Fréttablaðið - 17.08.2013, Blaðsíða 18
17. ágúst 2013 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 18
Rammaáætlun er langt
og flókið ferli. Ferli sem
hefur staðið árum saman
með aðkomu vísinda-
manna og faghópa þar sem
fjölmargir þættir voru
skoðaðir og þess var freist-
að að ná sem bestri yfir-
sýni áður en svæði yrðu
loks flokkuð í vernd, nýt-
ingu og biðflokk til nánari
skoðunar. Það hefur verið
afar mikilvægt, bæði fyrir
verndarsjónarmiðin og
nýtingarsjónarmiðin að
ná sem mestri sátt um þessi mál.
Sérstaklega þó um aðferðina, laga-
rammann.
Þetta tókst á árinu 2011 þegar
allir flokkar á þingi samþykktu lög
um rammaáætlun, lög um verk-
færið, um aðferðina. Faghóparnir
skiluðu forgangsröðun til iðnaðar-
ráðherra í samræmi við lögin.
Ráðherrann fól síðan formönnum
faghópanna að gera tillögu um
flokkun virkjanahugmynda þar
sem flokkað var í nýtingu, vernd
og biðflokk. Norðlingaalda var þá
þegar í verndarflokki. Þessi flokk-
un fór síðan í lögboðið tólf vikna
kynningar- og umsagnar-
ferli þar sem yfir 200
umsagnir bárust.
Í samráði við umhverfis-
ráðherra var tillagan því
næst lögð fyrir þingið þar
sem tekið hafði verið til-
lit til röksemda sem fram
komu. Virkjanahugmynd-
ir í Neðri-Þjórsá og langt
inni á hálendinu vestan
Vatnajökuls voru fluttar
úr nýtingarflokki í bið-
flokk þannig að unnt væri
að skoða nánar tiltekna
þætti.
Iðnaðarráðherra, í samráði við
umhverfisráðherra, lagði tillöguna
loks fyrir þingið sem samþykkti
hana óbreytta. Í nefndaráliti
meirihlutans eru útlínur lagðar
fyrir næstu verkefnisstjórn, varn-
aðarorð vegna jarðhitanýtingar
ítrekuð og fjöldamörg önnur álita-
mál dregin fram til að hafa í huga
við næstu skref.
Ný verkefnisstjórn hefur tekið
til starfa og hefur tekið biðflokk-
inn til skoðunar og mun gera til-
lögu til ráðherra um flokkun
þeirra hugmynda sem hann geym-
ir. Allt þetta ferli var samkvæmt
lögum, þótt öðru hafi ítrekað verið
haldið fram.
Verndarflokkurinn
Það er hins vegar ekki sam-
kvæmt lögum að taka svæði úr
verndarflokki og hefja á því nýja
skoðun í þágu nýtingar. Í 6. grein
laga um rammaáætlun segir að
stjórnvöldum sé: „… ekki heimilt
að veita leyfi tengd orkurannsókn-
um eða orkuvinnslu vegna virkj-
unarkosta sem eru í verndarflokki
eða eru á svæðum sem ástæða er
talin til að friðlýsa gagnvart orku-
vinnslu. Þá eru aðrar orkurann-
sóknir sem ekki eru leyfisskyldar
einnig óheimilar.“
Þannig eru svæði í verndar-
flokki komin í skjól ef svo má segja
og ekki í samræmi við lögin að
kalla svæðið nýju nafni eða pakka
því inn í nýjan búning séu stjórn-
völd á hverjum tíma ekki sátt við
niðurstöðuna. Þetta er lykilatriði.
Lög um náttúruvernd
Burtséð frá rammaáætlun hafa
verið í gildi náttúruverndarlög í
landinu um áratugaskeið. Yfir 100
svæði hafa verið friðlýst á grund-
velli þeirra þar sem um hefur verið
að ræða ótvírætt verndargildi. Þar
er um að ræða búsvæði plantna,
dýra, sérstakar jarðmyndanir og
fleira og fleira, sem stefnt er að
að myndi heildstætt net verndar-
svæða í samræmi við stefnumörk-
un Íslands í náttúruvernd og alþjóð-
lega samninga.
Samkvæmt náttúruverndarlögum
hafa náttúruverndaráætlanir verið
lagðar fyrir þingið með reglubundn-
um hætti og sú síðasta (2009-2013)
var samþykkt 2010. Á þessari nýj-
ustu áætlun er stækkun friðlandsins
í Þjórsárverum, sem raunar hefur
verið á dagskrá náttúruverndar-
fólks í rúm 40 ár. Friðlýsingar ferlið
í þágu stækkunar friðlandsins í
Þjórsárverum var því löngu hafið
áður en rammaáætlun lá fyrir.
Umhverfisstofnun leitaði samráðs
við hagsmunaaðila og sveitarfélög
sem vildu bíða niðurstöðu ramma-
áætlunar til að tryggja að ekki yrðu
árekstrar milli þessara sjónarmiða.
Þegar niðurstaða rammaáætlunar
lá svo fyrir var þráðurinn tekinn
upp og öll gögn lágu fyrir til undir-
ritunar í samræmi við fyrri áform
þegar skyndilega var kippt í spotta
eins og fram hefur komið í fréttum.
