Fréttablaðið - 27.06.2013, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 27.06.2013, Blaðsíða 33
Kynningarblað Heilsuhótel Íslands, www. sprengur.is, Belladonna og Femarelle. KONUR FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2013 Á BESTA ALDRI Þegar dóttir Svanhildar Svavars dóttur stakk upp á því að þær mæðgurnar færu saman í frí átti Svanhildur von á því að þær væru á leiðinni til Havaí. Hún hefur búið í Bandaríkjunum í tvo áratugi og taldi eðlilegt að dóttir hennar vildi skreppa út í sólina. Dóttir hennar, Sigríður Björns- dóttir, hafði þó aðrar hugmyndir og hvatti móður sína til að koma með sér á Heilsu- hótel Íslands í tvær vikur. Þar dvöldu þær fyrrihluta júní í góðu yfirlæti að sögn Svan- hildar. „Ég tilkynnti vinum og ættingjum að ég myndi hefja fríið á Íslandi á Heilsu- hótelinu og myndi hitta hópinn síðar. Upp- haflega ætlaði ég að ferðast með dóttur minni á heitari slóðir. Hún hvatti mig þó til að koma hingað og ég sé ekki eftir því. Þetta var stórkostleg dvöl, andrúmsloftið var gott og starfsfólkið frábært, sérstaklega notalegt og þægilegt.“ Sjálf þjáðist Svanhildur ekki af neinum sérstökum kvillum en síðasta ár var henni þó erfitt. „Ég missti manninn minn og í hönd fór langur sorgartími. Ég glímdi við þunglyndi og gekk í gegnum mikinn kvíða og fannst erfitt að komast upp úr þessu öllu saman. En dvölin breytti mjög miklu og seinni vikuna hlakkaði ég til að fara á fætur.“ Dagurinn var tekinn snemma alla daga og byrjað á hressandi göngutúr um svæðið en Heilsuhótel Íslands er á gamla Vallar- svæðinu í Reykjanesbæ, sem nú gengur undir nafninu Ásbrú. Svæðið er mjög sér- stakt og gaman að labba þar um sem her- inn var áður fyrr. Eftir göngur voru teygjur, leikfimi og svo var morgunmatur snæddur. „Næst tók við fræðsla um heilbrigt líf, nær- ingu og hreyfingu og hvernig á almennt að lifa betra lífi. Þarna lærði ég til dæmis 65 ára gömul að tyggja matinn almennilega enda er aðalensímið í munnvatninu. Nú skil ég betur hvað mamma átti við í gamla daga þegar hún bað mig um að tyggja mat- inn betur en þá var ég alltaf að f lýta mér svo mikið.“ Reykjanes er fallegt Seinni hluti dagsins fór í skemmtilegar ferð- ir um Reykjanesið og segir Svanhildur það hafa komið sér skemmtilega á óvart hvað Reykjanesið geymir marga fallega staði. „Við heimsóttum Vogana, Sandgerði, Garðinn og fleiri staði. Síðan löbbuðum við upp á Þor- björn við Grindavík og fórum í Bláa lónið. Ég hef oft áður ferðast um Reykjanesið en nú fékk ég alveg nýja sýn á svæðið og var í raun alveg uppnumin yfir fegurð þess. Að auki vorum við heppin með veður en það var yndislegt þann tíma sem við mæðgurn- ar dvöldum þarna.“ Á kvöldin var mikið spilað, til dæmis félagsvist eða bingó eða hlustað á fyrirlestra. „Gestir þurftu svo sem ekki að taka þátt í öllu heldur gátu stýrt því sjálfir. Sumir slök- uðu bara á, hugleiddu eða lásu góða bók.“ Hún segir dvölina á Heilsuhótelinu svo sannarlega hafa verið besta frí sem hún hafi farið í um ævina og ekki hafi verið verra að eyða því með dóttur sinni. „Aðstaðan á Heilsuhótelinu var svo sannarlega til fyrir- myndar. Ég hef ferðast víða og séð margt og get staðfest að engu var ábótavant þar. Ég get svo sannarlega mælt með dvöl þarna fyrir flest allt fólk. Lífsorkan mín endurnýjaðist og lífsstíllinn breytist í kjölfarið, hvort sem það snýr að mataræði eða hreyfingu.“ Áhugaverðara en Honolúlú Svanhildur Svavarsdóttir hefur verið búsett í Bandaríkjunum í tvo áratugi. Hún ákvað að eyða hluta af sumarfríi sínu hérlendis með dóttur sinni á Heilsuhóteli Íslands og sér ekki eftir því. Andrúmsloftið var gott og starfsfólkið var frábært. Svanhildur Svavarsdóttir segir dvölina á Heilsuhótelinu hafa verið besta frí sem hún hafi farið í um ævina. MYND/ARNÞÓR Fyrirlesarar og kennarar HEILSUNÁMSKEIÐ heilsa, hvíld og gleði Ásdís Ragna Einarsdóttir grasalæknir Chad Keilen BSc Heilsuvísindi Sólveig Klara Káradóttir hjúkrunarfræðingur Steinunn Aðalsteinsdóttir heilsumarkþjálfi Góður lífsstíll SUMAR 5. – 19. júlí Heilsunámskeið 2 vikur 5 herbergi laus HAUST 6. – 20. september Pantið tímanlega, vinsælasti tíminn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.