Fréttablaðið - 27.06.2013, Page 16
27. júní 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR FERÐIR | 16
Jóhannes Haukur Jóhannesson
leikari á ekki í vandræðum með að
velja sér eftirlætis stað á landinu og
leitar ekki langt yfir skammt.
„Minn uppáhaldsstaður á landinu
í augnablikinu er Laugardalurinn í
Reykjavík. Ég er nýfluttur þangað og
er að kynnast öllum þeim dásemdum
sem þetta svæði hefur upp á að
bjóða.“ Jóhannes segist alls ekki hafa
orðið fyrir vonbrigðum með dalinn.
„Hér er svo gróðursælt, mikið af leik-
völlum og góðir skólar.“ Hann bendir
einnig á að í dalnum
séu Húsdýragarður-
inn og Grasagarður-
inn. „Þegar ég flutti
hingað byrjaði ég
að versla í búðinni
Frú Lauga sem er
með lífrænan mat
beint frá býli.“
segir hann
að lokum.
- ne
JÓHANNES HAUKUR
JÓHANNESSON
Gróðursæla í
Laugardal
FERÐALÖG Vefsíðan vegvisir.is fór
í loftið síðastliðinn mánudag, en
tilgangur hennar er að auðvelda
skipulagningu
ferða um land-
ið. Hugmynd-
ina að síðunni
át t i Gunnar
Þorvaldsson og
hann vann síð-
una í samvinnu
við forritarann
Pál Hilmarsson.
„Þetta er ekki
alveg fullklárað en okkur fannst
þetta nógu tilbúið til þess að fara í
loftið núna.“ segir Gunnar, sem er
grafískur hönnuður á auglýsinga-
stofunni Jónsson og Le‘macks.
Hugmyndin að vefsíðunni er að
skapa einfalda og aðgengilega síðu
sem allir geta notað þegar kemur
að því að skipuleggja ferðalög um
landið.
„Ég hef verið að kenna sjálfum
mér vefforritun í vetur og ákvað
að gera þetta að fyrsta verkefninu
mínu. Ég fékk Pál Hilmarsson vin
minn, sem er forritari, til þess að
sjá um gagnahliðina á verkefninu
en ég sá um hitt.“ Hann segist
hingað til hafa nýtt sér vefsíðu
Vegagerðarinnar í ferðaundirbún-
ingi fjölskyldu sinnar en rekið sig
á að sú síða hafi ekki verið nógu
þægileg í notkun. „Ég bjó þetta
verkefni til fyrir sjálfan mig en
komst fljótt að því að fólk var
spennt fyrir þessu.“
Hann segir síðuna fyrst og
fremst til gamans gerða, hún sýni
á einfaldan hátt hversu langt sé á
milli staða en komi ekki til með að
aðstoða villta ferðamenn á hálend-
inu. Hann ítrekar að síðan sé enn
í vinnslu og hvetur fólk til þess að
koma með ábendingar á Facebook-
síðu verkefnisins. nannae@365.is
Grafískur hönnuður opnar vefsíðu til hjálpar ferðalöngum:
Ferðalangur hannar
rafrænan vegvísi
GUNNAR
ÞORVALDSSON
Stimpli notandi inn
brottfararstaðinn
Hafnarfjörður og
áfangastaðinn Ólafs-
vík kemur í ljós að
leiðin er 200 km.
Síðan má sjá að
ferðin verður mal-
bikuð meirihluta
leiðarinnar, eða 196
km, en ferðalangar
þurfa að aka 4
km á malarvegi.
Að auki er ítarleg
leiðarlýsing og vísað
á nokkur kennileiti
sem sjá má á
leiðinni.
Til stendur að
bæta við síðuna
áætluðum bensín-
kostnaði og ferðatíma.
AUÐVELT OG
AÐGENGILEGT
1. Barnvænn bær
Dýraskoðun og fjöruferð með
leiðsögn eru meðal þess sem
hægt er að gera á bænum Bjart-
eyjarsandi í Hvalfirði. Auk þess
er hægt að fá sér veitingar í Kaffi
Álfhóli og kaupa inn beint frá
bónda í sveitabúðinni á staðnum.
2. Einstakur leikvöllur
Einn skemmtilegasti leikvöllur
landsins er Bjössaróló í Borgar-
nesi. Hann var reistur af Birni
Guðjónssyni úr efnivið sem
honum hafði áskotnast. Leik-
tækin eru því einstök.
3. Dýralíf á Vatnsnesi
Selir eru ævintýralegar verur
sem krakkar hafa gaman af því
að skoða og tækifærin eru næg
á Vatnsnesinu. Á Hvammstanga
er Selasetur, á Illugastöðum er
gaman að labba niður í fjöru eftir
nýgerðum stíg og skoða bæði
fugla og seli. Þá er skemmtileg
gönguleið niður í fjöru við Hvít-
serk og Sigríðarstaðaós og þar
liggja selir í hrönnum og horfast
í augu við mannfólkið sem á leið
um.
4. Dorgað á Hofsósi
Hofsós er lítill en huggulegur
bær þar sem hægt er að eiga góða
stund með fjölskyldunni, fara í
sund á einum flottasta baðstað
landsins, skoða áhugavert Vestur-
farasetur og þá má alltaf spreyta
sig við dorg á bryggju.
Íslandsævintýri fyrir alla
Þegar ungir og aldnir eru saman á ferðalagi er um að gera að hafa áfangastaðina við allra hæfi. Fréttablaðið fór
fjölskylduvænan hring um landið. Gerður er stuttur stans á nokkrum stöðum sem mæta þörfum fjölskyldna.
