Fréttablaðið - 11.06.2013, Side 10
11. júní 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10
www.rekstrarland.isSkeifunni 11 | Sími 515 1100
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
13
17
72
BORÐDÚKUR
Löber 40X2400 cm
Verð 2.259 kr.
VEISLUDISKAR
úr pálmalaufum, 17x17 cm, 25 stk./pk.
Verð 2.390 kr.
KERTI
12 cm x 7 cm, 60 tímar í brennslu
Verð 487 kr.
KERTAVASI
með áfyllingu, 24 tímar í brennslu
Verð 890 kr.
VEISLAN
Í Rekstrarlandi finnurðu mikið
úrval af einnota veisluvörum
fyrir útskriftir, afmæli,
grillpartý, brúðkaup o.fl.
Nú höfum við fl utt alla
starfsemi frá Breiðhöfða að
Kletthálsi 11
TOYOTA LAND CRUISER 120LX
Nýskr. 06/08, ekinn 67 þús. km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 5.390 þús.
Rnr.270246.
SUBARU FORESTER LUX
Nýskr. 10/07, ekinn 105 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.390 þús.
Rnr.290000,
Allt að 80% lánamöguleikar
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
BMW X5 3.0D
Nýskr. 09/07, ekinn 71 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
Rnr. 151891
NISSAN MURANO 3.5
Nýskr. 11/07, ekinn 93 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 3.490 þús.
Rnr.201181.
HYUNDAI GETZ
Nýskr. 02/09, ekinn 42 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 1.750 þús.
Rnr.170336.
LAND ROVER DISCOVERY 3 SE
Nýskr. 12/07, ekinn 103 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 5.890 þús.
Rnr.151871.
HYUNDAI SANTa FE II
Nýskr. 07/07, ekinn 133 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.990 þús.
Rnr.151681.
Glæsilegt eintak kr.
6.490 þús.
Tökum notaðan uppí notaðan! Erum í samningsstuði!
VÍSINDI Íslensk erfðagreining
áætlaði arfgerðir 280 þúsund ein-
staklinga út frá 95 þúsund skyld-
mennum þeirra sem tóku þátt í
rannsóknum fyrirtækisins. Ekki
var leitað samþykkis eins og ber að
gera segir Persónuvernd og gefur
ÍE frest út október til að koma mál-
inu í lag.
ÍE, Landspítalinn og fleiri ósk-
uðu eftir leyfi til vinnslu persónu-
upplýsinga til að undirbúa notkun
raðgreiningarupplýsinga í einstak-
lingsmiðaðri heilbrigðisþjónustu
Landspítalans.
„Ljóst er að meirihluti þeirra
einstaklinga sem fyrirhugað er að
vinna með upplýsingar um í þágu
umrædds verkefnis hefur ekki
veitt samþykki af neinu tagi sem
til álita getur komið sem lögmætis-
grundvöllur, né heldur er fyrir-
hugað að afla samþykkis frá þeim
einstaklingum,“ segir í umfjöllun
Persónuverndar, sem synjaði um
leyfið.
Kári Stefánsson, forstjóri ÍE,
undirstrikar að ekki sé um það að
ræða að arfgerðir umræddra 280
þúsund einstaklinga hafi verið
greindar. Arfgerð verði aðeins
greind með því að vinna úr líf sýni
úr viðkomandi. Slíkt hafi vísinda-
menn ÍE aldrei gert án þess að
fyrir liggi upplýst samþykki.
„Vísindamenn Íslenskrar erfða-
greiningar hafa hins vegar getið
sér til um arfgerðir mikils fjölda
einstaklinga án þess að fyrir liggi
upplýst samþykki enda eru ágisk-
anir um fólk ekki persónuupplýs-
ingar. Ágiskanirnar byggja ein-
göngu á notkun ættfræði sem er
heimil að íslenskum lögum,“ segir
Kári.
Þá segir forstjóri ÍE mikilvægt í
þessu samhengi að ágiskanir fyrir-
tækisins hafi verið unnar með sam-
þykki Persónuverndar. „Úrskurður
hennar frá 28. maí er því viðsnún-
ingur af hennar hálfu og með öllu
óskiljanlegur,“ segir hann.
Upplýsingar sem átti að miðla
frá Landspítala til ÍE lúta að heilsu-
högum allra þeirra sem leitað hafa
til spítalans síðustu fimm ár.
Persónuvernd segir að innan
veggja ÍE virðist unnið með áætl-
aðar arfgerðir tengdar tilteknum
einstaklingum án þess að þeir hafi
samþykkt slíkt.
„Er mælt fyrir um að ÍE skuli
tryggja að öll slík vinnsla, þar á
meðal varðveisla, grundvallist
á samþykki. Skal ÍE leggja fyrir
Persónuvernd eigi síðar en 1.
nóvember næstkomandi gögn um
með hvaða hætti fyrirtækið hafi
farið að þeim fyrirmælum,“ segir
Persónuvernd.
gar@frettabladid.is
Kári Stefánsson telur
úrskurð óskiljanlegan
Persónuvernd segir Íslenska erfðagreiningu hafa áætlað arfgerð 280 þúsund ein-
staklinga án þeirra samþykkis og gefur fyrirtækinu frest til að lagfæra þetta fyrir
1. nóvember. Óskiljanlegur viðsnúningur segir Kári Stefánsson, forstjóri ÍE.
FÓLK Kári Stefánsson segir það ekki lögbrot að setja fram tilgátur um fólk byggðar
á opinberum ættfræðiupplýsingum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Ágiskan-
irnar byggja
eingöngu á
notkun ætt-
fræði sem er
heimil að
íslenskum
lögum.
Kári Stefánsson
forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar
EFNAHAGSMÁL Halli á tekjuafkomu
hins opinbera nam 8,2 milljörðum
króna á fyrsta fjórðungi þessa
árs, samkvæmt nýbirtum tölum
Hagstofu Íslands. Niðurstaðan
er lakari en á sama tíma í fyrra
þegar hallinn var 6,7 milljarðar.
Í umfjöllun Hagstofunnar
kemur fram að hallinn fyrstu
þrjá mánuði ársins hafi numið 1,9
prósentum af landsframleiðslu
tímabilsins, eða 4,5 prósentum af
tekjum hins opinbera. - óká
8,2 milljarða opinber halli:
Verri afkoma
en var í fyrra
SVÍÞJÓÐ Lestarstjórar sem aka
Roslagsbanan í Stokkhólmi í Sví-
þjóð mega vera í stuttbuxum við
vinnu sína.
Yfirmenn þeirra skiptu um skoð-
un eftir að fjöldi erlendra fjöl-
miðla greindi frá því að lestar-
stjórarnir hefðu mætt í pilsi til
vinnu í um það bil tvær vikur.
Lestarstjórarnir vildu með
því mótmæla banninu við stutt-
buxum. Þeir sögðu að þeim væri
alltof heitt í síðbuxum á sólríkum
dögum.
Þegar lestarstjórarnir mættu
í pilsi höfðu sænskir fjölmiðlar
það eftir upplýsingafulltrúa fyrir-
tækis þeirra að ekki væri hægt að
banna þeim það. - ibs
Karlar í pilsi í vinnunni:
Banni við stutt-
buxum aflétt