Fréttablaðið - 11.07.2013, Page 18
11. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 18
Staða íslenskra neytenda á fjár-
málamarkaði er bágmorin saman-
borið við önnur Norðurlandaríki, að
mati nefndar um málið sem skipuð
var af forsætisráðuneytinu.
Nefndin leggur til að samkeppnis-
umhverfi á fjármálamarkaði verði
styrkt, meðal
a n na rs með
því að afnema
stimpilgjöld og
bæta upplýs-
ingagjöf neyt-
enda á markaðn-
um, en slíku er
afar ábótavant.
„Við teljum
að stimpilgjöld
og almenn lán-
tökugjöld séu
samkeppnisleg
hindrun á fjár-
málamarkaði
þar sem þau
koma í veg fyrir
að fýsilegt sé
fyrir viðskipta-
vini bankastofn-
ana að skipta
um lánveitanda
sem býður betri
kjör,“ segir Guðbjörg Eva Baldurs-
dóttir, formaður nefndarinnar, og
bætir við að mikilvægt sé að stjórn-
völd fari í endurskoðun á slíkum
gjöldum. „Stimpilgjöld eru fáheyrð
öðrum Evrópuríkjum enda koma
þau í veg fyrir eðlilega samkeppni
á fjármálamarkaði.“
Nefndin leggur einnig til að sett
verði á fót einhvers konar saman-
burðarverðsjá þar sem allar upp-
lýsingar um fjármálaþjónustu eru
veittar á skýran og aðgengilegan
hátt og að stofnað verði nýtt emb-
ætti sem reki slíka þjónustu ásamt
því að halda utan um neytendamál
á þessu sviði.
„Það er lykilatriði að veita neyt-
endum samanburð á kjörum fjár-
málastofnana, sem er erfiðleikum
háð í dag. Eins og staðan er núna
er ógjörningur að fara í samanburð
á kjörum en slíka þjónustu er að
finna í öllum hinum Norðurlanda-
ríkjunum,“ segir Guðbjörg Eva og
bætir við að bankarnir þrír séu allir
með sama lántökugjald sem gripið
er úr lausu lofti.
„Fjármálaafurðir eru flóknari
í eðli sínu en aðrar vörur en það
verður að tryggja að neytendur á
þeim markaði fái sömu vernd og á
öðrum mörkuðum.“
Ásgeir Jónson hagfræðingur
tekur undir tillögur nefndarinnar
og segir gríðarlega mikilvægt að
auka gegnsæi á markaðnum.
„Það ríkir nokkurs konar ein-
okun á íslenskum bankamarkaði
sem þarf að vinna gegn og það er
meðal annars gert með því að gefa
neytendum greiðari aðgang að upp-
lýsingum um fjármögnunarleiðir og
að halda lántökugjöldum í lágmarki
til þess að auðvelda þeim að færa
sig á milli fjármálastofnana,“ segir
Ásgeir.
„Til dæmis eru stimpilgjöld gjöld
sem þarf að greiða fyrir enga þjón-
ustu, slík gjaldtaka hindrar sam-
keppni og hana þarf að afnema,“
segir Ásgeir og leggur áherslu á að
lykilatriði sé að auka upplýsinga-
flæði til neytenda um mismunandi
fjármögnunarleiðir. - le
Efla þarf stöðu íslenskra
neytenda á fjármálamarkaði
Nefnd sem skipuð var til að kanna vernd neytenda á fjármálamarkaði leggur til að stimpilgjöld verði afnumin og
ríkisstjórnin beiti sér fyrir samanburðarverðsjá. Auðvelda þarf neytendum að færa sig á milli fjármálastofnana.
Í RÁÐANDI STÖÐU Þrír stærstu bankar á Íslandi eru í sameiginlegum yfirráðum á
markaði, sem setur íslenska neytendur í slæma stöðu. SAMSETT MYND
Tillögur nefndarinnar voru samþykktar á ríkisstjórnarfundi í apríl á
þessu ári. Þau svör bárust frá fjármálaráðuneytinu að mikilvægt sé að
bregðast við slæmri stöðu neytenda á fjármálamarkaði og að efla verði
samkeppnis umhverfi á markaðnum.
Stefnt er að því að vinna að bættri stöðu neytenda í þessum málaflokki
í haust og verða tillögur skýrslunnar lagðar til grundvallar ásamt öðrum
gögnum.
Unnið verður að tillögum í haust
ÁSGEIR JÓNSSON
GUÐBJÖRG EVA
BALDURSDÓTTIR
Tæknifyrirtækið Apple hefur
verið dæmt til að greiða sekt
vegna markaðssamráðs. Fyrir-
tækið á að hafa haft samráð við
bókaútgefendur um verðlagningu
á rafbókum.
Bandarískur dómari segir að
Apple hafi gerst sekt um að hafa
reynt að hefta frjáls viðskipti og
verðlagningu og þannig náð að
halda uppi verði á rafbókum.
Bókaútgefendurnir sem eiga að
hafa tekið þátt í samráðinu eru
fimm talsins og hafa þeir allir
fallist á að greiða sektir vegna
málsins.
Dæmt fyrir markaðssamráð:
Apple sektað
TÆKNIRISINN BROTLEGUR Apple
hafði samráð við bókaútgefendur.
LÍFEYRISSJÓÐIR
Draga þarf úr halla
Lífeyrissjóðirnir eru stórir í efnahags-
legu tilliti en umtalsverður halli er enn
á tryggingafræðilegri stöðu þeirra, að
því er fram kemur í upplýsingum frá
Fjármálaeftirlitinu, fyrir stöðu sjóðanna
á árinu 2012. Fjármálaeftirlitið segir
að til að draga megi úr halla í lífeyris-
kerfinu þurfi að hækka iðgjöld, skerða
réttindi eða hækka lífeyrisaldur.
MERK
JAVAR
A Á G
ÓÐU V
ERÐI
SPORTÍS
LAGE
RHRE
INSUN
!
ÓTRÚLEG VERÐ - NÝJAR VÖRUR DAGLEGA!
SPOR
TÍS
30 - 70% AFSLÁTTUR!
MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS