Fréttablaðið - 27.06.2013, Blaðsíða 6
27. júní 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
DÓMSMÁL Skiptastjóri
Baugs féll í gær frá
fimmtán milljarða skaða-
bótamáli á hendur Jóni
Ásgeiri Jóhannessyni
sem höfðað var vegna
viðskiptanna með Haga
sumarið 2008.
Ástæðan er sú að
í nóvember var máli
skiptastjórans gegn
þremur erlendum tryggingafélög-
um vísað frá dómi. Þau höfðu selt
Baugi tryggingar sem áttu að
bæta tjón sem stjórnend-
ur kynnu að valda. Þegar
skiptastjóranum Erlendi
Gíslasyni varð ljóst að ekk-
ert yrði úr málsókn á hend-
ur tryggingafélög-
unum ákvað hann
að hætta við málið,
enda sá hann ekki
fram á að geta
sótt neitt sem heit-
ið gæti til Jóns Ásgeirs
sjálfs, að hans sögn.
Fréttablaðið sagði fyrst
frá málinu sumarið 2011. Það
snerist um það þegar Hagar voru
seldir frá Baugi til 1998 ehf. í lok
júní 2008, í fléttu sem kölluð var
Project Polo. Fimmtán milljarðar
af söluverðinu fóru beint í það að
kaupa hlutabréf í Baugi af fjór-
um félögum, sem öll voru í eigu
stjórnar manna Baugs.
Skiptastjórinn leit svo á að bréf-
in í Baugi hefðu þá verið
verðlaus og Jón Ásgeir
hefði komið verðmætum frá
félaginu í vasa sjálfs sín og
sér nákominna.
Jón Ásgeir mótmælti
þessu og sagði að Baugur
hefði engu tapað á viðskipt-
unum. - sh
p
DÓMSMÁL Þrotabú Baugs Group
hefur höfðað skaðabótamál á
hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni,
fyrrverandi stjórnarformanni
félagsins. Búið krefur Jón Ásgeir
persónulega um fimmtán milljarða
króna.
Málið snýst um það þegar Hagar
voru seldir frá Baugi til eignar-
haldsfélagsins 1998 ehf. í lok júní
2008, í fléttu sem kölluð var Proj-
ect Polo. Málið var höfðað í lok síð-
asta árs og þingfest í febrúar.
Fimmtán milljarðar af sölu-
verðinu fóru beint í það að
stjórnarmanna Baugs. Félögin
voru Gaumur og Gaumur Holding,
í eigu Jóns Ásgeirs og fjölskyldu
hans, ISP eignarhaldsfélag, í eigu
Ingibjargar Pálmadóttur, eigin-
Á SA
Skiptastjóri Baugs lítur svo
á að á þessum tíma hafi bréfin í
Baugi verið nær einskis virði og
Jón Ásgeir hafi með þessu, „ásamt
fjölskyldu sinni“ eins og það er
orðað, misnotað aðstöðu sína hjá
Baugi til að koma verðmætum
frá félaginu, sem þá stefndi hrað-
byri í þrot, í vasa sjálfs sín og sér
nákominna.
Ingibjörgu og Hreini er hins
vegar ekki stefnt í málinu, ekki
frekar en öðrum stjórnarmönn-
um, þar sem Jón Ásgeir er talinn
hafa borið „mesta ábyrgð“ á fjár-
f ti félagsins
blaðsins segir Jón Ásgeir að málið
sé „steypumál“. Salan á Högum
hafi verið að undirlagi viðskipta-
banka Baugs. „Ég persónulega
fékk ekki krónu út úr þessu, það
gefur augaleið,“ segir hann. „Að
fara að elta mig persónulega í mál-
inu er algjörlega út í hróa.“
Fréttablaðið hefur greinar-
gerð Jóns Ásgeirs í málinu undir
höndum. Í henni segir að Baugur
hafi alls ekki tapað á Project Polo-
fléttunni. Frumkvæðið að henni
hafi enn fremur komið frá Kaup-
þingi, ekki Baugi, og tilgangurinn
hafi verið að lækka skuldir Baugs
Skiptastjóri Baugs krefur Jón
Ásgeir um fimmtán milljarða
Skaðabótamál höfðað vegna svonefndrar Project Polo-f
léttu. Jón Ásgeir Jóhannesson sagður hafa misnotað
aðstöðu sína til að láta Baug kaupa verðlaus hlutabréf a
f honum, fjölskyldu og vinum. Steypumál, segir Jón.
