Fréttablaðið - 09.08.2013, Side 33
FRÉTTABLAÐIÐ
LÍFIÐ 9. ÁGÚST 2013 • 7
Myndaalbúmið
Uppáhaldsmyndin úr Kron by KronKron-myndatökunni - Bak við tjöldin á Kron by KronKron - Verk eftir Sögu Sig og Hildi Yeoman - Kolfinna fyrir JÖR - Edda fyrir Galvan.
af hlutum, þarf að kanna þá til
botns og fara alla leið, enda þarf
að hafa brennandi áhuga og ást
til að láta drauma sína rætast.“
Hvernig hefur verið að kynn-
ast fólki í bransanum og tísku-
heiminum?
„Mér hefur þótt auðvelt að kynn-
ast og tengjast fólki í bransan-
um. Ég vissi líka að ég þyrfti að
gera það þegar ég kom út. Ég not-
aði samfélagsmiðla eins og blogg
og Facebook til að koma mér á
framfæri. Fyrstu verkefnin mín
fékk ég út á bloggið mitt. Tengsl-
anetið stækkar eftir því sem
maður gerir fleiri verkefni og
ef maður stendur sig vel í einu
og kemur vel fram við annað
fólk fær maður annað verkefni
kannski út á það. Fólkið sem ég
vinn með er yfirleitt ekki með
mikla útlitsdýrkun heldur list-
rænt fólk sem hefur áhuga á að
skapa og búa til fallega mynd og
hefur áhuga á fallegri hönnun.“
Sambandsslit og nýtt upphaf
Nú slitnaði upp úr sambandi
ykkar Ella Egilssonar úr Steed
Lord fyrir stuttu. Hvernig geng-
ur þér að taka sambandsslit-
unum? „Ég var 19 ára þegar við
Elli kynntumst og við vorum
saman í sjö ár. Ég er ótrúlega
þakklát fyrir tímann sem við
vorum saman, enda vorum við
mjög samstíga, hjálpuðumst að
í vinnunni og vorum líka bestu
vinir. Auðvitað eru þetta breyt-
ingar, enda bjuggum við og
unnum saman, en við höfðum
bara þroskast hvort frá öðru. Ég
held að það sé samt mjög mikil-
vægt að vera ein á einhverjum
tímapunkti í lífinu og ég er
mjög tilbúin til þess núna. Ég
hef aldrei verið hrædd við að
vera ein eða við að taka stórar
ákvarðanir, breyta hlutum eða
aðlagast nýjum aðstæðum.
Hvernig er hefðbundinn
dagur í lífi Sögu Sig?
Það er enginn hefðbundinn
dagur. Ég er svo heppin að engir
dagar er eins. Þá daga sem ég
er að taka myndir hefst vinnu-
dagurinn snemma og þá fer
allur dagurinn í það. Aðra daga
ferðast ég um London eða und-
irbý sett fyrir myndatöku, fer
á fundi með fólki, sit við tölv-
una, svara tölvupósti og vinn
myndirnar. Ég hreyfi mig svo á
hverjum degi, syndi, hleyp, fer í
ræktina eða jóga og borða mjög
hollt. Svo inn á milli hitti ég
vini mína og ég elska að horfa
á heimildarmyndir, fara á lista-
söfn og í bókabúðir.
Hefur þú fylgst eitthvað með
íslenskum hönnuðum? „Já mjög
mikið! Ég versla eigin lega bara
heima á Íslandi og fataskápur-
Mér finnst ég vera
ótrúlega heppin
að hafa alist upp
á þessum sögu-
frægu og fallegu
stöðum því það
hefur mótað mig
sem einstakling.“