Fréttablaðið - 17.08.2013, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 17.08.2013, Blaðsíða 12
17. ágúst 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | Rannsókn á áhrifum eldislax á stofngerð náttúrulegs lax í árkerfi Elliðaáa sýnir að stofngerð villta laxins hefur tekið breytingum. Þeir sem standa að rannsókninni telja að niðurstöðurnar styðji að varast ber erfðablöndun villts lax og eldislax. Jón Örn Pálsson, svæðisstjóri hjá laxeldisfyrirtækinu Fjarða- laxi, segir að niðurstöðurnar stað- festi ekkert um áhrif af stroku- laxi úr eldiskvíum. Þvert á móti sýni rannsóknin áhrif frá hafbeit- arlaxi sem villist upp í ár. Rann- sóknin taki ekkert tillit til gríðar- legra seiðasleppinga í Elliðaárnar í gegnum áratugina, sem gjaldfelli rannsóknina. Fréttablaðið greindi frá rann- sókninni í gær. Niðurstaðan í hnot- skurn er að erfðablöndun við eldis- lax hafi raskað stofngerð villta Elliðaárlaxins. Orðanotkun og seiðasleppingar Jón Örn gagnrýnir í fyrsta lagi orðanotkun um eldislax harð- lega og telur það óþolandi að skil- greina uppruna hans ekki betur. „Ef menn ætla að nota þetta hug- tak þá verður að skilgreina upp- runann miklu betur. Talað er um áhrif lax sem alinn var í kvíum og hins vegar um hafbeitarlax. Þriðja stærðin í þessu dæmi eru seiðasleppingarnar sem ítrek- aðar eru mun skaðlegri en stöku hrygning hjá eldisfiski,“ segir Jón Örn. Í þessu samhengi bendir Jón Örn á opinberar tölur sem sýna að á árunum 1999 til 2007 var sleppt um 770 þúsund laxaseiðum árlega í veiðiár á Íslandi, eða um 50% meira en heildar náttúruleg seiðaframleiðsla íslenskra áa. „Í Elliðaárnar var sleppt yfir 180 þúsund eldisseiðum vegna fisk- ræktar á árabilinu 1998 til 2007. Á sama tímabili gengu um 190 þúsund náttúruleg laxaseiði til sjávar. Halda menn svo að þetta hafi ekki áhrif á genamengi lax- ins. Þessar sleppingar voru fram- kvæmdar í samræmi við ráðgjöf fiskifræðinga á Veiðimálastofnun sem annaðist einnig rekstur haf- beitarstöðvar í Kollafirði, í næsta nágrenni Elliðaáa. Þar var sleppt milljónum laxaseiða á yfir 30 ára tímabil. Þessi hafbeitarlax leitaði víða upp í ár og nægir þá að nefna Elliðaár og Laxá í Kjós.“ Norski laxinn Aðspurður um þá staðreynd að norskur kynbættur eldislax er ræktaður í íslensku vistkerfi, en það hefur verið gagnrýnt af mörg- um, segir Jón Örn að vissulega sé erfðamengi norska laxins frá- brugðið því íslenska. „Hins vegar hefur eldislaxinn glatað hæfileik- um sínum til að þrauka í villtri náttúru. Lífslíkur hans eru hverf- andi litlar, enda leitar hann til hafs nema ef hann er kynþroska á þeim tíma sem hann sleppur. Slík- ar uppákomur verða alltaf sjald- gæfar, því eftirlit og tækjabúnað- ur er orðinn það góður. Og takist eldislaxi í eitt skipti að hrygna eru erfðaáhrifin af því engin. Til þess að erfðamengi laxastofns í á breytist þarf endurtekna hrygn- ingu í langan tíma. Því er hættan hverfandi.“ Þessu til viðbótar segir Jón Örn að laxeldi sé aðeins leyft á svæð- um þar sem eru sárafáir náttúru- legir laxastofnar. Hér vísar Jón Örn til þess að í gildi er bann við laxeldi í sjó kvíum á svæðum þar sem margar stórar laxveiðiár renna til sjávar. Í Fréttablaðinu í gær varaði Sigurður Guðjónsson, forstjóri Veiðimálastofnunar, við stórtæku eldi á Vestfjörðum og aðspurður um eldið sagði hann greinilega hættu til staðar. Það stjórnist af því hvað mikið af laxi sleppur og hversu lengi blöndunin stendur. Það skipti líka máli hversu fjar- skyldur laxinn er, og því sé norski laxinn hættulegur. ASKÝRING | 12 ÁHRIF ELDIS Á VILLTA LAXASTOFNA E N N E M M / S ÍA / N M 5 8 8 5 3 BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Bílahúsið Reykjanesbæ www.bilahusid.is 421 8808 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 Deilt um áhrif af eldi á villtan lax Stofngerð villta laxastofnsins í Elliðaánum hefur breyst og eru göngur eldislaxa í árnar ástæðan, er niðurstaða nýrrar rannsóknar. Sérfræð- ingur í eldi dregur þetta í efa og segir seiðasleppingar í árnar vanmetna stærð, og segir hættuna af göngum eldislaxa í veiðiár hverfandi. Leó Alexander Guðmundsson, líffræðingur hjá Veiði- málastofnun og aðalhöfundur rannsóknarinnar, segir gagnrýni hvað varðar seiðasleppingar í Elliðaárnar ekki eiga rétt á sér. Sleppingar í árnar hafi byggt á seiðum úr ánum sjálfum; fyrstu kynslóðar seiðum. „Það sem við erum að skoða eru áhrif eldislaxins sem gekk þarna inn í töluverðu magni. Það er alveg óskylt mál og á ekki að hafa áhrif á niðurstöður eða túlkun okkar.“ Hafbeitarlax gekk í árnar í miklu magni á árunum 1984 til 1999, en á þeim tíma fór veiddur lax úr ánum í 40% af eldislaxi á móti 60% af villtum laxi. Kvíaalinn lax gekk helst í árnar á tímabilinu 1987 til 1992 og allt að 24% veiddra laxa komu úr kvíum. „Hvort tveggja er eldislax; hafbeitarlax og kvíaalinn lax. Það voru kynbætur á hafbeitarfiski, og sannarlega var hafbeitarlaxinn líka eldisfiskur“, segir Leó. Seiðasleppingar breyta myndinni ekki LEÓ ALEXANDER GUÐMUNDSSON KVÍAELDI Unnið er að því byggja upp sjókvíaeldi á laxi á Vestfjörðum, og er um nokkuð myndarlegt eldi að ræða. MYND/JÓN ÖRN JÓN ÖRN PÁLSSON Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.