Fréttablaðið - 17.08.2013, Síða 4
17. ágúst 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
20.000 kr
11.08.2013 ➜ 16.08.2013
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Mánudagur
Víða 5-10 m/s, hvassara SA-til.
KÓLNAR Í dag léttir til suðvestantil en þykknar upp með smá vætu NA-lands. Á
morgun snýst vindur á ný í suðvestlæga átt og á mánudaginn eru horfur á rigningu
eða skúrum sunnan- og vestanlands en þá léttir til norðan- og austantil.
8°
2
m/s
11°
4
m/s
12°
4
m/s
12°
5
m/s
Á morgun
Yfi rleitt fremur hægur vindur.
Gildistími korta er um hádegi
9°
6°
9°
11°
7°
Alicante
Aþena
Basel
28°
31°
30°
Berlín
Billund
Frankfurt
28°
22°
28°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
26°
21°
21°
Las Palmas
London
Mallorca
29°
21°
31°
New York
Orlando
Ósló
26°
32°
22°
París
San Francisco
Stokkhólmur
27°
20°
21°
13°
3
m/s
11°
12
m/s
9°
6
m/s
7°
5
m/s
10°
4
m/s
8°
5
m/s
6°
5
m/s
11°
8°
12°
7°
9°
NÁTTÚRA Ferðafólki við Jökuls-
árlón á Breiðamerkursandi til
ómældrar gleði skreið þar á land
stór rostungur í gær. Hann lét sér
í léttu rúmi liggja þótt að honum
hópaðist stór hópur fólks.
Jón Páll Vilhelmsson ljósmynd-
ari var við lónið og segir að nokk-
uð hafi verið af dýrinu dregið. Það
hafi hins vegar verið gríðarstórt,
og án ábyrgðar giskaði á að það
hafi verið nálægt þrír metrar á
lengd. Ef reynist rétt er um brimil
að ræða sem getur vegið allt að
því tonn.
Rostungar eru sjaldgæfir flæk-
ingar við Íslandsstrendur. Jón
Páll sagði dýrið hafa glatt erlenda
ferðamenn við lónið sem hafi þó
ekki gert sér grein fyrir því að
Íslendingarnir á sandinum voru
líklega allir að sjá þetta tigna dýr
í fyrsta sinn – rétt eins og þeir. - shá
Rostungur við Jökulsárlón:
Kærði sig koll-
óttan um fólkið
SJALDGÆFUR GESTUR Rostungurinn
gladdi ferðafólk á sandinum.
MYND/JÓN PÁLL VILHELMSSON
SKULDALEIÐRÉTTING
HEIMILANNA
Dr. Sigurður Hannesson
doktor í stærðfræði frá Oxford-há-
skóla
Hann er jafnframt vinur og ráð-
gjafi Sigmundar Davíðs Gunn-
laugssonar forsætisráðherra og
hefur komið að útreikningum
um skuldaleiðréttingu heimil-
anna. Sigurður er formaður
hópsins.
AÐRIR Í HÓPNUM
Dr. Arnar Bjarnason
hagfræðingur
Einar Hugi Bjarnason
hæstaréttarlögmaður
Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir
héraðsdómslögmaður
Lilja Alfreðsdóttir
alþjóðahagfræðingur
Sigrún Ólafsdóttir
alþjóðaviðskiptafræðingur í for-
sætisráðuneytinu
Sigurður Guðmundsson
skipulagsfræðingur í fjármála- og
efnahagsráðuneytinu
Sérfræðingahópar
UM AFNÁM
VERÐTRYGGINGAR
Ingibjörg Ingvadóttir
héraðsdómslögmaður
Hún er lektor við Háskólann
á Bifröst og situr í bankaráði
Seðlabanka Íslands sem fulltrúi
Framsóknarflokksins. Ingibjörg
er formaður hópsins.
AÐRIR HÓPNUM
Hafdís Ólafsdóttir
lögfræðingur í fjármála- og
efnahagsráðuneyti
Iða Brá Benediktsdóttir
viðskiptafræðingur
Sigrún Ólafsdóttir
alþjóðaviðskiptafræðingur í
forsætisráðuneyti
Tómas Brynjólfsson
hagfræðingur í fjármála- og
efnahagsráðuneyti
Valdimar Ármann
hagfræðingur/fjármálaverk-
fræðingur
Vilhjálmur Birgisson
formaður Verkalýðsfélags Akraness
SJÁVARÚTVEGSMÁL
Nýjar reglur sagðar lögbrot
Hafin er vinna í atvinnu- og nýsköp-
unarráðuneytinu við gerð frumvarps
um stjórnun veiða á úthafsrækju.
Þar verður kveðið á um nýjar reglur
um úthlutun aflahlutdeilda. Adolf
Guðmundsson, formaður LÍÚ, segir á
heimasíðu LÍÚ að samkvæmt lögum
beri ráðherra að úthluta aflamarki
samkvæmt núgildandi aflahlutdeildum.
Annað sé skýrt lögbrot.
STJÓRNMÁL Árni Páll Árnason, for-
maður Samfylkingarinnar, er harð-
orður í garð nýrra sérfræðinga-
hópa sem skipaðir voru af Sigmundi
Davíð Gunnlaugssyni forsætisráð-
herra í gær.
