Fréttablaðið - 19.07.2013, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 19.07.2013, Blaðsíða 22
FRÉTTABLAÐIÐ Litríkt hár. Helgarmaturinn og Spjörunum úr. 6 • LÍFIÐ 19. JÚLÍ 2013 V efverslunin Nekoshop.is leggur áherslu á litríka og skemmtilega tísku undir áhrifum frá götutísku í Japan. Lengi vel hefur tíðkast að stúlkur séu með litríkar hárkollur en upp á síðkastið hefur það þó færst í aukana að japanskar stelpur vilji leika sér með eigið hár. Því hafa hár- krítar náð tölu verðum vinsældum þar í landi. Hárkrítar eru skemmtileg leið til að breyta háralitnum tímabundið og prófa sig áfram. Neko hefur nú hafið sölu á svokölluðum mungyo-krít- um en þær eru eingöngu ætlaðar fyrir hárið og eru því ekki eins og götu- krítar sem krakkar leika sér með. Krítarnar koma frá Kóreu og fást í fjórum mismunandi litasettum en í hverjum pakka eru sex litir. Aðferð við að nota hárkrítarnar. ■ Ljóst hár skal vera þurrt og greitt. Svo er einn lokkur tekinn fyrir sig og hann krítaður niður á við með krítunum. ■ Sé um dökkt hár að ræða er nauð- synlegt að bleyta hvern lokk til að liturinn verði dekkri og sjáist betur. ■ Þá er gott að nota spreybrúsa og spreyja lokkinn létt áður en krítin er sett í. ■ Best er að leyfa hárinu að þorna af sjálfu sér en einnig er hægt að nota hárþurrku. ■ Gott er að annaðhvort slétta eða krulla lokkinn til að festa litinn betur í og loks er hægt að nota hársprey ef vill. HÁRKRÍTAR Í ÖLLUM REGNBOGANS LITUM Á sumrin leika börn sér með krítar úti þegar veður leyfi r. Nú eru hins vegar komnar krítar fyrir fullorðna sem setja skal í hárið. Krítarnar eru auðveldar í notkun og fást í mörgum litum. Hildur Kristín krítar hár Guðrúnar Gígju. Krítarnar eru einfaldar og ansi skemmti- legar í notkun. Hárkrítarnar fást í mörgum litum. Hægt er að blanda saman litum og liturinn verður sterkari í blautu hári. Hildur Kristín Stefánsdóttir, eigandi Neko. Liturinn næst svo úr í þvotti, oftast með einum hárþvotti en ef hárið er mjög ljóst gæti þurft 2-3 þvotta til að ná þeim úr. Ásgerður Snævarr með bláa hárkrít. Dönsku astma- og ofnæmissamtökin Astma- og ofnæmisfélagið á Íslandi mælir með vörum frá FÁÐU GÓÐ RÁÐ VIÐ OFNÆMI NEUTRAL.IS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.