Fréttablaðið - 17.08.2013, Síða 12
17. ágúst 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR |
Rannsókn á áhrifum eldislax á
stofngerð náttúrulegs lax í árkerfi
Elliðaáa sýnir að stofngerð villta
laxins hefur tekið breytingum.
Þeir sem standa að rannsókninni
telja að niðurstöðurnar styðji að
varast ber erfðablöndun villts lax
og eldislax.
Jón Örn Pálsson, svæðisstjóri
hjá laxeldisfyrirtækinu Fjarða-
laxi, segir að niðurstöðurnar stað-
festi ekkert um áhrif af stroku-
laxi úr eldiskvíum. Þvert á móti
sýni rannsóknin áhrif frá hafbeit-
arlaxi sem villist upp í ár. Rann-
sóknin taki ekkert tillit til gríðar-
legra seiðasleppinga í Elliðaárnar
í gegnum áratugina, sem gjaldfelli
rannsóknina.
Fréttablaðið greindi frá rann-
sókninni í gær. Niðurstaðan í hnot-
skurn er að erfðablöndun við eldis-
lax hafi raskað stofngerð villta
Elliðaárlaxins.
Orðanotkun og seiðasleppingar
Jón Örn gagnrýnir í fyrsta lagi
orðanotkun um eldislax harð-
lega og telur það óþolandi að skil-
greina uppruna hans ekki betur.
„Ef menn ætla að nota þetta hug-
tak þá verður að skilgreina upp-
runann miklu betur. Talað er um
áhrif lax sem alinn var í kvíum
og hins vegar um hafbeitarlax.
Þriðja stærðin í þessu dæmi eru
seiðasleppingarnar sem ítrek-
aðar eru mun skaðlegri en stöku
hrygning hjá eldisfiski,“ segir Jón
Örn.
Í þessu samhengi bendir Jón
Örn á opinberar tölur sem sýna
að á árunum 1999 til 2007 var
sleppt um 770 þúsund laxaseiðum
árlega í veiðiár á Íslandi, eða um
50% meira en heildar náttúruleg
seiðaframleiðsla íslenskra áa. „Í
Elliðaárnar var sleppt yfir 180
þúsund eldisseiðum vegna fisk-
ræktar á árabilinu 1998 til 2007.
Á sama tímabili gengu um 190
þúsund náttúruleg laxaseiði til
sjávar. Halda menn svo að þetta
hafi ekki áhrif á genamengi lax-
ins. Þessar sleppingar voru fram-
kvæmdar í samræmi við ráðgjöf
fiskifræðinga á Veiðimálastofnun
sem annaðist einnig rekstur haf-
beitarstöðvar í Kollafirði, í næsta
nágrenni Elliðaáa. Þar var sleppt
milljónum laxaseiða á yfir 30 ára
tímabil. Þessi hafbeitarlax leitaði
víða upp í ár og nægir þá að nefna
Elliðaár og Laxá í Kjós.“
Norski laxinn
Aðspurður um þá staðreynd að
norskur kynbættur eldislax er
ræktaður í íslensku vistkerfi, en
það hefur verið gagnrýnt af mörg-
um, segir Jón Örn að vissulega sé
erfðamengi norska laxins frá-
brugðið því íslenska. „Hins vegar
hefur eldislaxinn glatað hæfileik-
um sínum til að þrauka í villtri
náttúru. Lífslíkur hans eru hverf-
andi litlar, enda leitar hann til
hafs nema ef hann er kynþroska á
þeim tíma sem hann sleppur. Slík-
ar uppákomur verða alltaf sjald-
gæfar, því eftirlit og tækjabúnað-
ur er orðinn það góður. Og takist
eldislaxi í eitt skipti að hrygna
eru erfðaáhrifin af því engin. Til
þess að erfðamengi laxastofns í á
breytist þarf endurtekna hrygn-
ingu í langan tíma. Því er hættan
hverfandi.“
Þessu til viðbótar segir Jón Örn
að laxeldi sé aðeins leyft á svæð-
um þar sem eru sárafáir náttúru-
legir laxastofnar. Hér vísar Jón
Örn til þess að í gildi er bann við
laxeldi í sjó kvíum á svæðum þar
sem margar stórar laxveiðiár
renna til sjávar.
Í Fréttablaðinu í gær varaði
Sigurður Guðjónsson, forstjóri
Veiðimálastofnunar, við stórtæku
eldi á Vestfjörðum og aðspurður
um eldið sagði hann greinilega
hættu til staðar. Það stjórnist af
því hvað mikið af laxi sleppur og
hversu lengi blöndunin stendur.
Það skipti líka máli hversu fjar-
skyldur laxinn er, og því sé norski
laxinn hættulegur.
ASKÝRING | 12
ÁHRIF ELDIS Á VILLTA LAXASTOFNA
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
8
8
5
3
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílahúsið
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
421 8808
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
Deilt um áhrif af eldi á villtan lax
Stofngerð villta laxastofnsins í Elliðaánum hefur breyst og eru göngur eldislaxa í árnar ástæðan, er niðurstaða nýrrar rannsóknar. Sérfræð-
ingur í eldi dregur þetta í efa og segir seiðasleppingar í árnar vanmetna stærð, og segir hættuna af göngum eldislaxa í veiðiár hverfandi.
Leó Alexander Guðmundsson, líffræðingur hjá Veiði-
málastofnun og aðalhöfundur rannsóknarinnar, segir
gagnrýni hvað varðar seiðasleppingar í Elliðaárnar ekki
eiga rétt á sér. Sleppingar í árnar hafi byggt á seiðum úr
ánum sjálfum; fyrstu kynslóðar seiðum. „Það sem við
erum að skoða eru áhrif eldislaxins sem gekk þarna inn
í töluverðu magni. Það er alveg óskylt mál og á ekki að
hafa áhrif á niðurstöður eða túlkun okkar.“
Hafbeitarlax gekk í árnar í miklu magni á árunum
1984 til 1999, en á þeim tíma fór veiddur lax úr ánum
í 40% af eldislaxi á móti 60% af villtum laxi. Kvíaalinn
lax gekk helst í árnar á tímabilinu 1987 til 1992 og allt að 24% veiddra laxa
komu úr kvíum. „Hvort tveggja er eldislax; hafbeitarlax og kvíaalinn lax.
Það voru kynbætur á hafbeitarfiski, og sannarlega var hafbeitarlaxinn líka
eldisfiskur“, segir Leó.
Seiðasleppingar breyta myndinni ekki
LEÓ ALEXANDER
GUÐMUNDSSON
KVÍAELDI Unnið er að því byggja upp sjókvíaeldi á laxi á Vestfjörðum, og er um
nokkuð myndarlegt eldi að ræða. MYND/JÓN ÖRN
JÓN ÖRN PÁLSSON
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is