Fréttablaðið - 27.06.2013, Page 28
27. júní 2013 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 28TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
INGVI BÖÐVARSSON
Heiðargerði 17,
Akranesi,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á
Akranesi, 20. júní.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju
mánudaginn 1. júlí kl. 14.00.
Böðvar Ingvason Jónína Steinþórsdóttir
Þóra Ingvadóttir Brynjólfur Magnússon
Sigurður Ingvason Guðrún Inga Bragadóttir
og afabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
ÞORBJÖRN JÓNSSON
áður til heimilis að Írabakka 12,
lést laugardaginn 22. júní á Heilbrigðisstofnun
Vestmannaeyja.
Útförin fer fram frá Laugarneskirkju
28. júní kl. 15.00.
Þórunn Þorbjörnsdóttir
Kristófer Guðlaugsson
Lilja Þorbjörnsdóttir
Jóna Soffía Þorbjörnsdóttir
Jóhanna Kolbrún Þorbjörnsdóttir Már Friðþjófsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
sonur, afi og bróðir,
METHÚSALEM ÞÓRISSON
sem lést 14. júní, verður jarðsunginn frá
Fríkirkjunni föstudaginn 28. júní kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarreikning fyrir
fjölskylduna, nr. 0303-26-008269, kt. 080269-3079.
Elda Thorisson Faurelien
Þórir Guðmundur Faurelien
Fríða Methúsalemsdóttir
Jóhanna Methúsalemsdóttir
Arnfríður Snorradóttir
barnabörn og systkini.
Okkar ástkæra
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
áður til heimilis að Austurbrún 6,
síðar að Dalbraut 27,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut
þann 15. júni, verður jarðsungin frá Áskirkju
þann 28. júni kl. 13.00.
Aðstandendur
Okkar elskulegi,
RAGNAR GUÐJÓNSSON
Syðri-Kvíhólma, V.-Eyjafjöllum,
lést á Kumbaravogi aðfaranótt 24. júní.
Útför auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Rannveig H. Gunnlaugsdóttir
Jóhann Þórir Guðmundsson
Guðbjörg Guðjónsdóttir
Árný Inga Guðjónsdóttir
Ragnar Aðalsteinn Guðjónsson
og langafabörn.
Elsku eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
BJARNI HJARTARSON
lést að heimili sínu föstudaginn
14. júní. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hins látna.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýnt hafa
okkur stuðning og hlýju á erfiðum tímum.
Anna Flosadóttir
Flosi Bjarnason Jody Linn Malanchuk
Ólöf Halla Bjarnadóttir Paulo Jorge Chruz
Gramata
Hjörtur Bjarnason
Ævar Bjarnason Amelia Rees
Anna María, Bjarni, Elisabeth, Andrea, Davíð,
Adam og Alexander
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SVEINBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR
Hamraborg 18,
Kópavogi,
lést mánudaginn 24. júní á 6A LSH
Fossvogi. Jarðarförin fer fram frá
Kópavogskirkju mánudaginn 1. júlí kl.13.00.
Þorleifur Kjartan Kristmundsson Svanhildur Ólafsdóttir
Einar Páll Gunnarsson Anna Guðný Björnsdóttir
Sigurður Arnar Gunnarsson Jóna Vala Valsdóttir
Anna Þórdís Gunnarsdóttir Birgir Axelsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
HRAFNHILDUR MARÍA
THORODDSEN
Akralandi 3,
lést þriðjudaginn 25. júní á líknardeild
Landspítalans. Jarðarförin fer fram
frá Langholtskirkju mánudaginn 8. júlí
kl. 11.00. Þeim sem vilja minnast hennar
er bent á líknardeild Landspítalans.
Mjöll Helgadóttir Gunnar Þorsteinsson
Helgi H. Helgason Svava Ólafsdóttir
Atli G. Helgason Linda Hansen
Steinar Helgason Thelma Hillers
Drífa Jenný Helgadóttir Þórður Kristleifsson
Ester Kristjánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til þeirra sem heiðruðu
minningu hjartkærs eiginmanns míns,
föður okkar, fósturföður, tengdaföður,
afa, langafa og langalangafa,
JÓNS GUÐMUNDSSONAR
Stigahlíð 34.
Við þökkum öllum sem sýndu okkur
vinarhug og hlýju með nærveru sinni og
sérstakar þakkir til þeirra sem önnuðust hann,
bæði á skilunardeild Landspítalans og Landakoti.
