Fréttablaðið - 27.06.2013, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 27.06.2013, Blaðsíða 37
KYNNING − AUGLÝSING Konur á besta aldri27. JÚNÍ 2013 FIMMTUDAGUR 5 ÞVAGBLÖÐRUVANDAMÁL KVENNA Þvagblöðruvandamál eru mjög algeng og tíðni þeirra eykst með hækkandi aldri fólks. Þau eru hins vegar ekki eðlilegur þáttur öldrunar og því eiga konur ávallt að leita sér hjálpar ef þær finna fyrir einkennum frá þvag- blöðru. Vandamálin geta verið af ýmsum toga. Algengast er að konur séu með áreynsluþvagleka, sem verður þegar þrýstingur eykst á kvið líkt og við hopp eða hósta, bráðaþvagleka, þar sem kona missir þvag þar sem hún hefur mjög nauman tíma til að ná á salerni og síðan ofvirka þvagblöðru, en reikna má með að um það bil einn af hverjum sex einstaklingum eftir fertugt sé með ofvirka þvagblöðru. OFVIRK ÞVAGBLAÐRA Ef þú færð oft þvaglátsþörf, ferð oft á salernið og missir jafnvel þvag, þá er hugsanlegt að þú sért með ofvirka þvagblöðru. Ekki er alltaf vitað hvað veldur en ofvirk þvagblaðra getur stafað af truflun á taugaboðum. Blaðran sendir boð til heilans um að þurfa að tæma sig þrátt fyrir að vera ekki orðin full og fólk þarf að hlaupa í tíma og ótíma á salernið. Einnig eru margir þættir sem geta haft áhrif. Til dæmis getur það haft neikvæð áhrif á þvag- blöðruna ef fólk fer oft á salernið „bara svona til öryggis“. Þetta veldur því að þvagblaðran venst því að vera tæmd óhóflega oft, skreppur saman og geymslugeta hennar minnkar sem kallar á tíðari þvaglát en eðlilegt er. Mikil vökvaneysla hefur einnig áhrif, því blaðran venst því að vera tæmd oft. Almennt er mælt með því að vökvaneysla sé ekki meiri en 1,5-2,5 lítrar á sólarhring, eftir því hversu þung konan er. Allar frekari upplýsingar má finna á heimasíðunni www. sprengur.is Heimasíðan www.sprengur.is er fræðslusíða fyrir almenning og ætluð bæði konum og körlum sem þjást af einhvers konar þvagfæra- vandamálum. Síðunni er ætlað að veita fólki upplýsingar um slík vandamál enda eiga fjölmargir við þau að glíma en eiga erfitt með að ræða það. Í nýlegri rannsókn sem gerð var á Norðurlöndunum kom í ljós að tæplega 60 prósent einstak- linga með þvagleka leita sér ekki að- stoðar læknis. Því er ljóst að vanda- málið er mjög viðkvæmt og mikil- vægt að opna umræðu og fræðslu um það. Á sprengur.is má finna gagnlegar upplýsingar um allt það helsta sem við kemur blöðrunni. Þar er að finna fræðslu um þau vandamál sem upp geta komið, hvaða úrræði eru í boði og hvernig er best að leita sér hjálp- ar. Á síðunni er einnig hægt að panta fræðsluefni og kennslubæklinga þar sem kennd er blöðruþjálfun og grindarbotnsþjálfun, sem bæði eru mjög mikilvæg atriði til að viðhalda heilbrigði í neðri þvagvegum. Fræðslusíðan Sprengur.is Á sprengur. is má fá upplýsingar um allt það helsta sem við kemur blöðrunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.