Fréttablaðið - 11.06.2013, Side 17

Fréttablaðið - 11.06.2013, Side 17
ÞRIÐJUDAGUR 11. júní 2013 | SKOÐUN | 17 Þegar við förum að eldast finnum við meira fyrir ýmsum hlutum sem áður höfðu litla sem enga þýðingu fyrir okkur. Á ákveðnum aldri er maður óstöðvandi, fullur af orku og stöðugt að læra eitt- hvað nýtt, en í kjölfarið byrjum við að hrörna smám saman og förum að bera þess merki. Yfir- leitt er líkaminn á undan sálar- tetrinu, við þekkjum þær frá- sagnir að fólki finnst það enn vera í kringum tvítugt þrátt fyrir að vera orðið umtalsvert og jafn- vel margfalt eldra, sérstaklega ef það er enn hraust og virkt. Við viljum ekki verða gömul því okkur finnst það enn að ein- hverju leyti vera ósigur, við erum í baráttu sem við getum ekki unnið og sumir verða svo uppteknir af því að stöðva fram- gang öldrunar að það beinlínis leggst á sálina á þeim. Þannig er ferlinu líklega hraðað umtals- vert því þekkt er að streita og van líðan hefur neikvæð áhrif á okkur í margvíslegum skilningi og á þessum vettvangi hraðar slík líðan vafalaust öldrun. Ytra áreiti, þrýstingur og staðalímyndir minna okkur á það dags daglega hvernig við „eigum“ að líta út og það er stans- laus áróður sem þessi sem hefur skapað þá útlitsdýrkun sem við þekkjum í dag sem raunverulegt vandamál. Andlega sjúkdóma eins og kvíða, þunglyndi, átrask- anir og marga fleiri má eflaust túlka sem afleiðingar og þeir leggjast bæði á stráka og stelpur. Það hefur býsna margt verið reynt til að sporna gegn þess- ari þróun og fá börn og unglinga sem eru hvað mest í mótun til að átta sig á fleiri gildum en útliti einu saman. Okkur gengur ekk- ert sérstaklega vel sýnist mér og hef ég raunverulegar áhyggjur. Við fullorðna fólkið erum auð- vitað ákveðnar fyrirmyndir, en það sem hefur sýnt sig er að svo- kallaðar stjörnur og fræga fólkið hafa mun meiri áhrif en okkur gæti órað fyrir í bæði jákvæðum og neikvæðum skilningi. Skemmtanaiðnaðurinn Rétt til að árétta vægi skemmt- anaiðnaðarins í mótun atferlis og umræðu má benda á þá um- fjöllun á heimsvísu sem brottnám brjósta Angelinu Jolie vakti, en fjöldamargar konur hafa gengist undir slíka aðgerð á undan henni og læknavísindin hafa stundað þessa meðferð um nokkurt skeið án þess að nokkur hafi raunveru- lega sýnt því áhuga á slíkum skala sem brjóstin hennar vöktu. Sama gildir um meint munnmök Michaels Douglas í samhengi við krabbamein sem hann fékk í munnhol. Þar er þróun sem við höfum fylgst með lengi víða um heiminn og er vel þekkt, en það virðist þurfa einhvern frægan til að almenningur og fjölmiðlar nenni að fjalla um slík málefni. Við getum með sama hætti heim- fært hegðun, klæðaburð, tals- máta og margt fleira yfir á það sem stjörnurnar leggja á borð fyrir börnin og unglingana okkar og móta þannig hegðun þeirra. En fullorðna fólkið margt hvert er engu betra í raun, það eltist við æskuna, af mismikilli áfergju þó, í fullkominni minnimáttarkennd fyrir hinu óumflýjanlega, nefni- lega því að eldast og hrörna. Öll vildum við geta stöðvað eða hægt á þeirri þróun og eru til óendan- lega margar bækur, kvik myndir og annað efni þar sem spilað er með þá hugsun að geta stýrt öldruninni. Til skamms tíma voru það mestmegnis konur sem létu lagfæra útlit sitt, en í dag er talsverður fjöldi karla sem leitar til lýtalækna í þeim sama tilgangi. Mjög mikið er selt af efnum til að draga úr öldrun húð- arinnar eins og krem eða töflur, talsvert sprautað einnig, skorið og togað til með einum eða öðrum hætti. Minna er gert