Fréttablaðið - 11.06.2013, Side 29
| FÓLK | 3HEILSA
Mexíkóski veitingastaðurinn Culiacan kynnir nú þrjá nýja og spennandi rétti á matseðli sínum. Réttirnir eru lágkolvetna-réttir en slíkt fæði nýtur sífellt meiri vinsælda hér á landi
og víða um heim. Í lágkolvetnaréttum er lögð áhersla á að minnka
kolvetni og aðaláherslan er á fitu og prótein, að sögn Sólveigar Guð-
mundsdóttur, framkvæmdastjóra Culiacan.
„Um er að ræða þrjá virkilega spennandi og góða rétti sem
við höfum þróað í samvinnu við hönnuðinn Maríu Kristu, sem
meðal annars heldur úti vinsælu lífsstílsbloggi. Við erum virkilega
spennt að sjá hvernig viðskiptavinir okkar taka þessum skemmti-
legu nýjungum,“ segir Sólveig.
Réttirnir þrír eru lágkolvetna. „Hot plate“ er sterkur og ljúffengur
réttur sem byggir á grilluðu eggaldini og kjúklingi eða nautakjöti.
Nýtt og ferskt salat er einnig á listanum og svo dýrindis eftirréttur
en Culiacan hefur aldrei áður boðið upp á eftirrétt.
María Krista, sem þróaði nýju réttina í samvinnu við Culiacan, er
mikill ástríðukokkur og segist nýlega hafa fengið áhuga á lágkol-
vetnisfæði.
„Ég var orðin eitthvað þreytt á þessu týpíska heilsufæði til að
reyna að halda mér á réttu róli. Svo kom í ljós hveitióþol innan
fjölskyldunnar sem ýtti enn frekar undir áhuga minn. Lágkolvetnis-
fæðið var því tilraun til að breyta til og hefur hún virkað mjög vel.
Öll fjölskyldan hefur tekið vel á móti nýjungunum úr eldhúsinu.“
Lágkolvetnamatreiðsla hefur notið mikilla vinsælda að undan-
förnu. Hún snýst í stuttu máli um að minnka kolvetni í fæðu og auka
fitu þannig að mesta orkan komi úr próteinum og fitu.
„Það gerir að verkum að blóðsykur hækkar ekki eins mikið og
með kolvetnum því prótein og fita hafa engin áhrif á blóðsykurinn.
Því kemur ekki þrálát sætuþörf sem margir kannast við og með
innihaldi réttanna viljum við meina að líkaminn brenni frekar fitu-
forða þegar hann er ekki upptekinn við að brenna kolvetnum,“
segir María Krista.
FJÖLBREYTTIR RÉTTIR
Eggaldin er fremur óalgengt á borðum landsmanna en María Krista
segist lengi hafa verið spennt fyrir því hráefni.
„Grillað eggaldin hentar vel með sterkum og bragðgóðum
mexíkóskum mat. Viðskiptavinir geta ýmist fengið sér réttinn
með kjúklingi eða nautahakki. Við höfum einnig bætt chorizo-
pylsu í réttinn sem gerir hann ljúffengari og saðsamari. Margir
karlmenn vilja eitthvað meira en kjúkling og salat og þá hent-
ar þessi réttur mjög vel; að minnsta kosti finnst manninum
mínum hann alveg frábær. Nýja salatið er kjúklingasalat með
osti, gvakamóle og macadamia-hnetum og að lokum bjóðum
við upp á ljúffengan eftirrétt sem er einfaldur rjómabúðingur
með dökku súkkulaði og hindberjum.“
María Krista segir lágkolvetnafæði henta flestu fólki afar vel
og að réttirnir á Culiacan séu hollir og í hæfilegum skammti. Þeir
innihalda hollt og gott grænmeti eins og eggaldin og lárperur sem
takmarki kolvetni og auki hlutfall góðrar fitu.