Á Facebook-síðu sinni, segir
Árni Páll meðal annars, að sumir
nefndar mannanna virðist sérvaldir
í hópinn vegna skoðana sinna frekar
en sérfræðiþekkingar. „Slíkt kann
ekki góðri lukku að stýra, ef ætlunin
er að skoða mál með opnum huga.“
Árni Páll vekur athygli á því að
ríkisstjórnarflokkarnir hafi skipað
sérfræðihópa án aðkomu háskóla-
samfélagsins, vinnumarkaðar og
stjórnarandstöðuflokka, en hafi
þó sjálfir gagnrýnt fyrri stjórnar-
flokka fyrir skort á samráði og virð-
ingu fyrir háskólasamfélaginu.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra skipaði í gær fjór-
tán sérfræðinga í tvo hópa sem eiga
að takast á við skuldavanda heimil-
anna. Annar hópurinn fær það verk-
efni að skila tillögum um mögulega
höfuðstólsleiðréttingu á húsnæðis-
lánum og fara yfir kosti og galla við
að stofna svokallaðan leiðréttingar-
sjóð sem á að nýta í niðurfellingu
lána. Hinn hópurinn á að fara yfir
hvernig megi afnema verðtrygg-
ingu á neytendalánum.
Hóparnir eiga að skila af sér til-
lögum í nóvember og er forsætis-
ráðherra vongóður um að raunhæf-
ar tillögur fáist innan tólf vikna.
„Undanfarnar vikur og mánuðir
hafa verið nýttir til undirbúnings.
Það liggja fyrir tugir blaðsíðna af
útreikningum, gögnum og hug-
myndum sem munu nýtast þessum
hópum vel,“ segir Sigmundur, en
þar er hann meðal annars að vitna
í útreikninga Sigurðar Hannes-
sonar, sem er formaður hóps um
skuldaleiðréttingu.
Ingibjörg Ingvadóttir, formað-
ur hóps um afnám verðtrygg-
ingar, er spennt fyrir að takast
á við nýtt verkefni en segir jafn-
framt að viðfangsefnið sé stórt
og flókið. „Hópurinn ætlar nú að
einhenda sér í að vinna verkefnið
rösklega og hella sér í það að afla
sér frekari upplýsinga en einnig
að fara yfir efni sem nú þegar er
tilbúið.“
Katrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstri grænna, tekur undir með
Árna Páli og þykir miður að ekki
hafi verið haft samráð við stjórn-
arandstöðuflokkana við skipan í
hópana. „Ég hefði viljað að það
hefði verið haft samráð við alla
flokka á þingi um val á einstak-
lingum, sem var búið að boða, til
að mynda í stjórnarsáttmálanum.“
lovisa@frettabladid.is
thorbjorn@stod2.is
Segir pólitískar skoðanir ráða
för við skipun sérfræðihópa
Formenn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna gagnrýna að ekki hafi verið haft samráð við stjórnarandstöð-
una við skipun sérfræðihópa um skuldavandann. Forsætisráðherra vongóður um raunhæfar tillögur fáist.
Sumir
nefndar-
manna virðast
þó sérvaldir í
hópinn vegna
skoðana sinna
– sumsé að ein
niðurstaða sé betri en
önnur – frekar en vegna
sérfræðiþekkingar.
Árni Páll Árnason
formaður Samfylkingarinnar
Grunnskólar Reykjavíkur verða settir fimmtudaginn 22. ágúst.
Nánari upplýsingar um hvenær nemendur í 2. – 10. bekk eiga að mæta svo og
1. bekkingar eru á heimasíðum skólanna. Þar eru einnig frekari
upplýsingar um upphaf almennrar kennslu og innkaupalistar.
Einnig er hægt að fá upplýsingar hjá skóla- og frístundasviði
Reykjavíkurborgar í síma 411 1111, 411 7007
og á www.skolarogfristund.is
GRUNNSKÓLAR REYKJAVÍKUR
SKÓLASETNING HAUSTIÐ 2013
Skóla - og frístundasvið
26
ÞÚSUND
MANNS
heimsóttu Dalvík á
Fiskidaginn mikla
sem haldinn var í
bæjarfélaginu um
síðustu helgi.
DALVÍK
70
ÞÚSUND
MANNS
komu saman til þess að berjast
fyrir auknum réttindum samkyn-
hneigðra í hinni árlegu gleði-
göngu á laugardaginn fyrir viku.
83%
Hlutabréf í Icelandair hafa hækk-
að um 83 prósent frá áramótum.
1.000.000
Yfi r milljón tonn af makríl mælast í íslenskri
lögsögu þriðja árið í röð. 12
Ný fatalína söngdívunnar
Rihönnu kemur í búðir 12.
september næstkomandi.
Stígamót opnuðu í vikunni Kampavínsklúbb á Hverfi s-
götunni þar sem boðið var upp á að kaupa tíu mínútna
einkaskemmtiatriði fyrir tuttugu þúsund krónur og fá
frítt kampavín á meðan á atriðum stóð.