5. Höfuðstaður Norðurlands
Akureyri er uppspretta alls
kyns skemmtilegheita fyrir fjöl-
skyldur á ferð. Það verður eng-
inn svikinn af ferð í Kjarna-
skóg, rölt um miðbæinn, túr í
Lystigarðinn eða heimsókn á
einhvern af fjölmörgum góðum
kaffihúsum og veitingastöðum
bæjarins.
6. Sænautasel
Það er eins og að stíga inn í
gamla tíma að sækja Sænautasel
heim, húsakostur er forvitnileg-
ur og kaffihlaðborðið ógleyman-
legt. Landnámshænur spígspora
um hlaðið. Gestir eru á sögu-
slóðum Sjálfstæðs fólks.
7. Hallormsstaðaskógur
Það er frábært að tjalda í Atla-
vík og fara svo í góða göngu um
Hallormsstaðaskóg sem er sann-
arlega ævintýrastaður fyrir alla
fjölskylduna.
8. Gönguferðir við allra hæfi
Náttúrufegurðin í Skaftafelli er
ólýsanleg. Þar eru fjöl margar
góðar gönguleiðir við allra
hæfi og staðurinn því tilvalinn
áfangastaður fjölskyldunnar.
9. Þórsmerkurferð
Þórsmörk hefur lengi verið einn
vinsælasti áfangastaður landans
fyrir útilegur og ekki að ástæðu-
lausu, þar er friðsælt og gott að
vera.
Lýsingin er dagsett 25. júní 2013 og staðfest af Fjármálaeftirlitinu og aðgengileg á skrifstofu
Rekstrarfélags Virðingar hf, kt. 531109-2790, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi, sem er rekstrar aðili
sjóðsins. NASDAQ OMX Iceland hf. tilkynnir opinberlega ef skuldabréfin eru tekin til viðskipta og
þá hvenær fyrsti mögulegi við skipta dagur með bréfin er á hinum skipulega verð bréfa markaði, en
NASDAQ OMX Iceland hf. tilkynnir slíka dagsetningu með að lágmarki eins viðskipta dags fyrirvara.
Upphafleg höfuðstólsfjárhæð útgefinna skulda bréfa, sem öll hafa verið seld, og heildar heimild
útgáfu nemur 4.000.000.000 kr. að nafn verði. Bréfin eru gefin út rafrænt í kerfi Verðbréfa skráningar
Íslands hf. Auðkenni flokksins er FORK 17 0901. ISIN-númer skulda bréfanna er IS0000021897. Bréfin
eru gefin út í íslenskum krónum og er hver eining skulda bréfanna 10.000.000 kr. að nafnverði.
ORK fagfjárfestasjóður hefur birt lýsingu í tengslum við umsókn um
að skulda bréfa flokkurinn FORK 17 0901 sé tekinn til viðskipta á skipu-
legum verð bréfa markaði NASDAQ OMX Iceland hf.
Útgefandi: ORK fagfjárfestasjóður, kennitala 650612-9730, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi.
Rekstrarfélag Virðingar
Símar 571 6140 og 571 6142
sjodir@virdingsjodir.is
www.virdingsjodir.is
Birting lýsingar
Nánari upplýsingar um Fagfjárfestasjóðinn ORK og skuldabréfaflokkinn FORK 17 0901, má finna í lýsingu
sjóðsins. Umsjónaraðilar töku skuldabréfa Fagfjárfestasjóðsins ORK til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland
hf. eru Virðing hf., kt. 561299-3909, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi og Centra Fyrirtækjaráðgjöf hf.,
kt. 560902-0350, Borgartúni 27, 105 Reykjavík.
Kópavogur, 25. júní 2013
Stjórn Rekstrarfélags Virðingar hf.
1
2
3
4 5
6
7
89
UPPÁHALDSSTAÐUR-
INN MINN Á ÍSLANDI
LAUGARDALURINN
HÁTÍÐIR HELGARINNAR VEÐUR
Föstudagur
7-15 °C HLÝJAST
AUSTANTIL
Vestanátt og
skúrir, en skýjað með
köflum á Austurlandi.
Allur akstur er bannaður á ýmsum hálendis-
leiðum vegna aurbleytu og hættu á skemmdum. Nánari upplýsingar
Vegagerdin.is eða í síma 1777.
Laugardagur
10-15 °C HLÝJAST
NA-TIL
Líkur á þokulofti
S- og V-lands en
annars léttskýjað.
Sunnudagur
10-15°C.
HLÝJAST NA-TIL
Rigning en
úrkomulítið NA-til.
Heimild: vedur.is
HÁLENDIÐ
Brákarhátíð
29. júní
Fjölskylduhátíð í
Borgarnesi
Gönguhátíðin
Umfar
21.-28. júní
Gönguferðir alla
daga um náttúru-
perlur Vestur-
byggðar.
Bíldudals grænar
28.-30. júní.
Sumarhátíð
Arnfirðinga.
Hamingjudagar á
Hólmavík
26.-28. júní
Bæjarhátíð á
Hólmavík.
Blue North Music
Festival
27.-29. júní
Blúshátíð í Ólafs-
firði.
Lummudagar
27.-30. júní.
Héraðshátíð í
Skagafirði.
Jazzhátíð á Austur-
landi
26.-28.júní
Tónlistarhátíð á
Egilsstöðum, Seyðis-
firði og í Neskaup-
stað.
Sæluhelgi
28.-30. júní
100 ára afmæli
íþróttafélagsins Hug-
ins á Seyðisfirði.
Humarhátíð
28.-30.júní
Humarhátíð á Höfn.
Sólseturshátíð
27.-30.júní
Fjölskylduhátíð í
Garði.
All tomorrow‘s
parties
28.-29.júní
Tónlistar hátíð
á Ásbrú. Nick
Cave kemur
fram.