Fréttablaðið - 09.08.2013, Síða 10
9. ágúst 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Lifðu, lærðu,
leiktu með
Sony Vaio
Borgartún 37, Reykjavík / Kaupangi, Akureyri / netverslun.is
Fislétt orkubúnt
13,3" snertiskjár
Intel Core i7 örgjörvi
4 GB minni
24 GB SSD og 500 GB diskar
Verð: 159.990 kr.
UMHVERFISMÁL Talsmaður hrefnu-
veiðimanna segir límmiðaátak
IFAW-samtakanna og Hvalaskoð-
unarsamtaka Íslands fela í sér
atvinnuróg gegn fámennri starf-
semi hrefnuveiðimanna. Fulltrúi
IFAW á Íslandi vill stöðva hval-
veiðar og segir að það verði komið
að þeirri baráttu úr öllum áttum.
Nú eru 54 veitingastaðir sem
hafa yfirlýsta stefnu um að selja
ekki hvalkjöt komnir með lím-
miða við innganga sína.
Gunnari Bergmann Jónssyni,
talsmanni hrefnuveiðimanna,
þykir þetta átak harkalegt og
ganga lengra en fyrri mótmæla-
aðgerðir hvalafriðunarsinna.
„Þetta eru kaffihús, pitsustaðir
og núðluhús og mér finnst for-
kastanlegt að þessir staðir séu að
mótmæla hvalveiðum með þess-
um hætti,“ segir hann.
Hann segir þetta atvinnuróg.
„Af hverju er meirihlutinn af
veitingahúsum að bjóða upp á
hrefnukjöt? Er það af því að þau
eru svo fylgjandi hvalveiðum?
Nei, þetta er ekki spurning um
það,“ spyr og svarar Gunnar.
„Þetta snýst bara um viðskipti.“
Sigursteinn Másson, fulltrúi
IFAW á Íslandi, segir að auk lím-
miðanna hafa samtökin haft frá
byrjun um 200 sjálfboðaliða alls
staðar að úr heiminum.
„Þeir hafa verið að tala við
ferðamenn og gera þeim grein
fyrir því að ef þeir smakka hval-
kjöt á veitingastöðum séu þeir þar
með að ýta undir hvalveiðar.“
Sigursteinn hefur eindreginn
vilja til þess að hvalveiðum verði
hætt. „Við komum að þessari bar-
áttu, að hvalveiðarnar hætti, úr
ýmsum áttum sem við þurfum til
þess að ná árangri. Meðal annars
með nánu samstarfi við ferða-
þjónustuna og veitingastaði.“
Hann segir staðina 54 vera full-
gilda veitingastaði. „Menn geta
ekkert gert lítið úr þessum veit-
ingahúsum af því að þau hafa
kosið að gera rétt. Þessir staðir
eiga það allir sameiginlegt að
vera með à la carte-matseðil.
Þannig að þetta eru ekki bara
sjoppur. Pitsustaðir eru fullgildir
veitingastaðir hvað sem hrefnu-
veiðimönnum finnst.“
nannae@365.is
Kalla límmiðaátak
IFAW atvinnuróg
Hrefnuveiðimönnum þykir nýlegt átak IFAW ganga lengra en áður. Veitingastaðir,
eru merktir þannig að ekki fari á milli mála að þar séu menn andvígir hvalveið-
um. Talsmaður IFAW vill stöðva hvalveiðar og segir veitingastaðina í fullum rétti.
SIGURSTEINN
MÁSSON
GUNNAR BERG-
MANN JÓNSSON
FERÐAMÁL „Þetta hefði hljómað eins
og skrýtla fyrir nokkrum árum,“
segir Gísli Már Gíslason, formað-
ur Bjargtanga sem er félag land-
eigenda á Látrum, um þá þungu
bílaumferð sem fer gegnum sumar-
bústaðabyggðina á Látrum.
Hákon Ásgeirsson landvörður
segir nýlega talningu sýna að um
120 bílar að meðaltali á dag keyri
í gegnum sumarbústaðabyggðina
áleiðis að Látrabjargi. Um ellefu
þúsund manns fóru að bjarginu í
júlí síðastliðnum.
„Við í bústöðunum erum bara í
reykmekkinum,“ segir Gísli Már.
Gert er ráð fyrir nýjum vegi fyrir
ofan sumarbústaðabyggðina á vega-
áætlun en þó er töluverð vinna eftir
til að hægt sé að hefjast handa við
gerð hans.
Eins er verið að kanna áhuga
landeigenda á því hvort vilji standi
til þess að gera svæðið að þjóðgarði.
Þar ber að ýmsu að hyggja. Gísli
Már segir að ef það verði til þess
að landeigendur, ásamt öðrum, geti
ekki nýtt landið eins og til dæmis
til eggjatöku verði sú vegferð ekki
farin til enda. - jse
Bílaumferðin að Látrabjargi leikur landeigendur og dvalargesti á Látrum illa:
Umferðarþungi á Látrum
FJÖR Á BJARGBRÚNINNI Margir leggja
leið sína gegnum sumarbústaðabyggð-
ina á Látrum til að komast að bjarg-
brúninni. MYND/HÁKON ÁSGEIRSSON
SÝRLAND, AP Sýrlensk stjórnvöld sögðu í gær ekkert hæft í fullyrðing-
um uppreisnarmanna um að þeir hefðu gert árás á bílalest Bashars
al Assad forseta.
Uppreisnarmenn sögðust hafa gert árás á bílalestina í Malki-
hverfinu í höfuðborginni Damaskus. Hann hefði verið þar á ferð
til að taka þátt í bænastund í mosku í tilefni af Eid al fitr, lokahátíð
föstumánaðarins ramadan.
Hvort sem Assad slapp ómeiddur eða ekki sýnir árásin fram á
getu uppreisnarmanna til að ráðast á hverfið, en þar er bæði heimili
og skrifstofa forsetans, ásamt nokkrum sendiráðum og fleiri mikil-
vægum byggingum.
Íbúar í hverfinu hafa staðfest að sprengjur hafi sprungið þar, þótt
stjórnvöld segi þessar fréttir „algerlega tilhæfulausar og endur-
spegla ekkert annað en óskir og draumóra sumra fjölmiðla og þeirra
stjórnvalda sem standa að baki þeim“.
Stjórnarhernum hefur undanfarið orðið nokkuð ágengt í að hrekja
uppreisnarmenn frá útjöðrum höfuðborgarinnar. - gb
Uppreisnarmenn gerðu árás í Malki-hverfinu í Damaskus:
Assad sagður hafa sloppið
VIÐ VEIÐAR Hrefnuveiðimenn segja forkastanlegt að veitingamenn taki afstöðu í deilum um hrefnuveiðar.
ASSAD SÝRLANDSFORSETI Á BÆNASAM-
KOMU Þetta er í þriðja skiptið á fáeinum
vikum sem Assad kemur fram opinberlega.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP