Fréttablaðið - 11.06.2013, Qupperneq 48
FRÉTTIR
AF FÓLKI
1 Breiðholtið mun breytast á næstu tíu
árum og fasteignaverð hækka
2 Missti vitið og brotnaði niður
3 Brockovich handtekin
4 Bó sagður standa á bak við ofsóknir
á hendur Leoncie
5 Ofurhugi í háska: „Það vissi enginn
hvort hún væri lífs eða liðin“
Leynifundur á sunnudegi
Heyrst hefur að allir forsprakkar
Mánudagsklúbbsins á Prikinu hafi hist á
leynifundi á sunnudagskvöldið og það á
Kaffibarnum. Það skýtur töluvert skökku
við og velta menn nú fyrir sér hvort til
standi að breyta formerkjum klúbbsins
sívinsæla eða jafnvel skipta um vett-
vang. Mánudagsklúbburinn hefur vakið
gríðarlega athygli en hann er haldinn
annan hvern mánudag á Prikinu. Fullt
er út úr dyrum í hvert skipti og hefur
eigandi Priksins, Guðfinnur Sölvi, látið
hafa eftir sér í fjölmiðlum að hann
hafi aldrei vitað annað eins á sínum
rekstrarferli. Á fundinum leynilega
voru á meðal annarra Sveinn Rúnar
Einarsson, rekstrarstjóri Priksins, Óli
Hjörtur Ólafsson, jafnan kenndur við
Dolly, Einar Guðmundsson, grafískur
hönnuður, Steinþór Helgi Arnsteinsson,
yfir-hipster og umboðs-
maður, og unnusta
hans Berglind Pét-
ursdóttir, dansari,
blómakransahönn-
uður og gif-
drottning.
- mlþ
Hitar upp fyrir Jeff Beck
Mezzoforte hitar upp fyrir gítargoð-
sögnina Jeff Beck á tónleikum Becks
í Vodafone-höllinni 27. júní. Stutt er
síðan Mezzoforte spilaði í Hörpu í
tilefni þess að þrjátíu ár voru liðin
frá því hið vinsæla lag Garden Party
kom út. Ekki verður alveg sama liðs-
uppstilling í Vodafone-
höllinni og í Hörpu
því á komandi tón-
leikum munu allir
upphaflegu meðlimir
Mezzoforte spila, þar
á meðal gítarleikar-
inn Friðrik
Karlsson.
- fb
Mest lesið
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
„Ómissandi
bók fyrir
spennufíkla“
KOLBRÚN
BERGÞÓRSDÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
MARGFÖLD
METSÖLUBÓ
K
Nú er
opio allan
sólarhringinn
í Engihjalla