Fréttablaðið - 27.06.2013, Qupperneq 4
27. júní 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
STÚLKUBARN FÆTT Á ÍSLANDI
ÁRIÐ 2011 GETUR VÆNST ÞESS
AÐ VERÐA 84,1 ÁRS.
STRÁKAR FÆDDIR ÁRIÐ 2011
GETA VÆNST ÞESS AÐ VERÐA
80,7 ÁRA.
Á fimm árunum frá 2006 til 2011
jukust lífslíkur íslenskra kvenna og
íslenskra karla um 1,2 ár.
Heimild: Eurostat
DÓMSMÁL „Mér finnst helvíti hart
ef Alþingi getur sett lög og tekið
eigur manna og menn eigi bara að
brosa og smæla,“ segir Haraldur
Þór Ólason, fyrrverandi oddviti
Sjálfstæðisflokksins í Hafnar-
firði, sem rekur þar brotajárns-
vinnsluna Furu og hefur nú stefnt
hinu opinbera vegna nýrra raf-
orkulaga frá árinu 2004.
Haraldur segir málið eiga rætur
að rekja til loka níunda áratugar
síðustu aldar, þegar hann keypti
þrotabú Íslensku stálsmiðjunnar í
Hafnarfirði. Í þeim kaupum hafi
fylgt spennustöð og tuttugu mega-
vatta heimtaug úr Hamranesi
beint inn á dreifikerfið sem nú er í
eigu Landsnets. Þá tengingu hefur
Haraldur notað í brotajárnsvinnslu
sína síðan.
„Árið 2004 setti Alþingi svo ný
raforkulög sem sögðu að það væri
engum heimilt að vera tengdur
beint inn á Landsnet nema hann
væri stórnotandi,“ segir Harald-
ur. Það hafi hann ekki verið og því
hafi Orkustofnun ætlað að rjúfa
tenginguna.
„Ég mótmælti, taldi að þetta
væri eignaupptaka,“ segir hann.
Síðan hafi hann staðið í stappi við
yfirvöld, fyrst gegnum iðnaðar-
ráðuneytið og nú fyrir dómstól-
um eftir að hann stefndi Orku-
stofnun, fjármála- og
efnahagsráðuneytinu og
Landsneti til ógildingar
þeirri ákvörðun Orku-
stofnunar að klippa
skyldi á taugina.
„Við viljum halda þessari teng-
ingu þarna. Við erum með stóra
lóð og þetta eykur
verðmæti hennar,
og ef það er ekki
hægt þá viljum
við að það komi
einhverjar bætur
til,“ segir Harald-
ur. „Alþingi getur
sett lög en það
getur ekki sett lög
afturvirkt. Ég
var búinn að
eiga þessa
heimtaug
og nota
hana í fjórtán ár þegar Alþingi
setti lögin.“
Haraldur segir að ef honum yrði
gert að tengja sig inn á dreifikerfi
HS Orku þá mundi það kosta hann
30 til 40 milljónir. „Skilaboðin til
mín eru að ég eigi bara að borga
þetta sjálfur og sjá um þetta.“ Það
geti hann hins vegar ekki sætt sig
við.
„Það er ansi hart að þurfa að
standa í svona slag vegna þess að
einhverjum embættismanninum
dettur eitthvað í hug,“ segir Har-
aldur. Mál hans var tekið fyrir í
Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðju-
dag. stigur@frettabladid.is
Óttast að ríkið klippi
á heimtaug að Furu
Fyrrverandi oddviti sjálfstæðismanna í Hafnarfirði hefur stefnt hinu opinbera,
sem hyggst klippa á heimtaug úr spennustöð að brotajárnsvinnslu hans í bænum.
Hann segir aðganginn að stöðinni hafa fylgt með kaupunum fyrir þrjátíu árum.
RAFMAGNSLAUST Í BRÁÐ? Brotajárnsvinnslan Fura við Hringhellu í Hafnarfirði
verður kannski rafmagnslaus á næstunni ef dómstólar ákveða að Orkustofnun skuli
klippa á heimtaugina. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
ATVINNUMÁL Atvinnuleysi var 7,4
prósent í maí og hefur minnkað um
1,6 prósentustig á milli ára. Þetta
kemur fram í Vinnumarkaðsrann-
sókn Hagstofu Íslands sem fram-
kvæmd var nú í júní. Rannsóknin
nær yfir fimm vikna tímabil, frá
29. apríl til 2. júní 2013.
Í maí á síðasta ári mældist
atvinnuleysi 8,8 prósent og hafði
þá ekki mælst lægra í maí síðan
það mældist 4,3 prósent árið 2008.
