Fréttablaðið - 27.06.2013, Síða 70
27. júní 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 54
„Þetta er náttúrulega frábær heiður,“ segir
Helgi Rúnar Gunnarsson, gítarleikari og
söngvari Benny Crespo ś Gang. Hann spilar
sem gestur með Botnleðju á útgáfutónleikum
rokkaranna í Austurbæ í kvöld.
Aðspurður segist Helgi Rúnar hafa verið
mikill Botnleðjuaðdáandi þegar hann var yngri.
„Þegar Drullumall og Fólk er fífl komu út var
ég tíu eða ellefu ára gamall. Ég var búinn að
vera að hlusta á Nirvana og þetta hitti algjör-
lega í mark hjá mér á þeim tíma,“ segir hann.
„Ég sá þá hita upp fyrir Blur í Laugardals-
höllinni ´96 og síðan fékk ég Fólk er fífl-diskinn
í jólagjöf. Ég held ég hafi bara hlustað á hann og
Nirvana næstu tvö árin.“
Helgi Rúnar hefur þekkt þá Heiðar Örn
Kristjánsson og Harald Frey Gíslason úr Botn-
leðju í þónokkurn tíma því þeir hafa unnið með
Magnúsi Öder, félaga hans úr Benny Crespo ś
Gang, við upptökur á plötum Pollapönks. Hann
ber þeim vel söguna og hlakkar mikið til að
spila þeim þeim í Austurbæ.
Enn eru til miðar á útgáfutónleikana. Sigur-
hljómsveit Músíktilrauna, Vök, hitar upp. - fb
Heiður að spila með Botnleðju
Helgi Rúnar Gunnarsson aðstoðar Botnleðju á útgáfutónleikum í kvöld.
SPILAR
MEÐ
BOTNLEÐJU
Helgi Rúnar
Gunnarsson
(lengst til
vinstri)
ásamt
hljóm-
sveitinni
botnleðju.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON
➜ Önnur plata Benny Crespó s Gang
er væntanleg í haust.
„Þetta er náttúrulega alveg svakalega
gaman. Þetta er ein af stóru hátíðunum
í Evrópu, ásamt kvikmyndahátíðinni í
Cannes, í Berlín og fleirum,“ segir Balt-
asar Kormákur leikstjóri.
Nýjasta kvikmynd Baltasars Kormáks,
2 Guns, verður heimsfrumsýnd á opn-
unarhátíð hinnar árlegu Locarno kvik-
myndahátíðar. Hátíðin fer fram í bænum
Locarno í Sviss þann sjöunda ágúst og er
þetta í sextugasta og sjötta sinn sem hún
er haldin.
Fyrsta leikstjóraverkefni Baltasars
Kormáks, 101 Reykjavík, var valið til
þátttöku í keppni kvikmyndahátíðarinnar
árið 2000. Nú snýr hann aftur með banda-
ríska spennugamanmynd sem skartar
Denzel Washington, Mark Wahlberg og
Paulu Patton í aðalhlutverkum.
„Það var á þessari hátíð sem allt fór af
stað, þannig að það er alveg sérstaklega
skemmtilegt að koma aftur þangað,“ bætir
Baltasar við.
Baltasar mun verða viðstaddur sýninguna
á 2 Guns og halda tölu áður en sýningin
hefst. „Þetta verða eins og rokktónleikar.
Sýningin er úti, á torgi, og þar verða um
það bil átta þúsund manns,“ útskýrir Balt-
asar.
- ósk
Heimsfrumsýnd í hjarta Evrópu
2 Guns eft ir Baltasar Kormák verður opnunarmynd virtrar kvikmyndahátíðar
BALTASAR
KORMÁKUR
Leikstjóri
2 Guns.
NORDICPHOTOS/
GETTY
„Ég er að fara á Hornstrandir. Þetta
er jómfrúarferðin mín á fjöll. Ég var
að fá 30 þúsund króna gönguskó í
afmælisgjöf og fer á föstudaginn.“
Vala Höskuldsdóttir, listakona.
