Fréttablaðið - 27.06.2013, Síða 60
27. júní 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 44
BAKÞANKAR
Bergs Ebba
Benediktssonar
Ég man ekki eftir því að nein orð hafi verið bönnuð á heimilinu þegar ég
var lítill. Það var ekki vel séð að segja
„djöfullinn“ eða „fjandinn“ en það var
ekki forboðið. Ég minnist þess ekki
að neitt hafi verið forboðið. En nú
stjórna ég sjálfur heimili og ég
er kominn með bannorð. Ég hef
sett bann á tvo frasa. Ég vil ekki
heyra „Oh My God“ og ekki held-
ur „Jesus“ (borið fram „dísös“).
Við þetta vil ég setja tvo fyrirvara.
Í fyrsta lagi þá er ég ekki
alvaldur á heimilinu og það
má vel vera að bann mitt
verði ekki virt og þá verð
ég bara að kyngja því. Í
öðru lagi þá hefur þetta
bann ekkert að gera með
trúarskoðanir eða skort
á þeim. Síður en svo. Ég
þoli ekki frasana „Oh
My God“ og „Jesus“
vegna þess að mér finnst
þeir einmitt afhelga það
sem fagurt er í veröld-
inni. Nú skal ég reyna að
útskýra.
ÉG sá einu sinni hóp pönkara í Berlín.
Þetta var æðislegt gengi: hanakambar og
gaddaleðurjakkar. Skyndilega brá einn
pönkarinn á leik og braut flösku. Mér
stökkbrá og ég taldi mig jafnvel vera kom-
inn í hættu. En þá heyrði ég kunnugleg
orð. „Oh My God!“ Pönkararnir höfðu ekk-
ert merkilegra að segja við uppátækinu en
„Oh My God“ með útvötnuðum amerískum
hreim en eilítið rödduðu þýsku té-i. Hér
vorum við með eitthvað sem leit út eins og
atriði úr Dýragarðsbörnunum en breyttist
skyndilega í flatan Friends-þátt. Þetta
kalla ég skuggahlið alþjóðavæðingar.
„OH MY GOD“ er engilsaxneskur frasi,
þó fremur bandarískur en breskur, en
fyrst og fremst alþjóðlegur. Hann er
lægsti samnefnari tilfinninga okkar, það
sem við grípum til þegar við erum orðlaus.
Sumum finnst það kannski praktískt eða í
öllu falli saklaust, en mér finnst það synd-
samlegt metnaðarleysi. Við erum ríkt fólk
og getum valið um heilu úthöfin af menn-
ingarhafsjó til að kafa í en í staðinn látum
við nægja að ganga upp að næsta drullu-
polli og gára hann með tánni. Oh My God
hvað það er lélegt!
Oh My God!
Kanye West undirbýr nú nýja
fatalínu fyrir franskt fatamerki.
Hinn nýbakaði faðir segist ætla
að gera betur nú en síðast, en
kvenfatalína hans sem kom út
árið 2011 fékk skelfilegar við-
tökur.
„Fatahönnuðir eru í þannig
stöðu að þeir geta algjörlega
sleppt af sér beislinu. Ég reyndi
að gera það en það gekk ekki upp.
Ég varð því að reyna að koma
með eitthvað sem segir: „Þetta
lítur skynsamlega út,“ sagði
rapparinn í viðtali á dögunum.
Fatalínan mun einkennast af
stuttermabolum, gallabuxum og
hettupeysum.
Kanye með
karlafatalínu
REYNIR AFTUR Rapparinn Kanye West
ætlar að gera aðra tilraun til að gefa út
fatalínu undir eigin nafni, en sú fyrri
heppnaðist ekki vel. NORDICPHOTOS/GETTY
Rapparinn Will.i.am hefur lagt fram kæru
á hendur tónlistarmanninum Pharrell Willi-
ams. Sá fyrrnefndi kveðst eiga einkarétt á
setningunni „I am“ og segir Williams hafa
gerst sekan um brot er hann nefndi fatalínu
sína i am Other. Tónlistartímaritið Rolling
Stone sagði frá málinu.
Samkvæmt talsmanni Will.i.am eru lík-
indin við I AM vörummerki Will.i.am of
mikil og gæti það skapað rugling. Williams
er þó ósammála þessu. „Ég er vonsvikinn
yfir því að Will, tónlistarmaður eins og ég,
hafi kært málið. Ég vil miklu heldur ræða
málin og reyndi að bera þetta upp við hann
nokkrum sinnum. Þessi kæra kom mér í
opna skjöldu og ég er sannfærður um að
dómstólum þyki krafa hans jafn tilhæfulaus
og kjánaleg og mér,“ sagði Williams í við-
tali við Rolling Stone. - sm
Rapparar takast á í dómssal
Will.i.am vill ekki að Pharrell Williams nefni fatamerki sitt i am Other.
ÓSÆTTI Will.i.am hefur lagt fram kæru á hendur Pharrell Williams.
NORDICPHOTOS/GETTY
Kelly Rutherford, sem lék í þáttun-
um Gossip Girl, hefur óskað eftir
gjaldþrotaskiptum. Hún hefur átt í
harðvítugri forræðisdeilu við fyrr-
verandi eiginmann sinn sem hefur
höggvið stór skörð í fjárhag hennar.
Samkvæmt ABCNews.com skuld-
ar Rutherford yfir tvær milljónir
dala, eða um 250 milljónir króna.
Eina og hálfa milljón af þeirri upp-
hæð hefur hún greitt í lögfræði-
kostnað vegna forræðisdeilunnar.
Í ágúst síðastliðnum fyrir skipaði
dómari að börn Rutherford og fyrr-
verandi eiginmanns hennar Daniel
Giersch skyldu dvelja áfram í
Frakklandi en þangað heimsóttu
þau föður sinn síðasta sumar. Sú
ákvörðun var mikið áfall, bæði til-
finningalegt og fjárhagslegt, fyrir
hina 44 ára gömlu leikkonu.
Gossip Girl-leikkona
er orðin gjaldþrota
Kelly Rutherford óskar eft ir gjaldþrotaskiptum.
GJALDÞROTA Kelly Rutherford hefur
óskað eftir gjaldþrotaskiptum.
NORDICPHOTOS/GETTY
Jay-Z ætlar að nota textabrot úr
lagi R.E.M., Losing My Religion,
á væntanlegri plötu sinni, Magna
Carta Holy Grail. Textinn verður
notaður í laginu Heaven, en Los-
ing My Religion kom út árið 1991.
Stutt er síðan greint var frá því
að rapparinn ætlaði að nota texta-
brot úr öðru lagi frá 1991, Smells
Like Teen Spirit með Nirvana, á
plötunni. Courtney Love, ekkja
söngvarans Kurts Cobain, gaf
Jay-Z leyfi til þess.
Notar texta frá R.E.M.
JAY-Z Rapparinn ætlar að nota texta-
brot úr laginu Losing My Relegion.
DAGSKRÁIN ER Á WWW.BIOPARADIS.IS OG MIDI.IS
THE PURGE 8 - 10
THE ICEMAN 8 - 10.20
THE INTERNSHIP 5.30
EPIC 2D 5
EPIC 3D 5
FAST & FURIOUS 8 - 10.30
EIN NÓTT Á ÁRI
ALLIR GLÆPIR ERU LÖGLEGIR
5%
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNIKEFLAVÍK
AKUREYRI
NEW YORK POST
T.V. - BÍÓVEFURINN
NEW YORK DAILY NEWS
EMPIRE
H.S.S. - MBL
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
BYGGT Á
SANNSÖ GULEGUM
ATBURÐUM
FORSÝNING Í KVÖLD KL. 8
SUMARTILBOÐ - 2 FYRIR 1
SUMARTILBOÐ - 2 FYRIR 1
SUMARTILBOÐ - 2 FYRIR 1
SUMARTILBOÐ - 2 FYRIR 1
SUMARTILBOÐ - 2 FYRIR 1
THE PURGE KL. 6 - 8 - 10 16
THE INTERNSHIP KL. 5.25 - 8 - 10.35 7
THE INTERNSHIP LÚXUS KL. 5.25 - 8 - 10.35 7
AFTER EARTH KL. 8 - 10.15 12
FAST & THE FURIOUS 6 KL. 8 - 10.45 12
EPIC 2D ÍSL.TAL KL. 3.30 - 5.45 L
EPIC 3D ÍSL.TAL KL. 3.30 - 5.45 L
THE CROODS 2D ÍSL.TAL KL. 3.30 - 5.45 L
THE ICEMAN KL. 5.40 - 8 - 10.20 16
THE INTERNSHIP KL. 5.25 - 10.35 7
AFTER EARTH KL. 5.45 - 8 - 10.15 12
EPIC 3D ÍSL.TAL KL. 5.45 L
THE GREAT GATSBY KL. 6 - 9 12
THIS IS THE END KL. 8 FORSÝNING 16
THE INTERNSHIP KL. 5.40 - 8 7
FAST & FURIOUS 6 KL. 5.40 12
CTHE I EMAN KL. 8 0 - 1 16
AFTER EARTH KL. 10.20 12