Vigdís Tryggvadóttir
Sigríður Nanna Roberts
Guðmundur Jónsson Lára Sigfúsdóttir
Tryggvi Jónsson Ásta Ágústsdóttir
Kristín Þorbjörg Jónsdóttir Hrafnkell Gunnarsson
Kristín Anný Jónsdóttir Valgeir Ingi Ólafsson
Soffía Bryndís Jónsdóttir
Una Svava Skjaldardóttir Rogers Chuck Rogers
Tryggvi Lúðvík Skjaldarson Halla María Árnadóttir
Kristján Róbert Walsh Rebbekka Rós
Guðmundsdóttir
barnabörn, langafabörn og langalangafabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÞURÍÐUR HILDA HINRIKS
áður til heimilis að Stórholti 21,
Reykjavík,
lést á Dvalarheimilinu Grund,
sunnudaginn 23. júní sl. Útför
hennar fer fram frá Háteigskirkju
þriðjudaginn 2. júlí kl. 13.00.
Unnur Björg Ingólfsdóttir Daníel Axelsson
Anna Þuríður Ingólfsdóttir Magnús Þór Hilmarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær eiginmaður minn,
HELGI MÁR ARTHURSSON
Kaplaskjólsvegi 65, Reykjavík,
sem lést á hjartalækningadeild Landspítala
14. júní, verður jarðsunginn frá Neskirkju,
þriðjudaginn 2. júlí, kl. 13.00.
Fyrir hönd fjölskyldu og vina,
Sigríður Árnadóttir
Götuhljólreiðakeppnin Tour de Hvols-
völlur verður haldin í þriðja sinn
laugardaginn 29. júní nk. Hægt er að
hjóla þrjár mislang-
ar vegalengdir sem
allar enda á Hvols-
velli; 110 km leið frá
Reykjavík, 48 km
leið frá Selfossi og
14 km leið frá Hellu.
Tímataka verður í
tveimur fyrstu leið-
unum en sú þriðja
er hugsuð fyrir þá
sem vilja hjóla sér
til gamans og heilsubótar.
„Það hefur orðið sannkölluð spreng-
ing í áhuga landsmanna á hjólreiðum,
við finnum það bara hér heimafyrir,“
segir Árný Lára Karvelsdóttir, kynn-
ingar- og markaðsfulltrúi Rangárþings
eystra. „Við merkjum það líka á því að
Tour de Hvolsvöllur hefur vaxið fiskur
um hrygg, í fyrra jókst þátttakan um
50 prósent og um 140 manns tóku þátt.“
Skráningin fer aðeins hægar af stað
í ár, sem Árný Lára segir helgast af
því að keppnin var færð til um viku og
er nú haldin um svipað leyti og fleiri
hjólreiðakeppnir. „En nú þegar [í gær]
hafa um 50 hjólreiðamenn skráð sig og
það er nú talsvert en við vonumst til að
sjá skot upp á við áður en yfir lýkur,“
en síðasti dagur skráningar er í dag.
Það er ekki með öllu hættulaust að
hjóla í hnapp eftir þjóðveginum en
Árný Lára segir það hafa gengið vel.
„Við leggjum snemma af stað, þegar
umferð er lítil, og svo aka björgunar-
sveitarbílar á undan og eftir hjólreiða-
fólki. En við hvetjum auðvitað alla öku-
menn til að sýna aðgát og tillitssemi á
leiðinni.“ Sextán ára aldurstakmark er
á leiðunum frá Reykjavík og Selfossi.
Það tók þá sem voru fyrstir í keppn-
inni í fyrra um tvo og hálfan tíma að
hjóla frá Reykjavík til Hvolsvallar en
aðrir voru upp í fjóra tíma.“
„Þetta er í rauninni ekki lengi gert,“
segir Árný Lára. „Fólk er mismun-
andi lengi, sumir eru þarna í keppni
við aðra hjólreiðamenn og aðrir eru í
keppni við sjálfa sig og hjóla á sínum
forsendum. Við endamarkið tökum
við svo á móti þátttakendum og þeirra
fylgdarfólki með dagskrá í miðbænum
og sláum upp veislu í boði SS, sem er
einn af okkar helstu bakhjörlum.“
Verðlaun eru veitt fyrir fyrstu þrjú
sætin í lengri leiðunum tveimur, auk
útdráttarverðlauna fyrir alla þátttak-
endur. Hægt er að skrá lið til keppni
frá Reykjavík. Skráningarfrestur
rennur út á hádegi í dag. Nánari upp-
lýsingar má finna á hvolsvollur.is og
hjolamot.is. bergsteinn@frettabladid.is
Hjólað austur fyrir fj all
Hjólreiðakeppnin Tour de Hvolsvöllur verður haldin um helgina í þriðja sinn í núverandi
mynd. Keppninni hefur vaxið fi skur um hrygg en hægt er að hjóla þrjár mislangar leiðir.
TOUR DE HVOLSVÖLLUR Alls tóku 140 hjólreiðamenn þátt í keppninni í fyrra en síðasti
skráningardagur er í dag.
ÁRNÝ LÁRA
KARVELSDÓTTIR