Fréttablaðið - 27.06.2013, Page 25
FIMMTUDAGUR 27. júní 2013 | SKOÐUN | 25
Að undanförnu hefur
menntun íslenskra ung-
menna vakið áhuga fjöl-
miðla. Ástæðan er skýrsla
þverpólitísks og þverfag-
legs samráðsvettvangs um
aukna hagsæld á Íslandi.
Umfjöllunin hefur vakið
áhuga minn og vonir um
framsækni til að gera
góðan skóla betri. Skóli á
að þróast í takt við síbreyti-
legt þjóðfélag enda er kveð-
ið á um það í öllum lögum og reglu-
gerðum sem um hann gilda. Allir
eru sammála um að íslenskir skól-
ar skuli ætíð veita bestu menntun
sem völ er á, hvort sem viðkomandi
menntastofnun heyrir undir ríki
eða sveitarfélag.
Ég fagna því að skólastarf í land-
inu verði skoðað með tilliti til efna-
hagslegrar hagsældar og vonandi
verður litið til langrar framtíðar.
Augljóslega er stefnt að því að ná
fram sparnaði og þá skiptir máli
hvernig, og hvað menn hyggjast fá
fram.
Ég geri fastlega ráð fyrir að
breytingar á skólastarfi sem gerð-
ar hafa verið í þverpólitískri sátt á
undanförum árum séu komnar til
að vera og afturhvarf til gamalla
tíma þyki ekki fýsilegur kostur.
Með grunnskólalögunum 1974 var
stigið farsælt skref í áttina að skóla
fyrir alla. Þá var horfið frá því að
draga nemendur í dilka eftir náms-
getu. Fyrir þann tíma tíðkaðist að
vera með fjölmenna bekki nem-
enda með góða námsgetu og aðra
fámennari sem gjarnan fengu við-
urnefnið tossabekkir.
Aukning á vinnuframlagi
Í áðurnefndri skýrslu samráðshóps-
ins um aukna hagsæld á Íslandi er
að finna hugmynd um að
fjölga nemendum í náms-
hópum og auka kennslu-
tíma kennara. Þannig á að
spara fé, m.a. til að greiða
kennurum hærri laun.
Umræðan um laun kenn-
ara er ekki ný af nálinni;
hún hefur fylgt mér líkt og
skuggi alla starfsævi mína.
Enginn veit þó betur en
þeir sem starfa í grunn-
skólanum að stækkun
nemendahópa styður ekki við
hugmyndina um bestu menntun
fyrir nemendur. Hins vegar heyri
ég marga, bæði lærða og leika,
henda hana á lofti. Í nýlegri könn-
un á vinnuframlagi kennara sem
Félag grunnskólakennara og Sam-
band sveitarfélaga stóðu saman
að kemur fram að kennarar skila
vinnu langt umfram það sem þeir
fá greitt fyrir. Staðreyndin er að
áðurnefndar breytingar á starf-
inu hafa haft í för með sér veru-
lega aukningu á vinnuframlagi
af þeirra hálfu. Í lögum um skóla
án aðgreiningar felst aukin vinna,
m.a. í gerð einstaklingsnámskráa,
breyttum samskiptum við foreldra
og ótal fundum með sérfræðingum
sem koma að málefnum barna. Þá
eru ótaldar kröfurnar um að skól-
inn taki að sér meiri fræðslu af
ýmsu tagi.
Heildarmyndin
Á Íslandi hefur ríkt sátt um grunn-
skólana. Hver skóli setur sér eigin
námskrá og gróskan er jafnmikil
og skólarnir eru margir. Þar vinna
samviskusamir kennarar sem eiga
að njóta sannmælis. Allar upp-
hrópanir um að þeir sinni ekki
starfi sínu dæma sig sjálfar. Hvað
er átt við þegar talað er um að
fjölga í námshópum og velja hæf-
ustu kennarana til starfa? Það er
kunnugleg tugga úr fortíðinni en
nútíminn krefst hugmynda um
skólaumhverfi morgundagsins. Er
stækkun nemendahópa og fleiri
kennslustundir kennara líkleg til
að hækka launin og laða fólk að
kennaranámi? Á að spara með því
að segja upp stuðnings fulltrúum,
eða fjölga þeim í samræmi við
stækkandi námshópa? Á kennari
eingöngu að sinna kennslu og und-
irbúningi? Hver á þá að vinna með
sérfræðingunum að velferð nem-
enda? Á að fella úr gildi lög um
skóla án aðgreiningar og hverfa
aftur til flokkunar nemenda? Er
samfélagslegur byr með þessum
hugmyndum?