af því að huga að hinum innri manni eða konu í sama tilliti, því miður, enda árangurinn ekki alveg eins sýnilegur auðvitað. Lífsgleði og hamingja Það eru því miður engar töfra- lausnir til í þessu efni, en þó er algerlega ljóst að ef einstakling- urinn er í andlegu ójafnvægi þá mun hann eldast hraðar en sá sem er lífsglaður og hamingju- samur. Ef viðkomandi reykir mun hann skemma húðina sína meira og hraðar en nokkurt krem eða botox mun geta lagað. Þá er ekki horft til innri líffæra eins og lungna, hjarta og æðakerfis sem öll eldast hraðar og skemmast fyrr hjá þeim sem reykja. Ekki má gleyma ristruflunum og getu- leysi bæði karla og kvenna sem fylgir oftsinnis í kjölfarið. Ég þarf varla að minnast á offituna, hreyfingarleysið og óhollt matar- æði í þessu samhengi því það er svo augljóst. Hið merkilega er að fólk tengir öldrun ótrúlega mikið við útlit, minni og kyngetu en það er bara svo miklu miklu meira sem kemur til. Temdu þér því holla lífshætti, settu sjálfan þig í forgang, láttu þér líða vel og í öllum bænum hættu að reykja ef þú gerir það! Þessar einföldu reglur munu spara þér mikla peninga í fram- tíðinni sem þú gætir notað í eitt- hvað annað og skemmtilegra og þær munu sennilega lengja lífið og bæta það umtalsvert. Láttu hégómann ekki ná tökum á þér, njóttu þess að eldast því það mun fara þér betur og eyddu orku þinni í það að vera hamingju samur, þú getur nefnilega ráðið því! Hégómi, hrörnun og hamingjan F A S TU S _H _1 9. 06 .1 3 Veit á vandaða lausn Komið í verslun okkar að Síðumúla 16 - 2.hæð. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is Ansell hanskar Tunturi Pilates æfingasett Sporlastic spelkurRannsóknarvörur SjúkrarúmRafskutlur HEILSA Teitur Guðmundsson læknir Það eru því miður engar töfralausnir til í þessu efni, en þó er alger- lega ljóst að ef einstakling- urinn er í andlegu ójafnvægi þá mun hann eldast hraðar en sá sem er lífsglaður og hamingjusamur. Landsnet er stjórnvald Í krafti þess að Landsnet starfar á grunni laga og er fyrirtæki í eigu ríkis- ins hefur mér þótt ljóst að fyrirtækið væri stjórnvald. Nú þegar úrskurðurinn liggur fyrir er í fyrsta skipti hægt að kæra fyrirtækið fyrir það ofurvald sem fyrirtækið hefur beitt í krafti sérþekk- ingar og einokunar. Þannig þarf fyrirtækið nú að sýna fram á að það hafi sinnt upp- lýsingaskyldu og gætt meðalhófs og jafnræðis í framkvæmd kerfisáætlunar sinnar. Það er mikilvægt í góðu samfélagi að fyrirtæki sem kostað er af almannafé og rekið í almannaþágu beiti ekki yfirburðum sínum til að knýja fram niðurstöðu. Í því samhengi er úrskurður umhverfis- og auðlinda- ráðuneytisins afar, afar mikilvægur. http://blog.pressan.is Inga Sigrún Atladóttir Framsóknarsporin hræða Það var gott að sjá forsvarsmenn Orkuveitu Reykjavíkur stíga fram á síðum blaðanna í morgun. Þar liggur fyrir efnisleg viðurkenning á því að jarðhitavirkjanir OR á Hellisheiði eru ekki sjálfbærar heldur ganga hratt á auðlindina, þær munu renna út á næstu 15 árum verði ekki að gert og öll loforð OR um afhendingu orku frá viðbótarvirkjunum eru þvættingur byggður á sandi. Einnig kemur fram að fokdýrar boranir OR við Skarðsmýrarfjall og víðar hafa verið fálm í myrkri sem engri orku hafa skilað. Niðurdælingar með tilheyrandi jarðskjálftum eru senn að renna sitt skeið á enda og þá veit enginn hvernig á að losna við þá eitursúpu sem kemur upp úr jarðhitageyminum. http://www.dv.is Páll Ásgeir Ásgeirsson AF NETINU

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.