Að fara að elta mig
persónulega í málinu
er algjörlega út í hróa.
JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON
FYRRVERANDI STJÓRNARFORMAÐUR
BAUGS
FRÉTTABLAÐIÐ 15. JÚNÍ 2011
1. Hvað heitir forseti Þýskalands?
2. Hver leikstýrir myndinni „París
norðursins“?
3. Hvaða leikmaður karlaliðs Stjörn-
unnar var nýlega dæmdur í tveggja
leikja bann fyrir brot í leik?
SVÖR:
1. Joachim GAuck 2. Hafsteinn Gunnar
Sigurðsson 3. Veigar Páll Gunnarsson
Göngutjald T empest 200
2,9 kg - 5000mm vatnsheldni
Venom 300
dúnpoki, 900gr
Vat hns eldar Cargo töskur
frá Vango 45 -120L
verð frá
20% afsláttur af
Mammut fatnaði
Margar gerðir
af prímusum
Verð frá
Vango og Mammut
göngudýnur
Verð frá
Vango bakpoki-
Transalp 30L
Göngustafir frá
Allir gönguskór
með 20% afslætti
BANDARÍKIN Barack Obama Banda-
ríkjaforseti fagnaði í gær niður-
stöðu Hæstaréttar Bandaríkjanna,
sem nam úr gildi lög frá 1996 er
fela í sér mismunum gagnvart sam-
kynhneigðum pörum sem gengið
hafa í hjónaband.
Hann sagðist þegar hafa falið
Eric Holden, dómsmálaráðherra
ríkisstjórnar sinnar, að sjá til
þess að lög einstakra ríkja Banda-
ríkjanna gangi ekki gegn þessari
niðurstöðu dómstólsins.
„Megináhrif laganna felast í
því að sum þeirra hjónabanda sem
ríkis vald hefur lagt blessun sína
yfir eru skilgreind sérstaklega og
látin hafa minna gildi en önnur,“
segir í úrskurðinum, sem fimm af
níu dómurum Hæstaréttar stóðu
að.
Það var Bill Clinton, þáverandi
Bandaríkjaforseti, sem árið 1996
undirritaði „Lög um vernd hjóna-
bandsins“, sem kváðu á um að ein-
ungis gagnkynhneigð hjón gætu
notið þeirra félagslegu réttinda
sem veitt eru hjónum í alríkis-
lögum.
Clinton hefur síðar skipt um
skoðun og studdi nú, ásamt flokks-
bróður sínum, Barack Obama for-
seta, eindregið afnám laganna.
Í hinu málinu, er einnig varðar
hjónabönd samkynhneigðra, forðað-
ist dómstóllinn að taka afstöðu til
þess hvort bann við hjóna böndum
samkynhneigðra, sem íbúar í
Kaliforníu samþykktu í atkvæða-
greiðslu árið 2008, stæðist stjórnar-
skrána. Hins vegar lét Hæsti réttur
úrskurð undirréttar í Kaliforníu í
málinu standa óhreyfðan, en undir-
rétturinn hafði ógilt bannið.
Alls hafa tólf af ríkjum Banda-
ríkjanna ásamt höfuðborginni
Washington leitt hjónabönd sam-
kynhneigðra í lög. Að auki gengu
þúsundir samkynhneigðra para í
Kaliforníu í hjónaband þann til-
tölulega stutta tíma sem það var
leyfilegt þar.
