman í spennumyndinni Taking Lives frá árinu 1999. „Besti koss sem ég hef deilt með mótleikkonu var með Angel- inu Jolie. Hún gerir menn veika í hnjánum og þegar hún kyssir þig þá manstu ekki einu sinni hvað þú heitir lengur.“ Ekki er víst hvort fyrrverandi eiginkona Hawke, Uma Thurman er sátt við þessi ummæli hans því þau kynntust árið 1996 við gerð kvikmyndarinnar Gattaca og giftust tveimur árum síðar. Best að kyssa Jolie Ethan Hawke fannst best að kyssa Angelinu Jolie. Fatahönnuðurinn Victoria Beck- ham kveðst ekki nota andlits- farða þegar hún er í kringum dóttur sína. Þetta gerir hún til að forðast það að sú litla hermi eftir henni. „Ég get ekki sett á mig andlitsfarða þegar Harper er í kringum mig því hún mundi vilja gera slíkt hið sama um leið og hún sæi mig. Þegar hún er með bræðrum sínum, þá hagar hún sér eins og þeir,“ sagði Beckham um Harper Seven. Líkt og kunnugt er er fyrr- verandi Kryddpían gift fótbolta- manninum David Beckham og eiga þau saman fjögur börn, synina Brooklyn Joseph, Romeo James, Cruz David og loks dótturina Harper Seven sem fæddist árið 2011. Notar ekki farða í kringum Harper Victoria Beckham vill ekki að dóttir sín hermi eft ir. PASSAR SIG Victoria Beckham notar ekki andlitsfarða í kringum dóttur sína. NORDICPHOTOS/GETTY HEILLAÐUR Ethan Hawke er heillaður af Angelinu Jolie. NORDICPHOTOS/GETTY
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.