Fréttablaðið - 09.08.2013, Síða 17
LJÚFFENGT
Úlfar Finnbjörnsson
býður upp á girnilega
kjúklingauppskrift sem
vert er að prófa.
MYND/GVA
Matreiðslumaðurinn Úlfar Finn-björnsson sér um sjónvarps-þáttinn Eldað með Holta á
ÍNN. Þar eldar hann ljúffenga rétti úr
Holta-kjúklingi fyrir áhorfendur. Hér
færir Úlfar okkur uppskrift að saffran-
kjúklingabringum. Hægt er að fylgjast
með Úlfari elda þessa girnilegu máltíð í
kvöld klukkan 21.30 á sjónvarpsstöðinni
ÍNN. Þættirnir verða svo endursýndir
yfir helgina. Einnig er hægt að horfa á
þá á heimasíðu ÍNN, inntv.is.
ELDAÐ MEÐ HOLTA
HOLTA KYNNIR Úlfar Finnbjörnsson er einn færasti kokkur landsins. Hann
sér um sjónvarpsþáttinn Eldað með Holta á ÍNN. Þar fáum við að fylgjast með
honum elda ljúffenga kjúklingarétti úr Holta-kjúklingi.
FYRIR 4
800 g saffran- og
límónulegnar kjúklinga-
bringur frá Holta
300 g vatnsmelóna,
skræld og skorin í 2 cm
þykkar sneiðar
1 tsk. chili-pipar, smátt
saxaður, hreinsið fræin úr
2 msk. olía
1 msk. hlynsíróp
2 msk. oreganó, smátt
saxað eða 1 msk. þurrkað
Hitið grillið vel og grillið
kjúklingabringurnar í
14-18 mínútur eða þar
til kjarnhiti sýnir 70°C.
Snúið bringunum reglu-
lega. Berið bringurnar
fram með grillaðri vatns-
melónu og til dæmis grill-
uðum kartöflum, nípum
og jógúrtkarrísósu frá
Gott í kroppinn.
Setjið saman í skál mel-
ónusneiðar, chili-pipar,
olíu, hlynsíróp og
oreganó og blandið vel
saman. Grillið á vel heitu
grilli í eina mínútu á
hvorri hlið.
SAFFRAN- OG LÍMÓNULEGNAR KJÚKLINGABRINGUR
MEÐ GRILLAÐRI VATNSMELÓNU, KARTÖFLUM OG NÍPUM
RETRO STEFSON Á FAKTORÝ
Hljómsveitin Retro Stefson heldur tónleika á Faktorý í kvöld
kl. 23 en hljómsveitin byrjaði ferilinn á þessum vinsæla tón-
listarstað sem nú er að hætta. Retro Stefson hefur spilað á
tónlistarhátíðum og tónleikum beggja megin Atlantsála nær
stanslaust frá áramótum.