Fréttablaðið - 27.06.2013, Side 64
27. júní 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 48
HANDBOLTI Gunnar Steinn Jónsson
hefur verið að gera það gott með
Nantes í frönsku úrvalsdeildinni
í handknattleik undanfarið ár og
líkar dvölin í Frakklandi vel. Leik-
maðurinn fær ekki tækifærið í
landsliðinu þrátt fyrir að spila með
sterku liði í einni stærstu deild í
heimi.
„Mér fór að ganga vel þegar leið
á tímabilið hér úti í Frakklandi,“
segir Gunnar Steinn Jónsson, leik-
maður Nantes.
Atvinnumannaferill Gunnars
hófst fyrir fjórum árum þegar
leikmaðurinn fór til sænska
félagsins HK Drott.
„Það gekk rosalega vel hjá mér í
Svíþjóð og strax á fyrsta ári komst
liðið alla leið í úrslit. Fyrsta tíma-
bilið var mikið ævintýri fyrir mig
persónulega og gaf mér mikið
sjálfstraust upp á framhaldið að
gera. Ég bætti mig gríðarlega
mikið í Svíþjóð og var orðinn lykil-
maður í liðinu þegar leið á. Þar lék
ég sextíu mínútur í hverjum leik
og var með stórt hlutverk.“
Förinni heitið til Frakklands
„Fyrir síðasta tímabil ákvað ég
að færa mig um set og prófa nýja
hluti. Deildin í Frakklandi er allt
öðruvísi og í raun allt önnur íþrótt.
Það er hægt að bæta við tuttugu
kílóum á hvern varnarmann í
frönsku deildinni saman borið
við sænsku deildina og maður
þurfti að aðlagast því. Það er mun
meiri harka í frönsku deildinni og
kannski minna um hraða og tækni.
Ég varð að fara sjálfur í lyftinga-
salinn og bæta vel á mig þegar ég
kom í frönsku deildina.“
Hann segir að tímabilið hjá
Nantes hafi verið fremur súrsætt.
„Við töpuðum lokaleiknum, sem
kostaði okkur fjórða sætið og þar
af leiðandi Evrópusæti. Við höfn-
uðum því í því fimmta, sem mun
reyndar mögulega gefa okkur
Evrópusæti eftir allt saman, en
franska deildin er að verða gríðar-
lega sterk. Liðið komst í úrslit í
franska bikarnum og í Evrópu-
keppninni en þeir leikir töpuðust
báðir. Við vorum í raun einu skrefi
frá öllu. Þetta er mjög ungt lið og
allir í kringum það voru sáttir við
okkar frammistöðu á tímabilinu
en félagið hefur aldrei unnið titil
og er nýkomið upp í efstu deild.
Það varð algjör sprengja í þess-
ari deild rétt eftir að ég kom til
Nantes og í dag er franska deild-
in að verða sú allra heitasta. Ég
var í raun mjög heppinn þar sem
ég gekk í raðir félagsins rétt áður
en stórir fjárfestar fóru að dæla
peningum í nokkur lið í deildinni.
Núna virðast allir vilja koma til
Frakklands og að mínu mati er
þetta eina deildin sem er á mikilli
uppleið í Evrópu í dag.“
Spurður tíu sinnum á dag
Gunnar Steinn var staddur hér
á landi í fríi á dögunum og barst
talið oft að íslenska landsliðinu.
„Ég er líklega spurður, af vinum
og vandamönnum, svona tíu sinn-
um á dag út í íslenska lands liðið
og af hverju ég er ekki valinn.
Íslenska landsliðið hefur senni-
lega verið með sitt allra besta lið
sögunnar undanfarin ár og það er
ekki gefið að maður gangi bara inn
í það. Mér finnst aftur á móti frek-
ar asnalegt að ég hafi aldrei fengið
tækifæri til þess að æfa með lið-
inu eða vera hluti af einhverjum
æfingahópi. Ég er að spila í kring-
um heimsklassaleikmenn allt árið
um kring og stend mig nokkuð vel.
Því tel ég mig eiga fullt erindi í
landsliðið. Nánast allir liðs félagar
mínir eru alltaf kallaðir í lands-
liðsverkefni og þá æfi ég bara einn
hjá liðinu út í Frakklandi, sem er
nokkuð spaugilegt. Mark miðið
með því að færa sig til Frakk-
lands var kannski fyrst og fremst
að eiga meiri möguleika á að kom-
ast í landsliðið.“
Ekkert heyrt í þjálfurum
En hafa landsliðsþjálfarar undan-
farinna ára haft samband við
Gunnar?