Búist er við því að Kaliforníu búar
muni strax í næsta mánuði reyna að
fá því framgengt að hjónabönd sam-
kynhneigðra verði lögleidd þar á ný.
gudsteinn@frettabladid.is
Samkynhneigð pör
fá sömu réttindi
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur kveðið upp tvo tímamótaúrskurði í málum er
varða réttindi samkynhneigðra. Dómstóllin hafnaði því að samkynhneigð hjón
nytu minni réttinda en gagnkynhneigð en tók ekki afstöðu til banns í Kaliforníu.
Á mánudaginn felldi Hæstiréttur Bandaríkjanna úr gildi lykilákvæði í
lögum, sem sett voru árið 1965 til að tryggja minnihlutahópum óskor-
aðan kosningarétt. Með þessum lögum var þeim ríkjum Bandaríkjanna
sem höfðu mismunað fólki eftir litarhætti í kosningum gert skylt að fá
samþykki alríkisstjórnvalda til þess að geta breytt kosningalögum sínum.
Í fjórðu grein laganna var að finna viðmiðunarreglur um það hvaða ríki
Bandaríkjanna þyrftu að sæta þessu.
Það var þessi fjórða grein sem Hæstiréttur taldi ekki lengur standast
stjórnarskrá Bandaríkjanna. Ógilding hennar þýðir að nú verða andstæðar
fylkingar á Bandaríkjaþingi að koma sér saman um ný viðmið.
Mikill fjandskapur ríkir á milli repúblikana og demókrata, þannig að
ólíklegt þykir að þeir eigi auðvelt með að ná samkomulagi um þetta mál
frekar en önnur. Af þeim sökum óttast margir að úrskurður Hæstaréttar
hafi í reynd sett kosningarétt minnihlutahópa í uppnám.
Kosningaréttur minnihluta í uppnámi
ENN EINN SIGURINN Samkynhneigðir og stuðningsmenn þeirra fagna innilega
fyrir framan byggingu Hæstaréttar Bandaríkjanna í Washington. NORDICPHOTOS/AFP
Skiptastjóri Baugs telur ekkert til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar að sækja án stjórnendatryggingar:
Hætt við fimmtán milljarða skaðabótamál
JÓN ÁSGEIR
JÓHANNESSON
FÓLK Tvær íslenskar konur hafa
fundið flöskuskeyti frá sama danska
manninum nú í júnímánuði. Skeytin
fundust bæði á vestanverðu landinu
en Breiðafjörður skilur skeytin að.
Jørgen Sønderkær, danski skip-
verjinn sem sendi flöskuskeyti 200
mílum vestur af Orkneyjum fyrir
sjö árum, ætlaði sér greinilega að
einhver fyndi það.
Þetta segir Stein-
unn Rán Helga-
dóttir en hún fann
flöskuskeyti frá
honum í byrjun júní
er hún gekk í fjör-
unni við Sellátranes
í Patreksfirði.
Fréttablaðið
greindi frá því í
gær að ung kona
hefði gengið fram á
flöskuskeyti í fjöru á Snæfellsnesi,
en það var frá Sønderkær. Stein-
unni brá því í brún þegar hún fletti
Fréttablaðinu í gærmorgun. „Ég hef
geymt skeytið í dagbókinni minni og
fór um leið og athugaði hvort þetta
væri ekki eins,“ segir hún.
„Ég sendi manninum línu í byrjun
júní en hef ekki fengið
svar.“ Hún segist
hafa reynt að hafa
uppi á Sønderkær
en hann sé ekki á
Facebook. „Mér
datt í hug að þeir
sem kynnu að
leita í dönskum
símaskrám gætu
fundið hann. Nú,
ef hann er þá
ennþá til.“
- ne
Tvö flöskuskeyti frá sama manninum finnast við strendur Íslands:
Lýst eftir skeytaóðum skipverja
VIGDÍS UNA Steinunn móðir hennar
fann flöskuskeyti.
FRÉTTABLAÐIÐ 26. JÚNÍ 2013
VEISTU SVARIÐ?