Fréttablaðið - 27.06.2013, Síða 34

Fréttablaðið - 27.06.2013, Síða 34
KYNNING − AUGLÝSINGKonur á besta aldri FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 20132 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Elsa Jensdóttir, 512 5427, elsaj@365.is Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Áhuginn kviknaði gegnum fyrrverandi formann Har-ley Davidson-klúbbsins. Maðurinn minn smitaðist fyrst og svo ég. Ég sat aftan á hjá honum til að byrja með en tók svo prófið fyrir átta árum,“ segir Halldóra Ágústs- dóttir mótorhjólakona þegar hún er spurð út í áhugamálið. Halldóra hefur verið í Harley Davidson-klúbbi Íslands í tíu ár og segist forfallinn ökuþór. „Ég fíla þetta í ræmur. Þetta er rosalega gaman. Fyrsta sumar- ið fékk ég lánað hjól og ætlaði að sjá til hvort ég entist. Mér fannst svo gaman að ég keypti mér sjálf hjól árið 2006. Þegar við keypt- um stærra hjól handa manninum mínum skipti ég og fékk gamla hjólið hans. Þetta er áhugamál okkar beggja og við hjólum mikið saman hjónin. Ætli við hjólum ekki í kringum tíu til tólf þúsund kíló- metra á ári,“ segir Halldóra. Hún hjólar þó ekki bara með eiginmanninum. Hún er einnig í hjólaklúbbi kvenna. „Við ættum að heita Ladies of Harley, eins og kvennaklúbbur- inn innan Harley Davidson heit- ir erlendis, en við erum ekki svo strangar á reglunum. Við erum níu konur, f lestar í Reykjavík en ein á Akureyri, og reynum að hitt- ast mánaðarlega allan veturinn. Á sumrin hjólum við saman. Eitt árið fórum við í nokkurra daga konu- túr um landið og eftir það höfum við reynt að fara eina kvennaferð á ári yfir helgi. Við ætlum að drífa okkur í dagsferð hópurinn, núna um helgina og enda í grilli.“ Halldóra segir félagsskapinn góðan og hópinn, bæði karla og konur, fara á hverju ári hringinn um landið. Þá fari allur hópurinn einnig í hjólaferðir erlendis. En hvað er svona skemmtilegt við mótorhjólasportið? „Frjálsræðið og að vera úti í náttúrunni. Maður fær allt beint í æð, lyktina og hitaskilin þegar maður keyrir um vegi lands- ins. Þetta getur þó verið tíma- frekt sport ef maður hjólar mikið. Túrinn er f ljótur að verða fjór- ir tímar þegar maður leggur af stað. Veðrið stjórnar því þó líka. Það er minna spennandi að fara út að hjóla þegar rignir. En ef það fer að rigna þegar maður er á ferð- inni þá lætur maður sig auðvitað hafa það. Það er hluti af upplifun- inni,“ segir Halldóra og bætir við að hjóla bakterían gæti átt eftir að smita frekar út frá sér í fjölskyld- unni. Sonur hennar tók prófið fyrir nokkrum árum og keypti sér hjól og þá eru barnabörnin orðin spennt. „Ég á tvö barnabörn, eina 12 ára og eina fjögurra ára, og sú eldri fer aftan á hjá afa sínum og er alveg sjúk. Þetta er bara svo skemmtilegt og mjög smitandi.“ Fíla þetta í ræmur Halldóra Ágústsdóttir smitaðist af mótorhjólabakteríunni fyrir nokkrum árum og er nú forfallinn ökuþór. Hún segir frjálsræðið og nálægðina við náttúruna mest heillandi. Halldóra Ágústsdóttir brunar um göturnar á Harley Davidson. MYND/ARNÞÓR „Það er einstaklingsbundið hvenær gráu hárin birt- ast. Sumir fá þau um tvítugt en aðrir ekki fyrr en undir fimmtugt. En það er alltaf dálítið áfall að finna fyrsta gráa hárið,“ segir Elsa Haraldsdóttir, hárgreiðslukona og eigandi Salon VEH. Hún segir flestar konur kjósa að lita hárið. „Í fyrstu þegar gráu hárin eru fremur fá mæli ég oft með því að nota skol sem hefur ekki önnur áhrif en að tóna niður gráu hárin,“ segir Elsa. Innt eftir því hve oft þurfi að koma til að lita rótina segir hún það þurfa að gerast á fjögurra vikna fresti fyrir þá sem eru 75 til 100 prósent gráhærðir. Hún segir margar konur þreytast á því að lita gráu hárin auk þess sem hársvörðurinn verði við- kvæmari með aldrinum. „Sem betur fer hafa orðið stórkostlegar breytingar á háralitum undanfarin ár. Nú eru til litir sem styrkja hárið og gera það betra. Hvert og eitt hárstrá verður lifandi,“ segir Elsa en aðalvandinn við gráa hárið er hvað það er líflaust. „Það verður þunnt, þurrt og glært en með góðum lit færist líf í það.“ Gráhærð hárgreiðslukona Sumar konur kjósa að hætta að lita hárið og láta gráa hárið vaxa. „Þá er hins vegar algert skilyrði að passa umhirðu hársins með djúpnæringu, góðu sjampói og hárnæringu,“ segir Elsa með áherslu. Sjálf fékk hún fyrstu gráu hárin snemma. „Ég man það svo vel. Ég var með hópi kollega í París að koma upp úr metró. Einhver leit í kollinn á mér og benti mér á grátt hár,“ segir hún og hlær. Verandi hárgreiðslukona hefur hún nýtt sér kunnáttuna til að lita hárið með ýmsum hætti. Fyrir fimm árum tók hún hins vegar þá ákvörðun að láta gráa hárið vaxa. „Mig langaði að prófa það og vildi líka sýna viðskiptavinum mínum að þetta væri hægt,“ segir Elsa sem lætur hárið þó ekki óáreitt heldur setur í það strípur og vinnur með það. „Það er ekkert gaman að vera bara með grátt hár, það þarf að búa til skugga til að ýta undir hreyfinguna,“ segir Elsa og er ánægð með síða gráa hárið. „Svo getur það auðvitað breyst á morgun,“ segir hún og brosir. Alltaf áfall að finna fyrsta gráa hárið Elsa ákvað fyrir fimm árum að láta gráa hárið vaxa. Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt til að klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silf- urplett.Við eigum líka fægilög,fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa. SENDUM Í PÓSTKRÖFU. SJÁLFLÍMANDI HNÍFAPARASKORÐUR Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160. www.thjodbuningasilfur.is P R EN TU N .IS / w w w .g e n g u rve l.is Eru flugur, flær eða maurar að ergja þig og bíta? áhrifaríkur og án allra eiturefna. Allt að 8 tíma virkni. Fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og hjá N1 www.gengurvel.is Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955 www.tk.is Mikið af flottum tilboðum TÆKIFÆRISGJAFIR Fyrir heitt eða kalt, 5 litir Save the Children á Íslandi

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.