Fréttablaðið - 11.06.2013, Blaðsíða 12
Breiðholtið hefur einkennst af fjölbreytileika
frá því á sjöunda áratugnum þegar fólk flutti
fyrst í Bakkana víða af landinu og úr öðrum
hverfum Reykjavíkur. Upp úr aldamótum
jókst fjöldi nýbúa margfalt og þá skapaðist
sami suðupottur í samfélaginu og þrjátíu
árum áður. Staðan í dag er þó önnur, að mati
eina starfandi hverfisstjóra landsins, Óskars
Dýrmundar Ólafssonar, hverfisstjóra Breið-
holts.
Samfélagið var suðupottur
Óskar ólst upp í Breiðholti og segir hann and-
rúmsloftið í hverfinu allt annað í dag en það
var á þessum miklu umbrotatímum.
„Við erum áfram með mjög fjölbreyttan
hóp fólks sem býr þarna saman og kallar sig
núna Breiðhyltinga, bæði þeir sem eru frum-
byggjar og komu frá landinu öllu á sjöunda og
áttunda áratugnum og þeir sem komu seinna
frá öðrum heimshornum,“ segir hann. „Sagan
endurtekur sig í sjálfu sér. Það myndast suðu-
pottur sem róast svo þegar blöndunin verður
meiri.“
Óskar segir þessa blöndun ólíks fólks tví-
mælalaust vera styrkleika hverfisins og ríma
við borgarumhverfi víða annars staðar þar
sem fjölmenning og fjölbreytni hefur náð sér
á strik. Fólk kemur frá öllum heimshornum,
er mikið menntað og lítið, vel efnað og ekki.
Óskar segir þó að stéttaskipting sé ekki til
staðar í hverfinu.
Væru mistök í dag
„Ég tel að stéttaskipting brotni niður í þessu
umhverfi. Skipulagið er meðal annars það
sem vinnur gegn aðgreiningu þó að hún sé
alltaf að einhverju leyti til staðar,“ segir hann
og bendir á þá ákvörðun yfirvalda að láta
reisa þann mikla fjölda félagslegra íbúða á
sama stað á sínum tíma.
„Í dag myndum við aldrei gera þetta svona,
það væru mistök,“ segir Óskar. „En ég á erf-
itt með að dæma fortíðina því í þá daga voru
menn ekki betur að sér í félagsvísindum en
svo að þeir hrúguðu íbúðunum saman á einn
stað. Ákvörðunin hafði ekki jákvæðar afleið-
ingar fyrir uppbyggingu samfélagsins, þótt
hún hafi verið gerð af góðum hug. Hlutirnir
voru ekki hugsaðir til enda. Samt þurfti auð-
vitað að byggja þetta húsnæði og við erum
enn að vinda ofan af fórnarkostnaðinum.“
Raunsæ umfjöllun
Óskar segir að vissulega séu fordómar gagn-
vart Breiðholti en bendir á að nauðsynlegt
sé að átta sig á því að umfjöllunin um hverf-
ið sé ekki eins neikvæð og sumir virðast
halda.
„Mér finnst fólk stundum gera of mikið
úr tali um neikvæða umfjöllun. Við feng-
um Fjölmiðlavaktina til að greina umfjöll-
un fjölmiðla og það hallaði ekkert meira á
Breiðholt en önnur hverfi varðandi frásagn-
ir af glæpum. Það var meginniðurstaðan,“
segir Óskar. „Það var mikið rætt um að það
væri svo illa talað um Breiðholtið en niður-
staðan leiddi annað í ljós því umfjöllunin
var yfirleitt mjög fagleg. En um leið og for-
dómarnir eru farnir að há manni sjálfum er
maður kominn í vandræði.“
Býr sjálfur í miðbænum
Þrátt fyrir að starfa sem hverfisstjóri
Breiðholts býr Óskar í miðborginni ásamt
fjölskyldu sinni. Hann segir að þar sé fjöl-
skyldan búin að festa rætur, börnin gangi
þar í skóla svo flutningar yrðu ekki einfald-
ir. Hann var búsettur í miðborginni þegar
hann sótti um starf hverfisstjóra.
„Þótt ég hafi alist upp í Breiðholti og tekið
út minn þroska þar hef ég nú fest rætur
annars staðar,“ segir hann. „Það væri auð-
vitað betra ef ég byggi í hverfinu en það
er spurning hversu miklu á að fórna fyrir
starfið sitt.“
Fórnarkostnaður fortíðarinnar
Það væru mistök að byggja jafn margar samliggjandi félagslegar íbúðir í dag og gert var í Breiðholti, segir Óskar Dýrmundur Ólafsson, eini
hverfisstjóri landsins. Greining Fjölmiðlavaktarinnar leiddi í ljós að umfjöllun um Breiðholt er ekki neikvæðari en um önnur hverfi.
DAGLEGT SPJALL Í MJÓDDINNI Óskar röltir stundum um Mjóddina og hittir fyrir þennan fríða hóp karla
sem kemur saman á kaffihúsi bakarísins á hverjum degi til að ræða mál líðandi stundar. Enginn þeirra,
að einum undanskildum, á þó heima í Breiðholti þótt það verði fyrir valinu sem daglegur samverustaður.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Það kom flestum á óvart þegar Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
(FB) bar sigur úr býtum í spurningakeppninni Gettu betur
árið 1987. Strákarnir sigruðu Menntaskólann við Sund í
úrslitakeppninni og viðburðurinn var umtalaður um allt land og
í kjölfarið fjölgaði umsóknum nemenda í skólann.
