Fréttablaðið - 27.06.2013, Page 1
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Fimmtudagur
24
BÝFLUGUR Á SÓLHEIMUMErlendur Pálsson býflugnabóndi heldur kynningu á bý-
flugnarækt í Sesseljuhúsi á Sólheimum í Grímsnesi á laug-
ardaginn, 29. júní kl. 15. Hann sýnir býflugnabúið og segir
frá ræktuninni. Allir vekomnir og aðgangur ókeypis.
Á SJÓ Íslenskir siglinga-kappar nota Proderm sólarvörn til að verja húðina.
P roderm sólarvörnin er sænsk upp-finning sem er sérstaklega þróuð fyrir viðkvæma norræna húð. Einkaleyfisvernduð formúlan myndar rakafyllta vörn í dýpsta hornlagi húðar-innar. Sólarvörnin er langvirk, „Durable” og er sú fullyrðing samþykkt af þarle dum heilbrigði f
held, veldur ekki ertingu í augum og ver húðina fyrir sólarofnæmi. Proderm
inniheldur engin paraben, engin ilm- eða
litarefni og enga nanó-örtækni, enda er
sólarvörnin framleidd í samvinnu og eftir
ráðlegginum færu t h
PRODERM FYRIR FÆR-USTU KEPPENDURCELSUS KYNNIR Proderm sólarvörn hefur verið vinsæl við erfiðustu
aðstæður og keppni þar sem reynir á gæði sólarvarna.
BH - fæst í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 6.195,-og buxur á kr. 3.283,-
BIKINI - NÝKOMIÐ AFTUR
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.isOpið frá 10-18 virka daga. lokað á laugardögum í sumar
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
TÆKIFÆRISGJAFIR
www.tk.is
NÝTT
MUNNBLÁSIÐ - HANDUNNIÐFæst eingöngu hjá
IV
V
ha
nd
un
ni
ð
fr
á
Íta
líu
Kynningarblað Heilsuhótel Íslands, www.sprengur.is, Belladonna og Femarelle.
KONUR
FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2013
Á BESTA ALDRI
Þegar dóttir Svanhildar Svavars dóttur stakk upp á því að þær mæðgurnar færu saman í frí átti Svanhildur von á því að þær væru á leiðinni til Havaí. Hún hefur búið í Bandaríkjunum í tvo áratugi og taldi eðlilegt að dóttir hennar vildi skreppa út í sólina. Dóttir hennar, Sigríður Björns-
dóttir, hafði þó aðrar hugmyndir og hvatti móður sína til að koma með sér á Heilsu-hótel Íslands í tvær vikur. Þar dvöldu þær fyrrihluta júní í góðu yfirlæti að sögn Svan-hildar. „Ég tilkynnti vinum og ættingjum að ég myndi hefja fríið á Íslandi á Heilsu-
hótelinu og myndi hitta hópinn síðar. Upp-
haflega ætlaði ég að ferðast með dóttur minni á heitari slóðir. Hún hvatti mig þó til að koma hingað og ég sé ekki eftir því. Þetta var stórkostleg dvöl, andrúmsloftið var gott og starfsfólkið frábært, sérstaklega notalegt og þægilegt “
Áhugaverðara en HonolúlúSvanhildur Svavarsdóttir hefur verið búsett í Bandaríkjunum í tvo áratugi. Hún ákvað að eyða hluta af sumarfríi sínu hérlendis með dóttur sinni á Heilsuhóteli Íslands og sér ekki eftir því. Andrúmsloftið var gott og starfsfólkið var frábært.
