Fréttablaðið - 09.08.2013, Qupperneq 35
AUGLÝSING: JSB KYNNIR
Bára leggur mikla áherslu á að
konur stundi líkamsrækt sér til
heilsubótar á einfaldan hátt. Hún er
á móti ofþjálfun og segir betra að
æfa stöðugt tvisvar í viku í lengri
tíma undir handleiðslu kennara en
að vera í púli fimm sinnum í viku í
stuttan tíma. „Við hjá JSB bjóðum
upp á okkar hefðbundnu tíma sem
konur þekkja, opna tíma og lokaða
hópa. Stöðin opnar klukkan sex á
morgnana og er starfandi fram til
tíu á kvöldin. Allir geta því fundið
tíma við hæfi,“ segir Bára.
Æfingar fyrir konur
„Lokaðir tímar hafa verið vinsæl-
ir en þar er aðhald mikið og stefnt
að ákveðnum markmiðum. Þá er
hægt að stunda markvissa hreyf-
ingu tvisvar í viku með þjálfuðum
kennurum sem leiða konurnar í
gegnum heildrænt þjálfunarkerfi.
Með því að vera í lokuðum tíma
opnast einnig möguleiki á að nýta
opna tíma og frábæran tækjasal.
Lokuðu tímarnir eru ýmis nám-
skeið, eins og það hefur verið kall-
að. Í haust verðum við til dæmis
með hlýtt jóga í stað hot jóga. Það
verða jógaæfingar á breiðu sviði
í hlýjum sal,“ útskýrir Bára sem
segir að JSB leggi fyrst og fremst
áherslu á að þjálfa kvenlíkamann
eins og hentar honum best.
„Það er margt í boði hjá okkur,
tímar sem leggja áherslu á mótun
líkamans, þar sem lögð er áhersla
á æfingar á gólfi og upphitun í
tækjasal. Það hefur verið sleg-
ist um þessa tíma hjá okkur,
enda ekki mikið hopp. Þá verð-
um við með fit-pilates, sem legg-
ur áherslu á jafnvægisæfingar, sem
er afar gott fyrir líkamann. Síðan
er zumba-dansinn til að skvetta úr
klaufunum og svitna. Það mætti
líkja því við að dansa í góðu partíi
alla nóttina,“ segir Bára sem hefur
verið dugleg að taka inn nýjungar
og vinsæl æfingaprógrömm.
Frá toppi til táar
„Vinsælustu hópnámskeiðin okkar
eru fyrir konur sem vilja grenna
sig. Það eru TT-námskeiðin en í
þeim hafa konur náð mjög mikl-
um árangri. Í TT, eða Frá toppi til
táar, bjóðum við átta mismunandi
hópa eftir því sem hentar hverri og
einni. Þær yngstu, 16-25 ára, eru í
sérhópi með annarri tónlist en þær
eldri og tækjasalurinn er meira not-
aður. Þær fá að auki fund einu sinni
í viku um rétt mataræði. Allir þurfa
að taka sig í gegn og þess vegna
hafa TT-námskeiðin verið svona
gríðarlega vinsæl. Ungar konur
sem nýlega hafa gengið í gegnum
barnsburð og vilja koma sér í form
koma á þessi námskeið. Ef konum
er alvara með því að koma sér í
form er TT frábær kostur og allir
ná árangri.“
Stór hluti kvenna hefur komið
líkamsrækt inn í hið daglega líf og
er hún orðin ákveðinn lífsstíll. „Hjá
JSB er stór hópur kvenna sem
kemur í hverri viku og hefur gert í
fjölmörg ár. Við leggjum áherslu á
slagorðið: Leggðu rækt við sjálfa
þig og lifðu góðu lífi. Það þarf engar
öfgar til að vera í góðu formi,“ ítrek-
ar Bára. „Það er heilbrigði að vera
í réttu holdafari og konur hugsa
öðruvísi séu þær í góðu formi. Það
eru engin forréttindi að vera vel á
sig kominn. Það geta allir gert og
það er gaman,“ segir Bára.
Allar upplýsingar um tíma hjá
Dansrækt JSB má finna á heima-
síðunni jsb.is og á Facebook. JSB
er í Lágmúla 9 og síminn er 581
3730.