„Ég hef ekki tekið eftir því að
menn séu að fylgjast með mér hér
og Aron [Kristjánsson, landsliðs-
þjálfari Íslands] hefur aldrei haft
samband við mig. Ég heyrði heldur
aldrei í Guðmundi Guðmundssyni
[fyrrum landsliðsþjálfara],“ segir
Gunnar Steinn, en Fréttablaðið
hefur eftir áreiðanlegum heim-
ildum að Guðmundur Guðmunds-
son hafi séð leikmanninn spila í
úrslitum um sænska meistaratitil-
inn árið 2010 í Malmö Arena þegar
Drott tapaði eftir framlengdan
leik. Gunnar Steinn leikur í dag
með mönnum á borð við Alberto
Entrerríos, Jorge Maqueda og
Valero Rivera sem eru allir í
byrjunar liði spænska landsliðsins
í handknattleik. Spánn varð heims-
meistari í janúar á þessu ári.
Frábært líf í Frakklandi
Miðjumaðurinn er nýkominn úr
aðgerð á öxl en skrapa þurfti bein
frá liðamótum sem hafði verið að
trufla Gunnar síðastliðin ár.
„Þetta var ekki alvarleg aðgerð
en samt sem áður nauðsynleg. Ég
ætti vera klár fyrir næsta tímabil.
Ég er með samning við Nantes út
næsta tímabil og er ekkert á leið-
inni í burtu.“
stefanp@frettabladid.is
SPORT
Ég á erindi í landsliðið
Gunnar Steinn Jónsson, leikmaður Nantes, hefur verið atvinnumaður í handknattleik í fj ögur ár en aldrei
fengið tækifærið með íslenska landsliðinu. Leikmaðurinn færði sig frá Svíþjóð til Frakklands til að eiga
meiri möguleika á því að komast í eitt besta handknattleikslið Evrópu, lið Íslands.
STÓRHUGA Gunnar Steinn fór til Frakklands til að eiga möguleika á því að komast
í íslenska landsliðið. Leikmaðurinn hefur ekki lagt árar í bát og vill meina að hann
eigi skilið tækifæri. Lífið leikur við fjölskylduna í Frakklandi, þau Gunnar Stein,
Elísabetu Gunnarsdóttur og Ölbu Mist dóttur þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Það kom Gunnari á óvart hversu
stór hluti tungumálið er af
íþróttinni en það reyndist honum
erfitt að sinna sínu hlutverki sem
leikstjórnandi með engin tök á
frönsku.
„Það var nokkuð erfitt að flytja
sig yfir til Frakklands þar sem
allir tala bara frönsku. Fyrir mig
sem leikstjórnanda var það sér-
staklega strembið þegar maður
átti að eiga í samskiptum við
liðsfélaga sína inni á vellinum. Ég
fór strax í frönskukennslu tvisvar
í viku og þegar tungumálið var
komið vel á veg fór boltinn að
rúlla betur fyrir mig sem leik-
mann.“
Tók tíma að ná tökum á frönskunni
H Ú S G AG N A H Ö L L I N O P I Ð
O G O P I Ð E I T T S Í M A N Ú M E R
ÚTSALA
SUMAR-
| |
| |
| |
|
| | |
UREYRI | REYKJAVÍK | AKU
REYRI | REYKJAVÍK | AKUR
EYRI |
– fyrir lifandi heimili –
AFSLÁTTUR
%50
ALLT AÐ
GOLF Í gær var tilkynnt um
úthlutun úr Forskoti, afrekssjóði
íslenskra kylfinga. Styrkirnir
námu alls 15 milljónum króna og
ákvað stjórn sjóðsins að styrkja
sex kylfinga að þessu sinni.
Styrki hlutu Birgir Leifur Haf-
þórsson, Ólafur Björn Loftsson
og Þórður Rafn Gissurarson, sem
allir eru atvinnukylfingar. Þá
fengu þau Axel Bóasson og Ólafía
Þórunn Kristinsdóttir styrki
fyrir einstök verkefni og Einar
Haukur Óskarsson fyrir þátttöku
sína í Nordea-mótaröðinni.
Þeir aðilar sem standa að sjóðn-
um auk Golfsambands Íslands
eru Eimskip, Valitor, Íslands-
banki og Icelandair Group. - esá
Styrkir til
afrekskylfi nga
BIRGIR LEIFUR Einn sex styrkþega úr
Forskoti. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Brasilía keppir til
úrslita um Álfubikarinn í knatt-
spyrnu í fimmta sinn frá upphafi.
Liðið mun freista þess að vinna
keppnina í þriðja skiptið í röð í
úrslitaleiknum á sunnudag en
andstæðingurinn verður annað-
hvort Spánn eða Ítalía, sem mæt-
ast í hinni undanúrslitum í kvöld.
Brasilía hafði betur gegn
Úrúgvæ í gær, 2-1, en ung stirnið
Neymar lagði upp bæði mörk
sinna manna fyrir þá Fred og
Paulinho. Edinson Cavani skoraði
mark Úrúgvæ, sem fékk tækifæri
til að komast yfir snemma leiks.
Julio Cesar varði þá vítaspyrnu
frá Diego Forlan. - esá
Brasilía í úrslit
Álfubikarsins
MAGNAÐUR Neymar lagði upp bæði
mörk Brasilíu í gær. NORDICPHOTOS/AFP
Markmiðið með
því að færa mig til
Frakklands var að
komast í landsliðið.
Gunnar Steinn Jónsson