Þannig er Alþingi tvisvar búið að
ákveða að stækka friðlandið í Þjórs-
árverum og slá áform um Norð-
lingaölduveitu út af borðinu. Bæði
með náttúruverndaráætlun 2009-
2013 og rammaáætlun frá í janúar
2013. Viljinn er skýr og þar með
umboðið sem ráðherrunum ber að
virða.
Náttúruverndaráætlun er í
gildi og þar eru skilgreind útmörk
stækkunar friðlandsins. Ramma-
áætlun er líka í gildi, þar sem Norð-
lingaalda er sérstaklega tiltekin í
verndarflokki. Þetta eru staðreynd-
ir málsins.
Fingraför?
Samþykkt rammaáætlunar á síð-
asta þingi er án efa stærsta einstaka
skrefið sem stigið hefur verið í þágu
náttúruverndar á Íslandi. Stóriðju-
flokkarnir ömuðust við málinu og
gerðu það tortryggilegt með því að
tala um pólitísk afskipti og inngrip.
Þó var farið að lögum í hverju skrefi
og tekið tillit til radda almennings í
samræmi við Árósarsamninginn og
góða stjórnsýslu.
Nú boða iðnaðar- og umhverfis-
ráðherra pólitíska aðför að ramma-
áætlun. Rammaáætlun er ónýt ef
áform Ragnheiðar Elínar og Sigurð-
ar Inga ganga eftir. Orðið fingraför
dugar ekki til að lýsa því sem þar
er á ferð.
Pólitísk aðför
STJÓRNMÁL
Svandís
Svavarsdóttir
fyrrverandi umhver-
fi sráðherra
➜ Rammaáætlun er ónýt ef
áform Ragnheiðar Elínar og
Sigurðar Inga ganga eftir.
„Ég á vini sem eru samkyn-
hneigðir og þykir mjög vænt
um þá. En mér finnst þetta
verið að ganga of langt.“
Tónlistarmaðurinn Gylfi Ægisson varaði við
því að samkynhneigðum yrði sýnt of mikið
umburðarlyndi en sá ástæðu til að geta
þess í framhjáhlaupi að hann hefði sko
enga fordóma.
„Ég neita því ekki að það
hefur verið talað við mig.“
Þingmaðurinn Guðlaugur Þór Þórðarson
hefur ekki ákveðið hvort hann tekur
slaginn um sæti í borgarstjórn á næsta ári.
Hins vegar hafi margir komið að máli við
sig og hvatt sig til framboðs.
„Ég er náttúrulega í þessum
hagræðingarhópi.“
Vigdís Hauksdóttir segist alls ekki hafa
verið að hóta einum eða neinum þegar
hún sá ástæðu til að nefna það í viðtali á
Bylgjunni að hún sæti í niðurskurðarhópi
ríkisstjórnarinnar, strax í kjölfar umræðu
um meinta hlutdrægni fréttastofu RÚV.
„Mér þykir miður að gjörðir
mínar særðu fólk og hafa
sært Bandaríkin.“
Uppljóstrarinn Bradley Manning sýndi í
fyrsta sinn iðrun við réttarhöld yfi r honum
í byrjun viku.
„Ég ætla ekki að drekka
aftur í bráð.“
Julian Hlynur Parry sér mjög eft ir því að
hafa valdið skemmdum á borðum og
stólum á Ingólfstorgi um liðna helgi. Hann
lofar bót og betrun.
817
FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST
Vigdís á að víkja
Ólafur Þ. Stephensen ritstjóri
614
MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST
Skemmandi ofb eldi venjulega
fólksins
Ólafur Þ. Stephensen ritstjóri
605
MÁNUDAGUR 12. ÁGÚST
Steldu.net
Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur
564
MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST
Í orðastað háttprúðrar konu
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona
486
MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST
„Skoðanir“ á hinsegin fólki
Anna Pála Sverrisdóttir, formaður Sam-
takanna 78
443
MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST
Hæfust?
Ingibjörg Gréta Gísladóttir, eigandi og
framkvæmdastjóri Reykjavík Runway ehf.
437
MÁNUDAGUR 12. ÁGÚST
Pottadólgurinn
Haukur Viðar Alfreðsson blaðamaður
280
ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST
Framhaldsskólanám á Íslandi er
ekki gjaldfrítt
Anna María Gunnarsdóttir framhaldsskóla-
kennari
Skoðun visir.is
UMMÆLI VIKUNNAR
10.08.2013 ➜ 16.08.2013
Óska eftir að kaupa
enskt english course tungumálnámskeið.
Vantar 2 námskeið.
Ég borga 30.000 fyrir námskeiðið
Upplýsingar í 865-7013
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 483 0300 og á www.hnlfi.is
Námskeið í gjörhygli tengir saman hugræna atferlismeðferð og hugleiðsluæfingar.
Gjörhygli er kerfisbundin þjálfun í að vera í núinu og vera meðvitaður um líkama,
hugsanir og tilfinningar, augnablik eftir augnablik.
Námskeiðið hefst 5. september á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði.
Kennt er á fimmtudögum kl.16:45 - 19:00. Verð 49.000 kr.
Átta vikna námskeið í gjörhygli
(Mindfulness based cognitive therapy/stress reduction)
Berum ábyrgð á eigin heilsu
Hafðu hjartað heima
Kennari er Bridget „Bee“ Ýr McEvoy RPN en hún hefur
kennt gjörhygli á Heilsustofnun NLFÍ frá 2006.