ALLIR GETA
VERIÐ Í
GÓÐU FORMI
Bára Magnúsdóttir hefur rekið Dansrækt JSB frá
árinu 1967. Hún hefur því mikla reynslu að baki og
hefur komið þúsundum íslenskra kvenna í gott form.
Bára Magnúsdóttir hefur komið þúsundum kvenna í gott form í gegnum árin. Hún er með námskeið sem hentar líkams-
byggingu kvenna.
Inga Sjöfn Sverrisdóttir sjúkraþjálfari hefur snúið heim
eftir tveggja ára siglingu með skemmtiferðaskipi hring-
inn í kringum heiminn. Hún starfaði sem líkamsræktar-
þjálfari um borð en ætlar nú að aðstoða konur sem vilja
efla heilsu og kraft hjá JSB. „Ég verð með fitform-tíma
hjá JSB en ég hef sérhannað prógramm fyrir konur sem
eru 50+ þótt þær yngri séu velkomnar líka. Það er mjög
gefandi og hvetjandi að vera í lokuðum hópi. Skemmtileg
stemning myndast og konurnar fá aðhald og stuðning,“
segir Inga Sjöfn. „Þar sem ég er sjúkraþjálfari þá nýtist
sú menntun vel í starfinu. Við verðum með morguntíma
og þetta er lokaður hópur. Þetta verður alhliða þjálfun
fyrir líkamann og ég vonast til að skvísurnar verði flott-
ar, í góðu formi og vel á sig komnar eftir smá tíma. Það
er mikið atriði að þjálfa líkamann til að halda heilsunni
í lagi,“ segir Inga Sjöfn enn fremur.
„Þetta eru ekki námskeið til að léttast, enda býður
JSB upp á sérhönnuð TT-námskeið til þess. Hins vegar
getur hver og ein kona sett sér sín markmið, hvort sem
það er að styrkja sig eða koma sér í gott form. Í lok-
uðum hópi kynnist maður konunum betur og hefur tök
á að leiðbeina þeim með betri árangri. Sumum hent-
ar vel að ráða sér sjálfar í tækjasal en aðrar þurfa að-
hald í lokuðum hópi.“
Inga Sjöfn er nýkomin heim úr ævintýrasiglingunni
og hlakkar til að kenna Íslendingum aftur. Hún kenndi
dans hjá JSB í nokkur ár og ætlar að halda því áfram
í vetur. „Ég verð með yngstu stelpurnar í dansinum.“
FIT-FORM FYRIR 50+
Inga Sjöfn Sverrisdóttir og Anna
K. Guðmundsdóttir koma ferskar
inn í hauststarfið hjá JSB með nýja
flotta tíma fyrir konur.
Anna K. Gunnarsdóttir hefur kennt fit-pilates hjá
JSB auk þess að vera með öfluga styrktar- og þol-
tíma og zumba. „Ég hef verið að bæta við mig námi
til að koma enn betur til leiks í haust,“ segir hún. „Í
fit-pilates er æft á stórum boltum. Þetta eru frábær-
ar æfingar sem styrkja og þjálfa alla grunnvöðva lík-
amans og jafnvægi. Æfingarnar styrkja stoðkerfi lík-
amans, sérstaklega kvið og bak. Þessi þjálfun er fyrir
konur á öllum aldri og er til dæmis mjög góð fyrir þær
sem finna fyrir gigt eða eru með stoðkerfisvandamál,“
segir Anna.
„Ég legg áherslu á einstaklingsmiðaða þjálfun þann-
ig að konurnar æfa eftir vissum stigum, sumar eru með
auðvelda útgáfu en aðrar erfiðari, allt eftir getu hverr-
ar og einnar. Tímarnir eru í 50 mínútur tvisvar í viku á
þriðjudögum og fimmtudögum,“ segir Anna sem er að
klára annað árið í íþróttafræði auk þess að vera mennt-
aður fit-pilates- og zumba-kennari. Anna hefur þjálfað
fólk í pilates í nokkur ár. Hún hóf störf hjá JSB síðast-
liðinn vetur.
MJÖG GOTT FYRIR JAFNVÆGIÐ
Leggðu rækt við þig og lifðu góðu lífi
■ Tækjasalurinn opinn frá morgni til kvölds.
■ Einkaþjálfun eftir samkomulagi.
Vertu velkomin í okkar hóp! MótunTT1
TT3
FIT pilates FIT form
SS Yoga Rope Yoga
Vertu með
okkur í vetur