Fréttablaðið - 09.08.2013, Qupperneq 12
9. ágúst 2013 FÖSTUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGAREFNI: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is
VÍSIR: Kristján Hjálmarsson, kristjan@visir.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
FRÁ DEGI
TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000
eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á
landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
Naut og fílar, postulín og glervara
Orðatiltækið „að vera eins og naut
í postulínsbúð“ er orðið nokkuð
rótgróið í íslensku máli og var notað
hér alla síðustu öld. Það þýðir að
menn höndla mál klunnalega sem
þyrfti að fara um mýkri höndum og
valda tjóni án þess endilega að ætla
sér það. Það virðist dregið úr ensku,
enda er það eina málið sem notar
nautið eins og við höfum gert.
Síðla á öldinni fór fíllinn að
ryðja sér til rúms í orða-
tiltækinu, en hann nota
reyndar allar aðrar þjóðir en
enskumælandi í sams konar
líkingu. Í gær heyrðist
svo enn eitt afbrigðið,
þegar Árni Páll
Árnason líkti ríkis-
stjórninni við fíl
í glervöruverslun. Sem er reyndar líka
notað erlendis, sérstaklega á Ítalíu
og Spáni.
Önnur tillaga
Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar
býður reyndar upp á að menn útfæri
þetta líkingamál enn frekar. Næst
væri til dæmis hægt að segja að
ríkisstjórn Sigmundar Davíðs sé
eins og viljugur stóðhestur í þröngri
sérverslun með viðkvæma íslenska
hönnunarvöru. Notist að vild.
Hátíð vonar
Öll kristin samtök á
Íslandi, eðli máls-
ins samkvæmt
með Þjóð-
kirkjuna
í farar-
broddi, hyggjast halda hátíð í sept-
emberlok. „Hátíð vonar“ heitir hún.
Þar verður í forgrunni bandarískur
klerkur, Franklin Graham að nafni,
sem hefur býsna umdeildar skoð-
anir. Í ljósi afstöðu hans til sam-
kynhneigðra var til dæmis vægast
sagt óheppilegt af Þjóðkirkjunni að
birta frétt um hátíðina á vef sínum
í upphafi Hinsegin daga. Hann er
ekki bara harður and-
stæðingur samkyn-
hneigðar heldur hefur
hann líka sagt að íslam
sé mjög ill trú og efast
um að Barack Obama
Bandaríkjaforseti sé
kristinn. Sannarlega
forvitnilegur
náungi.
stigur@frettabladid.is
Nokkur ár í röð hefur umhirðu og gras-
slætti ekki verið sinnt í Reykjavík sem
skyldi. Ástandið hefur verið sérstaklega
slæmt í sumar og hvað verst á opnum svæð-
um og við umferðargötur í eystri hverfum
borgarinnar.
Endurskoða þarf allt fyrirkomulag frá
grunni varðandi umhirðu og grasslátt hjá
borginni. Með endurskipulagningu má
bæta verklag og nýta fjárveitingar betur.
Hér er um verðugt úrlausnarefni að ræða
fyrir yfirstjórnendur verklegra fram-
kvæmda hjá borginni; borgarstjóra og for-
mann borgarráðs. Þegar fjölmiðlar hafa
fjallað um málið hefur hins vegar gengið
ótrúlega illa að ná í þessa sómamenn eða
þeir verið ófáanlegir til að tjá sig. 29. júlí sl.
segir t.d. eftirfarandi í frétt Morgunblaðs-
ins: „Dagur B. Eggertsson, formaður borg-
arráðs, vildi ekki tjá sig um málið og benti
á embættismenn innan borgarkerfisins
sem ýmist voru í sumarleyfi eða vildu ekki
tjá sig um málið. Þá náðist ekki í Jón Gnarr
borgarstjóra vegna málsins.“
Sambandsleysi eða feimni virðist þó ekki
hrjá oddvita Besta flokksins og Samfylk-
ingarinnar þegar um er að ræða mál sem
eru nær áhugasviðum þeirra en borgarmál.
Þannig hafa fjölmiðlar ekki átt í vandræð-
um með að fá yfirlýsingar frá borgarstjór-
anum um alþjóðleg málefni eða kynhneigð
Jesú Krists. En er til of mikils mælst að
borgarfulltrúar láti þau málefni í forgang
sem útsvarsgreiðendur í Reykjavík kusu þá
til að sinna?
Áhugalaus meirihluti
Lýsandi dæmi um verkstjórn borgar-
stjórnarmeirihlutans er hvernig hann hefur
hunsað fram komnar tillögur um úrbætur
í umhirðumálum. 3. júlí sl. lögðu fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og skipu-
lagsráði Reykjavíkur til að ráðist yrði í átak
í umhirðu og grasslætti í ljósi óviðunandi
ástands. Fulltrúar meirihlutans treystu sér
ekki til að styðja tillöguna heldur frestuðu
afgreiðslu hennar fram yfir sumarleyfi.
