Fréttablaðið - 27.06.2013, Blaðsíða 54
27. júní 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38
Tatum leikur lögreglumanninn
John Cale sem hefur verið neitað
um vinnu við gæslustörf í Hvíta
húsinu. Cale ákveður þó að heim-
sækja forsetabústaðinn ásamt
dóttur sinni og á meðan á heim-
sókn þeirra stendur ráðast vopnað-
ir menn undir stjórn Emils Stenz
inn í húsið. Ætlun hópsins er að
taka forseta landsins höndum og
skapa glundroða innan samfélags-
ins og fellur það í skaut Cale að
bjarga forsetanum og um leið lífi
dóttur sinnar.
White House Down skartar
Channing Tatum í hlutverki lög-
reglumannsins Johns Cale og
Jamie Foxx í hlutverki Bandaríkja-
forseta. Með önnur hlutverk fara
Maggie Gyllenhaal, Jason Clarke
og Joey King, sem leikur Emily,
dóttur Cale. Kvikmyndahúsagestir
kannast ef til vill við hinn ástralska
Clarke úr kvikmyndum á borð við
Lawless, Zero Dark Thirty og The
Great Gatsby. Emily King á einn-
ig langan kvikmyndaferil að baki
þrátt fyrir ungan aldur og hefur
meðal annars leikið í kvikmyndum
á borð við Crazy, Stupid, Love, The
Dark Knight Rises og Oz the Great
and Powerful.
Leikstjóri myndarinnar er hinn
þýski Roland Emmerich. Hann
hefur áður leikstýrt stórmyndum
á borð við Independence Day, The
Day After Tomorrow, Godzilla og
2012. Emmerich hóf nám við Uni-
versity of Television and Film í
München árið 1977 og ætlaði fyrst
að gerast framleiðandi. Eftir að
hafa séð kvikmyndina
Star Wars snerist
honum þó hugur og
ákvað hann að læra
leikstjórn í staðinn.
White House
Down hefur fengið
þokkalega dóma og
hafa sumir látið þau
orð falla að þetta
s é k v i k-
myndin
sem muni
festa
Channing
Tatum
í sessi
sem
stór-
stjörnu.
- sm
Rullan sem mun gera
Tatum að stjörnu
Hasarmyndin White House Down verður frumsýnd í kvikmyndahúsum annað
kvöld. Leikarinn Channing Tatum fer með aðalhlutverk myndarinnar.
HASARHETJA
Channing
Tatum fer með
hlutverk lög-
reglumannsins
Johns Cale í
spennumynd-
inni White
House Down.
■ Channing Tatum
■ Fæddur 26. apríl 1980
■ Tatum starfaði meðal annars
sem smiður, fatafella og
fyrirsæta áður en hann lagði
leiklistina fyrir sig. Handritið
að kvikmyndinni Magic Mike
byggði hann á reynslu sinni
sem fatafella, en hann gekk
undir nafninu Chan Crawford
er hann sinnti því starfi.
■ Tatum kynntist
eiginkonu sinni, Jennu
Dewan, við tökur á
kvikmyndinni Step
Up árið 2006. Hjónin
eignuðust sitt fyrsta
barn, dótturina
Everly, þann 31. maí
síðastliðinn. Tatum var
kjörinn kynþokkafyllsti
karlmaður heims árið
2012 af tímaritinu
People.
■ Meðal kvikmynda
sem Tatum hefur
leikið í má nefna
Public Enemies, G.I.
Joe: The Rise of Cobra,
rómantíska kvikmyndin
Dear John, 21 Jump Street,
Side Effects og G.I. Joe:
Retaliation.
Leikari á uppleið
Hrollvekjan The Purge verður
frumsýnd annað kvöld. Ethan
Hawke fer með aðalhlutverk
myndarinnar sem leikstýrt er
af James DeMonaco. Með önnur
hlutverk fara Lena Headey, Rhys
Wakefield, Chris Mulkey, Edwin
Hodge, Max Burkholder og Adel-
aide Kane.
Myndin gerist árið 2022 og
Bandaríkjastjórn hefur tekið upp
á þeirri nýjung að leyfa hvers
kyns glæpi í tólf klukkustundir
ár hvert. Með þessu hefur stjórn-
inni tekist að lækka glæpatíðni og
atvinnuleysi í landinu. Þessa til-
teknu nótt er löggæsla lögð niður
með öllu og þeir sem ekki taka
þátt í ofbeldinu þurfa að verja sig
gegn því. Líkt og fyrri ár hefur
Sandin-fjölskyldan falið sig inni
í rammgerðu húsi sínu og bíður
þess að nóttin taki enda. Þegar
ókunnugur maður óskar eftir
aðstoð fjölskyldunnar upphefst
æsispennandi barátta upp á líf og
dauða. Kvikmyndin þykir afskap-
lega taugatrekkjandi en gagnrýn-
endur hafa þó ekki farið fögrum
orðum um hana.
Í Bíói Paradís verða ýmsar
kvikmyndaperlur til sýningar í
sumar og verður hrollvekjan The
Evil Dead verður sýnd á laugar-
dag klukkan 22. Myndin er frá
árinu 1981 og er í leikstjórn Sam
Raimi.
Bíógestum skotið skelk í bringu
Tvær hrollvekjur verða sýndar um helgina. The Purge með Ethan Hawke verður
frumsýnd annað kvöld. Þá verður The Evil Dead sýnd í Bíói Paradís á laugardag.
SNÝST TIL
VARNAR
Hryllings-
myndin
The Purge,
með
Ethan
Hawke í
aðalhlut-
verki,
verður
frumsýnd
annað
kvöld.
Leikkonan Cate Blanchett er á meðal þeirra sem
koma að leikstjórn áströlsku kvikmyndar innar
The Turning. Myndin er byggð á smásögu-
safni ástralska rithöfundarins Tims Winton og
í henni eru sagðar sautján ólíkar sögur. Bókin
kom út árið 2005.
Þetta er í fyrsta sinn sem Blanchett reynir
fyrir sér sem leikstjóri, en hún fer einn-
ig með hlutverk í myndinni. Samlandi
Blanchett, leikkonan Mia Wasikowska,
tekur einnig sín fyrstu skref sem
leikstjóri í The Turning. Sagan sem
Blanchett leikstýrir ber titilinn Re-
union en Wasikowska leikstýrir sögu
sem nefnist Long, Clear View.
Blanchett leikstýrir
Cate Blanchett er á meðal leikstjóra The Turning.
LEIKSTÝRIR Cate Blanchett stígur
sín fyrstu skref sem leikstjóri í kvik-
myndinni The Turning.
David Hasselhoff sló fyrst í gegn á
níunda áratugnum í sjónvarpsþátt-
unum Knight Rider. Þar lék hann
Michael Knight, mann sem berst
gegn glæpum með aðstoð bíls af
tegundinni Pontiac Trans Am.
Lengi hefur staðið til að framleiða
kvikmynd byggða á þáttunum og
gæti sú hugmynd orðið að raun-
veruleika innan skamms.
Framleiðslufyrirtækið The
Weinstein Company tryggði sé
kvikmyndaréttinn um Michael
Knight árið 2006 og hefur nú
fengið handritshöfundinn Brad
Copeland til að skrifa uppkast að
kvikmyndinni. Copeland hefur
að mestu unnið innan sjónvarps-
geirans fram að þessu og skrif-
aði meðal annars handrit að
sjónvarpsþáttunum Arrested
Development, My Name Is Earl og
Grounded for Life.
The Weinstein Company hyggst
gera Knight Rider að stórkostlegri
brellumynd og miðað við vinsæld-
ir Fast and Furious-kvikmyndanna
er ekki ólíklegt að myndin nái að
lokka gesti í kvikmyndahús um
víða veröld.
Knight Rider í bíó
Kvikmynd byggð á sjónvarpsþáttunum er í bígerð.
Í BÍÓ Endurgera á sjónvarpsþættina Knight Rider sem kvikmynd. David Hasselhoff
fór með hlutverk Michaels Knight í þáttunum.
Save the Children á Íslandi