Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.07.2013, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 19.07.2013, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 19. júlí 2013 | SKOÐUN | 11 Mýrdalshreppur skipulags – og byggingarfulltrúi Auglýsing um skipulagsmál í Mýrdalshreppi Breyting á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028 Í samræmi við 31.gr. Skipulagslaga nr.123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum vegna tillögu að breyttu aðal- skipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028. Um er að ræða breyttan landnotkunarflokk við Suðurvíkurveg 1. Landnotkunarflokkur viðkomandi reits breytist úr „þjónustustofnun“ í „verslun og þjónustu“. Tillaga að Deiliskipulagi Í samræmi við 1. og 2.mgr.41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum vegna deiliskipu- lagstillögu fyrir Suðurvíkurveg og Mylluland Vík í Mýrdal. Um er að ræða deiliskipulag á grunni aðalskipulagsbreyt- ingar við Suðurvíkurveg 1 og skipulagningu hverfis við Mylluland. Viðkomandi aðal- og deiliskipulagstillögur liggja frammi hjá fulltrúa skipulags-og byggingarmála í Mýrdalshreppi, Austurvegi 17, 870 Vík og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 19.júlí til 5. September 2013. Athugasemda- frestur við tillögur þessar er til 5.september 2013. Athuga- semdum skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna teljast samþykkar þeim. Fh.Skipulags-og Byggingarfulltrúa Vigfús Þór Hróbjartsson Fulltrúi skipulags-og byggingarmála Mýrdals-og Skaftárhreppi Ég ferðast oft með strætó. Það gera, sem betur fer, æ fleiri. Sumir þeirra ferðast reyndar með ósýnilegan vin með sér. Þeir sjálfir sitja þá við ganginn en ósýnilegi vinurinn tyllir sér gjarnan við gluggann. Bæði sætin eru því frátekin: Gangsætið fyrir þann holdi klædda, en glugga- sætið fyrir hinn ósýnilega. Auð- vitað dettur engum í hug að reyna að troða sér fram hjá raunmann- inum og setjast í gluggasætið. Þá myndi maður setjast á vininn ósýnilega. Og það er dónaskapur að setjast á fólk, þótt ósýnilegt sé. Já, það er þægilegt að vera með tvö sæti í stað eins. Og menn eru vissulega misfrekir á þetta auka- sæti sitt. Sumir færa sig um leið og vagninn fer að fyllast. Aðrir bíða með það í lengstu lög, í von um að nýir farþegar setjist frekar við hlið einhvers sem er ekki jafn- frekur á pláss sitt. En sumir sitja sem fastast þótt vagninn sé orðinn troðfullur og fólk þurfi að standa. Þessir plássvandlátu farþegar horfa oft niður á snjall símann til að forðast augnaráð hinna og stundum geyma þeir töskuna sína í gluggasætinu. Skilaboðin eru skýr: „Ég kom hingað fyrstur. Ég vil fá að vera út af fyrir mig. Nei, þú mátt ekki setjast. Þú getur fundið þér annað sæti.“ Standið bara Fyrr í mánuðinum gekk Króatía í Evrópusambandið. Þar með öðluðust króatískir borgarar rétt til að flytja til annarra ríkja ESB og EES. Ríkin hafa reyndar heim- ildir til að setja tíma bundnar skorður við þessum flutn ingum, sum þeirra hafa gert það, en meirihluti þeirra, þar með talin Danmörk, Svíþjóð, Finnland og Írland, ekki. Ísland virðist hins vegar ætla að vera í vonda liðinu, allavega til að byrja með. Afstaða Íslands ætlar því verða hin sama og afstaða farþegans í gang- sætinu. Farþegans sem hvikar hvergi og hugsar: „Er ekki nóg af sætum? Annars staðar en hjá mér?“ Opnum á Króatíu Íbúar Króatíu eru innan við 1% af íbúum ESB. Ég myndi raunar fagna því ef einhverjir þeirra kysu að flytjast til Íslands í leit að betra lífi. En þeir verða örugglega ekki mjög margir, stærri lönd sem liggja nær hafa þegar opnað sín landamæri fyrir Króötum og flestir þeirra sem á annað borð hyggjast flytja munu enda í þeim löndum. Samkvæmt frétt RÚV vilja Sam- tök atvinnulífsins að Ísland opni sín landamæri fyrir Króötum. Mannvinirnir hjá ASÍ eru því hins vegar andvígir. Í fréttinni segir: „Undanþáguheimildin [til að tak- marka frjálsa flæðið] heyrir undir félagsmálaráðherra. Í áliti ASÍ til ráðuneytisins er óskað eftir því að stjórnvöld nýti hana. Í minnisblaði kemur fram að ef til vill séu ekki veigamikil vinnumarkaðsleg rök fyrir því. Aftur á móti geti staðan breyst á skömmum tíma. Liecht- enstein og Noregur ætli að nýta sér heimildina og ákveðin rök séu fólgin í því að eiga samleið með Noregi.“ Sem sagt: ASÍ telur ekki veiga- mikil rök fyrir því að loka á fólk frá Króatíu en vill gera það samt. Það vill geyma plássið fyrir ósýnilega vininn. Það vill geta lagt frá sér töskuna í glugga- sætið. Fólkið getur sest annars staðar, eða bara staðið. Það þarf nú ekki að standa lengi. Bara kannski í svona tvö ár til við- bótar. Eða mest sjö. En er þetta ekki ungt fólk og heilsuhraust? ASÍ ræður þessu ekki ASÍ eru hagsmunasamtök. Þau vilja væntanlega ekki að kjör félagsmanna í aðildarfélögum ASÍ skerðist með aukinni sam- keppni erlendis frá. Kannski er það skiljanlegt. En mér finnst það ekki mjög vingjarnlegt. Og raunar líka efnislega rangt. Það verður ekkert verra að vera launþegi þótt Íslendingum fjölgi. Fleira nýtt fólk mun þýða fleiri ný tækifæri. En kannski skiptir ekki máli hvað ASÍ finnst. Það er ekki slíkra samtaka að móta stefn- una. Við ættum að opna á frjálst flæði fólks frá Króatíu. Og ekki einu sinni af neinum mannúðar- ástæðum heldur vegna þess að græðum á því að fá fólk. Það er kominn tími til að leggja töskuna á lærin og færa sig í gluggasætið. Þetta verður allt í lagi. Ósýnilegir vinir ASÍ Við ættum að opna á frjálst flæði fólks frá Króatíu. Í DAG Pawel Bartoszek stærðfræðingur MERK JAVAR A Á G ÓÐU V ERÐI SPORTÍS LAGE RHRE INSUN ! ÓTRÚLEG VERÐ - NÝJAR VÖRUR DAGLEGA! SPOR TÍS 30 - 70% AFSLÁTTUR! MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.