Fréttablaðið - 09.08.2013, Side 38
Lífi ð
FRÉTTABLAÐIÐ Spjörunum úr og helgarmaturinn.
HELGAR MATURINN UXAHRYGGJAHALANEGRABLÓMKÁLSSVEPPASÚPA
...SPJÖ
RU
N
U
M
Ú
R
Hvern faðmaðir þú síð-
ast? Son minn í morgun.
En kysstir? Ætli það sé
ekki best að hafa það fyrir
mig.
Hvaða galla í eigin
fari ertu búin að um-
bera allt of lengi? Ég er
frekar fljótfær, ef mér dett-
ur eitthvað í hug þá verður
það að gerast strax og helst
í gær.
Ertu hörundsár? Nei, ég
er hreinskilin sjálf svo ég tek
því sem sagt er við mig og
reyni vanalega að nýta það.
Ef ég væri mjög hörundsár
þá væri ég líklegast ofan í
einhverri holu í fýlu að eilífu.
Dansarðu þegar enginn
sér til? Dilla mér gjarnan
við uppvaskið og tek sporið
með syni mínum. Það verð-
ur gert þar til honum fer
að finnast það asnalegt að
dansa með mömmu!
Hvenær gerðirðu þig
síðast að fífli og hvern-
ig? Ég var eitt sinn að
labba inn í Hagkaup voða
fín í opnum skóm. Renn
svo harkalega rétt við inn-
ganginn í bleytu á gólfinu
og bandið á skónum slitn-
aði. Ekki nóg með að ég
datt kylliflöt á gólfið heldur
varð ég að gera innkaupin
í einum skó og hinn fékk að
liggja ónýtur í körfunni.
Hringirðu stundum í
vælubílinn? Sjaldan fyrir
sjálfa mig en það fer aga-
lega í taugarnar á mér
þegar fólk kvartar yfir kvefi
eða þess háttar og þá gjarn-
an býðst ég til að hringja á
bílinn góða.
Tekurðu strætó? Nei, hef
ekki gert það síðan áður en
ég fékk bílpróf, þá tók ég
strætó í skólann.
Hvað eyðirðu mikl-
um tíma á Facebook á
dag? Allt of miklum. Vinnan
krefst þess svolítið að vera á
Facebook. Svo er það tengt
í símanum mínum svo ég fæ
skilaboð og slíkt þangað.
Ferðu hjá þér þegar þú
hittir fræga eða heils-
arðu þeim? Ég heilsa
oft þó að ég þekki fólkið
ekki en þá finnst mér ég oft
þekkja það því ég hef séð
það í sjónvarpi eða annars
staðar.
Hvað ætlarðu alls ekki
að gera um helgina?
Fara á Gay pride í karl-
mannsdraggi, verða dauða-
drukkin og enda heima með
konu.
Kristrún Ösp
Barkardóttir
ALDUR 23 ára
STARF Vinn á frábærum
vef, hún.is.
Lísbet Harðardóttir
Ólafardóttir
Húsamálari og
þúsundþjalasmiður
á Ísafi rði lumar á
uppskrift að súp-
unni sem alla lands-
menn dreymir um að
smakka.
Heill blaðlaukur
Askja af sveppum
Poki af villtri sveppablöndu
Blómkál, eins og maður vill
Hvítlauksgeiri, karrí, pipar
Engifer
Alls konar dýrateningar sem
leynast í skápnum
Tvær dósir kókosmjólk
Uxahalasoð
Töfradropar úr pólsku búð-
inni
Þessa súpu hefur sjálf
Ragga Gísla sungið um
og hver einasti Íslending-
ur hefur rembst við að segja
nafn hennar hratt en örugg-
lega í tónvissum takti í
gegnum árin. Byrjið á að
mýkja lauk og sveppi upp
úr hvítlauk, karrí og engi-
fer. Skorinn blaðlaukur og
önnur kókosmjólkurdósin
er sett í pottinn ásamt jafn-
miklu magni af vatni. Því
næst er best að hringja í
vin og taka ágætt trúnó
á meðan súpan mallar í
um 15 mínútur Þá eru ten-
ingarnir settir í pottinn og
hin kókosdósin og slatti af
vatni. Þótt súpan sé töfrum
gædd er hún ekki svo merki-
leg að smá svartur pipar
geti ekki lyft henni ofar.
Að lokum eru töfradroparn-
ir dregnir fram. Þeir heita
Przyprawa og fást í einni
búð hérna á Ísafirði. Ég
veit ekki hvað er í
þeim, ábyggi-
lega fullir af
einhverju
eitri en
gera
allan
mat
að
lost-
æti.