Fínu skólarnir fúlir
Lið FB var skipað Breiðhyltingunum Ármanni Þorvaldssyni,
Bjarka Diego og Kjartani Ólafssyni. Þeir eru sammála um að
sigurinn hafi verið verulega sætur.
„Þegar við unnum Kvennó í útvarpinu varð ákveðið spennu-
fall. Svo tókum við MR, MA og MS í sjónvarpinu, en fórum
auðvitað létt með það,“ segir Kjartan þegar hann rifjar sigurinn
upp. „Menn voru ansi fúlir í MR og hinum svokölluðu fínu
skólum. Fjölbrautaskóli Suðurlands vann fyrstu keppnina og svo
kom Fjölbraut í Breiðholti. Þetta gat eiginlega ekki verið verra.“
Bjarki tekur undir það.
„Það bjóst enginn við þessu í byrjun. Þegar við vorum valdir
í liðið komst maður helst að þeirri niðurstöðu að það væri bara
ekkert sérstakt fólk í skólanum. Ég held að allir hafi haldið að
við myndum tapa öllum keppnunum. En svo gekk þetta bara
svona vel,“ segir hann.
Ármann man tímabilið eins og það hafi gerst í gær.
„Mér fannst virkilega eins og fólk þekkti mig úti á götu eftir
þetta. Ég hef kannski ofmetið það aðeins því mér fannst eins
og ég gæti hvergi farið um óhultur,“ segir hann í léttum tón.
Bjarki hristir hausinn og glottir. „Ég man reyndar ekki eftir því.
En það var alveg eftir því tekið að það var spjallað um þetta í
heita pottinum. Það þótti merkilegt að FB hefði unnið.“
„Þú ert miklu sætari í sjónvarpinu“
Spurðir hvort stelpurnar í skólanum hafi ekki tekið við sér
eftir sigurinn, svarar Ármann: „Onei, þær tóku ekki eftir manni
frekar en fyrri daginn. Ég man eftir því að þegar við vorum
að fagna eftir undanúrslitin þá labbaði stelpa upp að mér og
sagði: „Þú ert miklu sætari í sjónvarpinu.“ Hún ætlaði kannski
að hrósa mér, en það hrós kom ansi illa út.“
Skólinn kannski bara allt í lagi
Skólastjórnendur FB voru afar ánægðir með árangurinn, að
sögn gömlu félaganna. „Guðmundur skólastjóri gekk upp á svið
þegar við unnum og gaf okkur peninga úr eigin vasa. Ég gaf
minn pening auðvitað samviskusamlega í Fella- og Hólakirkju
eins og alltaf en Bjarki eyddi þessu í brennivín,“ segir Ármann
og hlær.
Bjarki brosir og rifjar upp hversu svekktir jafnaldrar þeirra
í öðrum skólum urðu þegar þeir fögnuðu sigrinum. „Það voru
allir ógeðslega svekktir yfir því að tapa fyrir FB. Sérstaklega
fínu skólarnir,“ segir hann. „En þegar við unnum fór fólk að
hugsa að þessi skóli væri kannski bara allt í lagi.“
SIGUR FB Í GETTU BETUR ÁRIÐ 1987 KOM SKÓLANUM Á HÆRRI STALL OG UMSÓKNUM UM SKÓLAVIST FJÖLGAÐI
2013 1987
SIGURLIÐ FB
Ármann, Kjartan
og Bjarki
Sunna
Valgerðardóttir
sunna@frettabladid.is
Það var mikið rætt um að það
væri svo illa talað um Breiðholtið,
en niðurstaðan leiddi annað í ljós
því umfjöllunin var yfirleitt mjög
fagleg.
11. júní 2013 ÞRIÐJUDAGUR
1 2 3 4 5
| FRÉTTASKÝRING | 12
BREIÐHOLT: GETTÓ EÐA GÆÐAHVERFI?
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA MYND/PJETUR
Fréttablaðið gerði lauslega könnun
meðal um fimmtíu Kringlugesta í síð-
ustu viku og tók þá tali um Breiðholtið.
Spurningin var einföld: „Hvað dettur þér
í hug þegar þú heyrir orðið Breiðholt?“
Töluverður munur var á svörum fólks
eftir aldri, en orðið „gettó“ var lang-
algengasta svarið hjá aldurbilinu 15 til
30 ára, eða hátt í 60 prósent. Önnur orð
sem komu fram hjá yngri kynslóðinni
voru „Harlem“, „gengjastríð“, „hrædd“,
„glæpamenn“, „dónalegir unglingar“ og
„villingahverfi“. Nokkrir áttu þó heima
í Breiðholtinu og gáfu hið einfalda svar
„heima“.
Eldri svarendur virtust flestir hafa
aðrar hugmyndir um Breiðholt og gáfu
svör eins og „vel skipulagt hverfi“, „fjöl-
menning“, „flott hverfi“, „íbúðahverfi“,
„upphaf úthverfa“, „Garðheimar“ og
„Seljahverfi“.
Spurt í Kringlunni: „Hvað dettur þér fyrst í hug þegar ég segi Breiðholt?“
„Flott hverfi sem hefur upp
á allt að bjóða.“
Guðbjörg Pálsdóttir og
Svala Vignisdóttir
„Fellahverfi og gettó.“
Margrét Arnþórsdóttir og
Davíð Snær Jónsson
„Villingahverfi. Eða vill-
ingar.“
Rúna Björt
Ármannsdóttir og
Kristín Rán
Sigurz
„Gettó.“
Guðmundur Heiðar
Helgason
„Ég bý í Breiðholtinu þannig
að það er bara heima. Og
það er mjög gott að búa þar.
Ég er frá Nepal og í mínu
næsta nágrenni eru um
fimmtíu manns sem koma
þaðan.“
Kundan Mistra