SUMARFRÍIÐ
DY
NA
M
O
RE
YK
JA
VÍ
K
1. SÆTI
EYMUNDSSON
- KILJUR
19. - 25. JÚNÍ
„Á SKILIÐ AÐ
VERÐA SUMAR-
SMELLUR!“
★★★★★
„Stórkostleg saga.
Hún grætir og kætir.“
– Kristjana Guðbrandsdóttir,
DV
„Ekki láta sumarið líða án þess að
lesa Maður sem heitir Ove ... í senn
hrífandi og fyndin og lesandinn er
líklegur til að skiptast á að hlæja
og gráta. ... Á skilið að verða
sumarsmellur.“
– Kolbrún Bergþórsdóttir,
Morgunblaðinu
„Einfaldlega
hrein
dásemd“
– Kolbrún Bergþórsdó
ttir,
Morgunblaðinu
– Kolbrún Bergþórsdóttir, Mbl.
Borð fyrir 5 er nýr íslenskur
þáttur sem hefst á Skjá einum í
haust. Átta pör verða valin úr hópi
umsækjenda til að halda þriggja
rétta matarboð á heimili sínu fyrir
þrjá valinkunna dómara.
Að sögn Hilmars Björnssonar,
dagskrástjóra Skjás eins, er leitast
eftir því að hafa pörin sem taka
þátt sem ólíkust og að margt fleira
en góður matur þurfi til að þess
sigra keppnina. „Til þess að heilla
dómarana þarftu að hugsa út fyrir
boxið, koma dómurunum á óvart
og halda góða veislu. Dómararnir
gefa síðan stig fyrir stemmning-
una, matinn, vínið og umgjörðina
á veislunni almennt.“
Búið er að opinbera nafnið á
einum dómaranna í þáttunum en
það mun vera Svavar Örn Svavars-
son, hárgreiðslu- og útvarpsmaður
á K100. Hverjir hinir dómararn-
ir tveir eru kemur í ljós á næstu
dögum en að sögn Hilmars verður
annar þeirra kokkur.
Hilmar telur að þættirnir ættu
að höfða til Íslendinga, sem hann
segir að séu upp til hópa mjög for-
vitnir. „Ég held að fólk hafi mjög
gaman að því að sjá inn á heimili
fólks og fylgjast með hvernig það
heldur matarboð í mjög krefjandi
aðstæðum.“
Ekki eru gerðar neinar aðrar
kröfur til umsækjenda en að þeir
hafi metnað fyrir því að halda
skemmtilega veislu og hann hvet-
ur pör, jafnt ung sem aldin, til að
sækja um. „Það verður áhugavert
að sjá hvað fólk mun bjóða upp á en
það mun fá alveg frjálsar hendur
varðandi veitingar og annað. Við
viljum helst fá fólk á öllum aldri
og með sem fjölbreyttastan bak-
grunn til að sækja um. Það er líka
til mikils að vinna því sigurparið
mun hljóta veglegan vinning.“
Auglýst verður eftir umsækjend-
um í þættina í júlí. hannarut@365
Sjónvarpsþættir fyrir
forvitna Íslendinga
Borð fyrir 5 er spennandi þáttur sem hefur göngu sína á Skjá einum í haust.
GÓÐA VEISLU
GJÖRA SKAL
Hilmar Björns-
son, dagskrástjóri
Skjás eins, hvetur
alla sem hafa
gaman að því að
halda góða veislu
til að sækja um
að vera með í
þáttunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Raunveruleikaþættir sem byggðir eru á venjulegu fólki sem hafa ástríðu
fyrir matargerð hafa notið gríðarlegra vinsælda undanfarin misseri.
Má þar nefna þætti á borð við Masterchef sem sýndir voru í íslenskri
útgáfu á Stöð 2 síðastliðinn vetur og Come Dine with Me sem hafa
slegið í gegn út um allan heim.
Matreiðsluþættir slá í gegn
Minna að fletta
meira að frétta
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
BESTI FRÉTTA- OG
AFÞREYINGARVEFURINN
Úr umsögn dómnefndar: „Vefurinn býður upp á margskonar
afþreyingu auk gífurlegs úrvals frétta. Vefurinn er léttur og
skemmtilegur auk þess sem einfalt og fljótlegt er að finna
það efni sem leitað er að.“