Við sjálfstæðismenn lögðum því fram til-
lögu um málið á fundi borgarráðs 25. júlí en
þar fór á sömu leið. Fulltrúar Samfylking-
ar og Besta flokksins höfðu engan áhuga á
slíkri tillögu og frestuðu afgreiðslu hennar
fram yfir sumarleyfi ráðsins. Ef að líkum
lætur verða tillögurnar teknar fyrir um eða
upp úr miðjum ágúst eða um það leyti sem
farið verður að draga úr sprettu í borginni.
Vanrækt borg
REYKJAVÍK
Kjartan
Magnússon
borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisfl okksins
F
orystumenn ríkisstjórnarinnar hafa barmað sér yfir því
að erfitt verði að ná hallalausum fjárlögum á næsta ári. Í
nýrri skýrslu um efnahagshorfur á Íslandi tekur Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn (AGS) undir það og bendir á ýmis
hættumerki í ríkisrekstrinum á þessu ári.
AGS segir hins vegar að það sé alls ekki útilokað að ná mark-
miðinu um hallalaus fjárlög og telur upp nokkrar leiðir til þess;
að skera niður styrki til landbúnaðar, hrista upp í almannatrygg-
ingum þannig að þær hjálpi aðallega þeim sem þurfa mest á því að
halda og hækka lægsta þrep virðisaukaskatts, en grípa á móti til
aðgerða til að hjálpa tekjulágum hópum. Þetta þrennt gæti skilað
um 34 milljarða bata í ríkisrekstrinum. Hvort ríkisstjórnin hefur
pólitískt þor til að ráðast í aðgerðir sem þessar er önnur saga.
Til næstu ára leggur AGS til að ríkisstjórnin finni varanlegri
sparnaðarleiðir og nefnir þar sérstaklega mennta- og heilbrigðis-
kerfið. Þetta eru kostnaðarsöm-
ustu útgjaldaliðir ríkisins og í
rauninni segir það sig sjálft að
stóru upphæðunum í sparnaði
verður ekki náð nema að hreyfa
við þeim.
Í sérstakri úttekt leitast sér-
fræðingar AGS við að leggja mat
á hversu mikið mætti spara og
byggja á gögnum sem sýna að þótt heilbrigðisþjónusta á Íslandi
sé góð og útkoman úr menntakerfinu í meðallagi kostar rekstur
beggja kerfa mun meira en í OECD-ríkjunum að meðaltali. AGS
bendir þannig á að þótt dreifbýlið á Íslandi valdi einhverri óhag-
kvæmni virðist bæði heilbrigðis- og menntakerfið ofmannað í
alþjóðlegum samanburði. Hægt sé að lækka kostnað við bæði
menntun og heilbrigðisþjónustu gríðarlega og engu að síður halda
óbreyttum gæðum þjónustu.
Flestar eru tillögurnar kunnuglegar; til dæmis að draga úr
áherzlu á spítalarekstur og efla þess í stað heimaþjónustu við
sjúklinga, auka samkeppni til að lækka lyfjakostnað og stytta nám
til stúdentsprófs, með tilheyrandi fækkun kennara og aukinni
kennsluskyldu í grunnskólum.
Sérfræðingar sjóðsins meta það svo að ef skilvirkni í opinberri
þjónustu á Íslandi væri á við það sem bezt gerist mætti spara allt
að 111 milljörðum króna á ári. AGS bendir á að þótt ekki næðist
nema helmingurinn af þeim sparnaði gæti það skipt sköpum.
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segist í Fréttablaðinu
í dag telja útreikninga AGS fráleita. Auðvitað má deila um þá og
sjálfsagt eru einhverjar aðstæður á Íslandi þannig að við náum
ekki sömu skilvirkni og ríkin sem standa sig bezt. Úttekt AGS
segir okkur samt nokkra mikilvæga hluti.
Í fyrsta lagi að raunverulegum sparnaði í ríkisrekstrinum
verður ekki náð með því að halda áfram að skera niður fjárveit-
ingar til óbreyttra verkefna. Það þarf róttæka uppstokkun á því
hvernig þjónustan er veitt.
Í öðru lagi að við hljótum að þurfa að horfa í eigin barm, þegar
okkur er sýnt fram á að bæði heilbrigðisþjónusta og menntun kosti
skattgreiðendur mun meira en að meðaltali í OECD. Við erum að
gera eitthvað vitlaust og þurfum þá að breyta því.
Og í þriðja lagi er það ekki alltaf lausnin, ef við viljum betri
opinbera þjónustu, að heimta meiri peninga og fleira fólk. Við
þurfum að horfa á skipulag þjónustunnar og læra af öðrum.
Mikið mun mæða á ráðherrum heilbrigðis- og menntamála á
næstunni. Það er í rauninni á þeirra herðum að ná fram stóru
tölunum í sparnaði ríkisins, en til þess þurfa þeir að þora að hrista
upp í stöðnuðu kerfi og leggja til atlögu við rótgróna sérhagsmuni.
Er hægt að veita sömu þjónustu fyrir minna fé?
Stóru tölurnar
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
➜ Er til of mikils mælst að borgar-
fulltrúar láti þau málefni í forgang
sem útsvarsgreiðendur í Reykjavík
kusu þá til að sinna?