Fréttablaðið - 27.06.2013, Síða 40
KYNNING − AUGLÝSINGKonur á besta aldri FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 20138
EIN ÁHRIFAMESTA KONA HEIMS
Saga spjallþáttadrottningarinnar Opruh Winfrey er ótrúleg. Hún ólst upp hjá einstæðri,
fátækri móður í Mississippi og upplifði ýmislegt misjafnt í æsku. Hún var misnotuð og eignaðist
barn fjórtán ára gömul en missti það fljótlega eftir fæðingu.
Eftir að hún flutti til föður síns í Tennessee fékk hún vinnu í útvarpi og ekki löngu síðar fékk hún
sinn eigin spjallþátt í sjónvarpi. Mannleg framkoma Opruh dró fólk að skjánum, auk þess sem hún
var aldrei feimin við að fjalla um óþægileg málefni.
Ferill Opruh hefur verið engu líkur. Spjallþættir hennar urðu geysivinsælir en sem dæmi má
nefna að þátturinn þar sem Oprah tók viðtal við Michael Jackson fékk fjórða mesta sjónvarps-
áhorf sögunnar á sínum tíma.
Oprah er talin vera ríkasta kona Bandaríkjanna af afrískum uppruna og um tíma var hún eini
svarti milljarðamæringurinn í Bandaríkjunum. Áhrif hennar ná langt út fyrir sjónvarpið, sem sýnir
sig til að mynda í því að stuðningur hennar við Barack Obama í kosningabaráttu hans er talin hafa
skilað honum einni milljón atkvæða.
EIN VALDAMESTA
KONA FYRR OG SÍÐAR
Katrín mikla er ein af fáum konum
síðustu alda sem fjallað er um í
sögubókunum. Hún leiddi ríki sem
keisaraynja í Rússlandi í 34 ár, frá
1764 til dauðadags. Hún tók við af
Pétri manni sínum sem var myrtur.
Katrín gerði gríðarlega mikið fyrir
Rússland á þeim tíma sem hún réð
ríkjum. Hún stækkaði landamæri
landsins til suðurs og vesturs og
var fyrst til að færa landamærin að
Svartahafi. Hún lét hefja framleiðslu
á rússneskum pappírspening.
Hermitage-safnið í Sankti Péturs-
borg var í fyrstu byggt á eignum í
hennar eigu áður en það var stækk-
að. Katrín leit mikið til vesturs þegar
kom að tækninýjungum, menntun
og menningu en þannig náði hún
að nútímavæða Rússland sem hafði
orðið eftir á í þróun. Keisaraynjan var
þekkt fyrir að vera mikil kynvera og
átti sér marga elskendur yfir árin. Það
er óhætt að segja að þessi kraftmikla
kona sé ein af valdamestu konum
sögunnar.
EKKI LEYFA
STRESSINU AÐ NÁ
TÖKUM Á ÞÉR
Það getur verið alltof auðvelt að
gleyma sér í áhyggjum og stressi.
Í nútímasamfélagi eru gerðar
miklar kröfur til kvenna. Þær verða að
standa sig í vinnu, vera fullkomnar
eiginkonur, fyrirmyndarmæður og
svo þurfa þær að líta vel út.
Allt þetta getur leitt til streitu með
misalvarlegum afleiðingum. Algengt
er að konur fái hárlos auk þess sem
streita getur flýtt því að hárið gráni
og þynnist. Meltingartruflanir geta
einnig stafað af streitu, hvort sem
það eru uppköst, niðurgangur eða
harðlífi.
Þegar mikið er að gera í lífinu er
ýmislegt hægt að gera til þess að
minnka eða koma í veg fyrir stress.
Að hugleiða er góð leið til að róa
taugarnar. Ekki er nauðsynlegt
að gera það í indíánastellingu á
jógadýnu því jafn gott getur verið að
fara út í göngutúr, kíkja í sund eða
prjóna.
Öndunaræfingar geta komið að
gagni þegar stressið stendur sem
hæst. Þær róa taugarnar og auðveld-
ara er að ná aftur einbeitingu.
Mikilvægt er að leyfa stressinu ekki
að ná tökum á lífinu. Smá tími fyrir
sjálfan sig á dag gerir mikið fyrir
líkamann.