2 SÉRBLÖÐ
Konur á besta aldri | Fólk
Sími: 512 5000
27. júní 2013
149. tölublað 13. árgangur
Kræsingar úr rabarbara
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir er
hætt að stela rabarbara úr annarra
manna görðum. Nú ræktar hún sjálf
tröllasúruna og býr til margs konar
kræsingar. 18
Vilja vörn fyrir bullum Íbúar við
Tröllakór í Kópavogi kvarta undan
fólki sem horfir á fótboltaleiki úr
bílum sem lagt er í stæði íbúanna. 2
Mikil óvissa um sæstreng Ráð-
gjafahópur segir Íslendinga geta
grætt á bilinu 4 til 76 milljarða á ári á
nýjum sæstreng. 8
5,6 milljarða arður Framtakssjóður
Íslands greiðir 5,6 milljarða í arð til
eigenda sinna, lífeyrissjóða, banka og
tryggingafélags. 22
MENNING Helgi Rúnar Gunnarsson
tónlistarmaður stígur á svið með
Botnleðju í kvöld. 54
SPORT Gunnar Steinn Jónsson telur
sig eiga fullt erindi í íslenska lands-
liðið í handbolta. 48
Nú er opio allan
sólarhringinn
í Engihjalla
Góð tilboð
og frábær
afsláttur. Opið til
kl. 21
í kvöld
10, 30 og 100 stk pakkning fæst
án lyfseðils í næsta apóteki
SPJALDTÖLVUR Í SUMARFRÍIÐ
19.990
BARNATÖLVUR
Í FLOTTUM LITUM
FÓLK „Um leið og hún kom til
okkar í fóstur leið mér eins og hún
væri okkar. Ættleiðingin tók rúmt
ár að ganga í gegn, sem er reyndar
methraði,“ segir Sindri Sindrason
sjónvarpsmaður. Hann og eigin-
maður hans eru fyrsta samkyn-
hneigða parið hér á landi til að
ættleiða barn. Lög um ættleiðingu
samkynhneigðra tóku þó gildi hér
á landi árið 2006.
Emilía Katrín, dóttir þeirra,
kom til hjónanna í byrjun árs 2012,
þá rúmlega þriggja ára. Hún er
fjögurra og hálfs árs í dag. Sindri
og eiginmaður hans höfðu sótt um
að fá fósturbarn hjá barnaverndar-
yfirvöldum haustið 2011 og fengu
samþykki eftir mikla og nákvæma
skoðun á högum sínum.
„Þetta er strangt kerfi með mjög
flottu og faglegu fólki, svo ekki sé
talað um nákvæmu,“ segir Sindri.
„Það liggur við að það sé skoðað í
sokkaskúffuna hjá manni.“
Emilía á íslenska kynmóður og
serbneskan kynföður. Sindri seg-
ist hafa mætt miklum skilningi af
hálfu móðurinnar, sem býr erlend-
is. Faðirinn hefur aldrei verið inni
í myndinni.
„Við fundum strax að móðirin
vildi fyrst og fremst að Emilíu liði
vel. Hún elskar hana augljóslega,
skilur að hún geti ekki séð um hana
og er sátt við umhverfið sem hún
er komin í,“ segir hann. „Hún sam-
þykkti ættleiðingu og þess vegna
fór þetta svona fljótt í gegn.“
Emilía var búin að dvelja í einn
og hálfan mánuð á heimili fyrir
fósturbörn þegar hún kom til
hjónanna. Hún var þá á eftir í mál-
og talþroska, sem og félagslega,
en Sindri segir að með markvissri
örvun og vinnu hafi hún nú náð
jafnöldrum sínum í þroska.
„Það er ekki síst starfsfólkinu á
leikskólanum Laufásborg að þakka,
sem er í alla staði frábært, og við
gætum ekki verið ánægðari með
Örnu Guðrúnu, Ásdísi og öll hin
sem þar starfa,“ segir hann.
Spurður hvernig tilfinning það sé
að vera meðal allra fyrstu samkyn-
hneigðu paranna á Norðurlöndum til
að fá að ættleiða barn segist Sindri
aðallega vera hissa á því að fleiri
hafi ekki farið í gegnum kerfið.
„Það er ekki auðvelt fyrir karl-
menn í okkar stöðu að eignast
börn,“ segir hann. „En sem betur
fer ætla stjórnvöld að lögleiða stað-
göngumæðrun. Ef þetta hefði ekki
gengið hér hefðum við farið til Ind-
lands eða annað til að finna okkur
staðgöngumóður. Það er alveg
ljóst.“ - sv
Fyrstir til að ættleiða barn
Sindri Sindrason og eiginmaður hans eru fyrsta samkynhneigða parið hér á landi sem ættleiðir barn. Leið strax
eins og hún væri okkar, segir Sindri. Hefðu fundið sér staðgöngumóður erlendis ef kerfið hér á landi hefði brugðist.