Ef litið er til þróunar síðustu 12
mánaða sést að fólki á vinnumark-
aði hefur fjölgað um 3,5 prósent,
atvinnulausum fækkað um 9,2 pró-
sent. Atvinnuleysi hefur því lækkað
umtalsvert frá því að það var hæst
fyrir hrun en í maí 2010 mældist
atvinnuleysi 11,9 prósent. - ne
Fjölgun vinnandi manna:
Minna atvinnu-
leysi en í fyrra
HARALDUR ÞÓR
ÓLASON
KÖNNUN Stuðningur við ríkis-
stjórnina hefur minnkað um
fjögur prósentustig síðan í upp-
hafi mánaðar, úr 59,8 prósentum
í 55,8 prósent, samkvæmt nýrri
könnun MMR.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins
mælist nú 27,3 prósent borið
saman við 28,2% í síðustu mæl-
ingu, Framsóknarflokkurinn fer
úr 21,2 prósentum í 19,9, Sam-
fylkingin hækkar úr 11,7 pró-
sentum í 13,0 og Björt framtíð
úr 11,2 prósentum í 12,5. Vinstri
græn mælast með 12,4 prósenta
fylgi, borið saman við 13,8 í síð-
ustu mælingu en Píratar fara úr
6,6 prósentum í 8,1. Allar breyt-
ingar á fylgi flokka eru innan
vikmarka. - sh
MMR gerir nýja könnun:
Minna fylgi við
ríkisstjórnina
FJARSKIPTI Nautgripabóndi einn á
Vestfjörðum þarf að bera kostnað-
inn af því að breyta uppsetningu
rafmagnsgirðingar á landareign
sinni, að mati Póst- og fjarskipta-
stofnunar (PFS), en girðingin hefur
um árabil valdið truflunum á sím-
sambandi á nærliggjandi bæjum.
Í frétt á vef PFS segir að truflan-
irnar hafi lýst sér í smellum sem
hafi gert símtöl illmöguleg auk
þess sem þær hafi átt það til að
hægja á eða stöðva nettengingu.
Við skoðun PFS og Mílu, eiganda
kerfisins, kom í ljós að girðingin,
sem liggur samsíða símalínunni
á kafla, er sannanlega truflana-
valdurinn.
Til að bætt verði úr þarf að færa
girðinguna á 3,2 kílómetra kafla og
áætlar eigandi girðingarinnar að
breytingin muni kosta rúma millj-
ón króna. Hvorki hann né Míla
voru tilbúin að taka þátt í kostnað-
inum.
PFS skar hins vegar úr um að
samkvæmt lögum bæri eiganda
rafvirkis sem truflar fjarskipti að
bera kostnað af úrbótum. Fær við-
komandi því frest til 8. júlí næst-
komandi til að bæta úr. Ella er
hægt að beita hann dagsektum, eða
láta rjúfa straum á girðingunni. - þj
Nautabóndi neitaði því að bera kostnað vegna truflana á símalínu:
Þarf að færa rafmagnsgirðingu
KÍNA Lengstu mönnuðu geimferð Kínverja lauk farsællega í gær þegar
geimfararnir þrír lentu heilu og höldnu á sléttu í héraðinu Innri-
Mongólíu nyrst í Kína.
Ferðalangarnir þrír dvöldu úti í geimi í fimmtán daga og komu
á leiðinni við í geimtilraunastofu Kínverja, þar sem eina konan í
hópnum, Wang Yaping, hélt fyrirlestur um fjarfundarbúnað fyrir
börn á jörðu niðri. Kínverjar stefna að því að koma sér upp sinni eigin
geimstöð árið 2020 og er ferðin álitin mikilvægur þáttur í því. - sh
Lengstu mönnuðu geimferð Kínverja lauk í gær:
Farsæll endir á 15 daga ferðalagi
LENTU Á SLÉTTU Wang Yaping, eina konan í hópnum, bar sig vel þegar henni var
hjálpað út úr geimfarinu Shenzhou-10 í Innri-Mongólíu í gær. NORDICPHOTOS/AFP
VIÐ ÞEKKJUM
TILFINNINGUNA
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Laugardagur
Hæg suðlæg eða breytileg átt.
SKÚRIR Í KVÖLD Það dregur smám saman úr vindi er líður á daginn en hins vegar
má búast við vætu víða um land síðdegis. Skúrir vestan til í kvöld og víða á morgun en
síst suðaustanlands. Lítur út fyrir litla úrkomu um helgina.
9°
11
m/s
10°
12
m/s
10°
8
m/s
10°
10
m/s
Á morgun
5-13 m/s, hvassast við S-ströndina.
Gildistími korta er um hádegi
13°
10°
14°
12°
11°
Alicante
Basel
Berlín
25°
18°
17°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
18°
18°
16°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
17°
17°
26°
London
Mallorca
New York
19°
25°
27°
Orlando
Ósló
París
31°
18°
21°
San Francisco
Stokkhólmur
22°
21°
10°
6
m/s
10°
7
m/s
13°
5
m/s
15°
6
m/s
12°
6
m/s
11°
8
m/s
7°
6
m/s
12°
10°
14°
14°
12°
kílómetra af
rafmagns-
girðingu þarf að færa og
telur eigandinn það munu
kosta rúma milljón króna.
3,2 FÓLK Til stendur að stofna minn-ingarsjóð í nafni Hemma Gunn. Þetta verður gert til að styðja
við þau málefni sem honum voru
kærust. „Hann var aldrei að
sækjast eftir auðæfum en hann
var víða í tengslum við hjálpar-
starf. Hann lagði til dæmis bar-
áttumálum til kaupa á hjarta-
tækjum fyrir Landspítalann og
unglingadeild SÁÁ lið,“ sagði
Halldór Einarsson, einn nán-
asti vinur Hemma, í samtali við
Bylgjuna í gær. - þþ
Stofna minningarsjóð:
Mál sem voru
Hemma kær