Þessar spurningar krefjast
svara. Það kæmi verulega á óvart
ef foreldrasamfélagið legði bless-
un sína yfir þessar hugmyndir. For-
eldrar hafa skorist í leikinn þegar
skólayfirvöld einstakra skóla hafa
ætlað að grípa til stækkunar nem-
endahópa. Ég hvet ráðamenn til að
horfa á heildarmyndina áður en
ákvarðanir eru teknar og kennara,
foreldra og aðra sem að menntun-
ar- og uppeldismálum koma til að
tjá sig um þetta mikilvæga mál-
efni. Grunnskóli er stór vinnustað-
ur barna og fullorðinna sem krefst
mikils sveigjanleika. Hvernig verð-
ur hann metinn inn í excel-skjal
sem reiknar út hagsæld á Íslandi?
Horfa þarf á heildarmyndina
Forsætisráðherra Íslands
skrifar grein í Morgun-
blaðið þriðjudaginn 25.
júní með yfirskriftinni
„Fyrsti mánuður loftárása“.
Þar kvartar hann undan
skömmum sem stjórnar-
andstæðingar hafa látið
dynja á honum fyrstu vik-
urnar í embætti. Gagnrýn-
inni líkir ráðherrann við
loftárásir, þar sem and-
stæðingarnir láti sprengj-
um rigna úr lofti.
Líkingamál forsætis-
ráðherra skapar hugrenninga-
tengsl við aðrar loftárásir og öllu
áþreifanlegri. Í Afganistan hafa
Nató-þjóðir látið sprengjum rigna
úr háloftunum, ekki í einn mánuð
heldur hundrað fjörutíu og einn.
Stríðið endalausa í einu fátækasta
landi jarðar hefur nú staðið lengur
en heimsstyrjaldirnar tvær saman-
lagt. Flestir hafa gleymt hinum
upprunalega tilgangi þessa stríðs,
enda hafa vestrænir ráða-
menn ítrekað endurskil-
greint markmiðin eftir því
sem átökin hafa dregist á
langinn.
Í hverri viku berast
fregnir af hörmulegum
afleiðingum hernaðar-
ins, þar sem fjarstýrðum
árásarvélum er beitt til
að tryggja að sem fæstir
Nató-hermenn falli. Minna
fer fyrir slíkri umhyggju
fyrir l ífi og l imum
afganskra borgara.
Íslensk stjórnvöld hafa lítt skipt
sér af þessu stríði, sem þó er háð
í okkar nafni og með okkar stuðn-
ingi. Ólíklegt má teljast að það
breytist með nýjum utanríkis-
ráðherra, sem segist vilja taka
virkari þátt í starfsemi og umsvif-
um Nató. En hver veit nema nýtil-
komin andúð framsóknarmanna á
loftárásum muni koma fram í utan-
ríkisstefnunni?
141. mánuður loftárása
UTANRÍKISMÁL
Stefán
Pálsson
formaður Sam-
taka hernaðar-
andstæðinga
MENNTUN
Valgerður
Eiríksdóttir
grunnskólakennari
➜ Á að spara með því
að segja upp stuðnings-
fulltrúum, eða fjölga þeim
í samræmi við stækkandi
námshópa? Á kennari
eingöngu að sinna kennslu
og undirbúningi?
Landsbankinn og Matís hafa komið á fót
nýsköpunarkeppni fyrir viðskiptahugmyndir
í matvæla- og líftækniiðnaði sem byggja á
íslensku hráefni eða hugviti. Samkeppninni
er ætlað að vera öflugur hvati við upp-
byggingu fyrirtækja og þróun verkefna í
matvæla- og líftækniiðnaði. Markmiðið er
að auka varanlega verðmætasköpun
í íslensku atvinnulífi.
Hjá Matís er unnið að fjölbreyttum
verkefnum á sviði matvæla- og líftækni
þar sem áhersla er lögð á nýsköpun,
verðmætaaukningu og matvælaöryggi.
Landsbankinn hefur lagt áherslu á að vera
hreyfiafl í atvinnulífinu og veita stuðning
og ráðgjöf á sviði nýsköpunar, bæði í
atvinnulífinu og menntakerfinu.
Umsóknarfrestur er til kl. 17 mánudaginn
2. september 2013.
Opið er fyrir allar hugmyndir á sviði matvæla-
og líftækni sem eiga erindi á markað og
byggja á íslensku hráefni eða hugviti.
Nánari upplýsingar um samkeppnina er
að finna á landsbankinn.is/nyskopun og
matis.is/nyskopun.
Nýsköpunarkeppni
Landsbankans og Matís
Landsbankinn og Matís auglýsa eftir viðskipta-
hugmyndum á sviði matvæla og líftækni, byggðum
á íslensku hráefni eða hugviti.
er komin í nýjan búning
Nýjar og handhægar umbúðir
tryggja hámarksendingu.
OPNIST
HÉR
SAMA GÓÐA SKINKAN
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
58
25
0