FÓLK „Þetta verður eins og rokk-
tónleikar. Sýn-
ingin er úti, á
torgi, og þar
verða um það
bil átta þúsund
manns,“ segir
Baltasar Kor-
mákur, sem
frumsýnir nýj-
ustu kvikmynd
sína, 2 Guns, á
opnunar hátíð
hinnar árlegu Locarno-kvik-
myndahátíðar 7. ágúst.
„Þetta er náttúrlega alveg
svakalega gaman. Þetta er ein af
stóru hátíðunum í Evrópu, ásamt
kvikmyndahátíðinni í Cannes, í
Berlín og fleirum,“ segir Baltasar.
Fyrsta leikstjóraverkefni Balt-
asars Kormáks, 101 Reykjavík,
var valið til þátttöku í keppni
kvikmyndahátíðarinnar árið 2000.
- ósk / sjá síðu 54
Baltasar á Locarno-hátíðina:
Búist við 8.000
gestum á frum-
sýningu 2 Guns
BALTASAR
KORMÁKUR
SKOÐUN Árni Páll Árnason segir
boðaðar aðgerðir félagsmálaráðherra
ekki nýtast þorra lífeyrisþega. 24
Ef þetta
hefði ekki
gengið hér
hefðum við far-
ið til Indlands
eða annað til
að finna okkur
staðgöngumóður.
Sindri Sindrason
Bolungarvík 9° S 11
Akureyri 12° S 6
Egilsstaðir 13° S 5
Kirkjubæjarkl. 10° SA 6
Reykjavík 10° SA 8
VÍÐA VÆTA Í dag verður yfirleitt sunnan
8-15 m/s, hvassast NV-til og rigning
fyrst um landið SV-vert. Dregur úr vindi
síðdegis. Hiti 8-15 stig. 4
HEILBRIGÐISMÁL Geislafræðingar
á Landspítalanum (LSH) ætla að
ganga út 1. ágúst nema umtals-
verð hækkun launa komi til.
Katrín Sigurðardóttir, for maður
Félags geislafræðinga, segir það
hafa legið í loftinu síðast liðna
fimm mánuði að á milli 40 og
50 geislafræðingar kveðji LSH
1. ágúst. Hún segir að viðræð-
ur síðustu vikna og mánaða hafi
skilað nokkrum árangri. „Við
sjáum til lands
með sum mál
en aðal atriðið
er hækkun á
grunnlaunum,
og þar skilur á
milli. Geisla-
fræðingar vita
hvað þeir vilja
en það er nokk-
uð sem spítalinn
segist ekki ráða við,“ segir Katrín.
Hópurinn sagði upp í febrúar og
áttu uppsagnirnar að taka gildi 1.
maí. Fresturinn var framlengdur
til 1. ágúst.
„Við viljum umtalsverða grunn-
launahækkun. En ég vil ekki nefna
tölu í því samhengi,“ segir Katrín
en staðfestir að það sé meiri hækk-
un en þau 4,8% sem jafnlauna-
átak fyrri ríkisstjórnar gerði ráð
fyrir til handa kvennastéttum á
heilbrigðis stofnunum. - shá
Geislafræðingar á LSH ganga út nema umtalsverð launahækkun komi til:
Grunnlaunahækkun í veginum
KATRÍN
SIGURÐARDÓTTIR
SAMKYNHNEIGÐIR FAGNA Mikil fagnaðarlæti brutust út víða í Bandaríkjunum í gær eftir að hæstiréttur lands-
ins komst að þeirri niðurstöðu að bann við hjónavígslum samkynhneigðra væri andstætt stjórnarskrá. Þessir íbúar Vestur-
Hollywood í Kaliforníuríki voru meðal þeirra sem sýndu gleði sína á götum úti. Sjá síðu 6 NORDICPHOTOS/AFP