„Neysla á slíku fæði virkar líka vel á fólk sem á til að rjúka upp
og niður í blóðsykri og á þar af leiðandi erfitt með að hemja sig, til
dæmis í lok dags. Það eru nokkur ár síðan ég sneri blaðinu við og
náði mjög góðum árangri með bættu mataræði og hreyfingu en
þessi nýi lífsstíll er sá allra skemmtilegasti hingað til, enda matur
sem bragð er af og fjölskyldan elskar.“
Culiacan er til húsa að Suðurlandsbraut
4a í Reykjavík. Sjá culiacan.is og Facebook.
Heimasíða Maríu Kristu er www.kristadesign.
is og lífsstílsblogg hennar er
mariakristahreidarsdottir.blogspot.com
LÁGKOLVETNA LÍFSNAUTNIR
CULIACAN KYNNIR Nú geta viðskiptavinir Culiacan bragðað á þremur nýjum og gómsætum lágkolvetnisréttum. Kolvetni er lág-
markað í réttunum og mesta orkan kemur úr próteinum og fitu. Lágkolvetnafæði hentar flestu fólki mjög vel og réttirnir á Culiacan
eru hollir og í hæfilegum skömmtum.
LJÚFFENGT SALAT Nýja salatið er kjúklingasalat með osti,
gvakamóle og macadamia-hnetum.
HOLLT OG GOTT Gómsætur og seðjandi lágkolvetna „hot plate“
sem er einn þriggja nýrra rétta hjá Culiacan.
KUNG FU
DREKINN
WUSHU FÉLAG REYKJAVÍKUR
Skeifunni 3j · Sími 553 8282
www.heilsudrekinn.is
Í samstarfi við Kína-Capital Institute of Physical Education
ITR Sumarnámskeið
Fyrir börn
og unglinga
SUMARSKRÁNING
HAFIN
Save the Children á Íslandi
Einfalt er að baka ljúffengar korn-
stangir í eldhúsinu heima til að
eiga í nestispakkann. Eftirfarandi
uppskrift er fengin af síðunni
www.granolamom4god.com.
HAFRASTYKKI MEÐ DÖÐLUM
½ bolli bráðið smjör
½ bolli hunang
4 bollar haframjöl
1 bolli saxaðar möndlur
1 bolli saxaðar döðlur
1 msk. kanill
3 egg
Hitið ofninn í 180 gráður og
smyrjið eldfast mót með kókos-
olíu eða smjöri. Hrærið saman
hunangi og bráðnu smjöri yfir
vægum hita.
Blandið haframjölinu, möndl-
unum, döðlunum og kanil saman
í skál og hellið smjörblöndunni
yfir. Veltið öllu saman vel til á
meðan.
Hrærið eggin saman í skál og
hrærið þau svo saman við hafra-
blönduna. Hellið í eldfast mót
og pressið blönduna vel ofan í
mótið, til dæmis með því að nota
botninn á litlum potti. Bakið í
ofni við 180 gráður í 25 til 30 mín-
útur. Látið kólna og skerið niður í
hæfilega stór stykki.
HEIMAGERT OG
HOLLT Í NESTISBOXIÐ
HOLLARA MILLIMÁL Sumrinu fylgir langþráð útivera með lautarferðum og
labbitúrum. Þá er gott að geta pakkað hollum millibita í nestistöskuna og
sneitt hjá aukaefnum. Ljúffengar kornstangir er auðvelt að útbúa heima.
GOTT Í NESTISPAKKANN Heimalöguð kornstykki eru góður kostur í lautarferðina.
HAFRASTYKKI
MEÐ DÖÐLUM
Einfalt og fljótlegt
millimál.
NORDIC PHOTOS/GETTY
NAMMI
GOTT María
Krista heldur
hér á fyrsta
eftirrétti
Culiacan,
rjómabúðingi
með dökku
súkkulaði og
hindberjum.