Fréttablaðið - 17.08.2013, Page 24

Fréttablaðið - 17.08.2013, Page 24
17. ágúst 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24 Pálmi Gunnarsson, einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, kemur fram á stórtónleikum í Hörpu og sendir einnig frá sér safn- plötu og sjálfævisögulega veiðisögu í haust. Hann einsetti sér að gerast atvinnutónlistarmaður og barðist lengi við Bakkus, en hefur nú verið edrú í nærri tuttugu ár. Pálmi segir það stundum hjálpa sér að líta til baka yfir farinn veg. Ef þú nefnir eitthvert götunafn er líklegt að ég viti ekkert um hvað þú ert að tala, en þegar þú biður mig að hitta þig á kaffihúsi til móts við Hótel Óðinsvé er ekkert mál fyrir mig að finna rétta staðinn,“ segir tón- listarmaðurinn Pálmi Gunnarsson þegar blaðamaður tyllir sér niður með honum yfir rjúkandi bolla á kaffihúsi í Þingholtunum. Fyrirfram hafði lítill fugl hvíslað því að blaðamanni að téður söngvari og bassaleikari væri miður vel að sér í landafræði höfuðborgar- innar, í og með vegna þess að hann er uppalinn á Vopnafirði, bjó lengi á Hornafirði og hefur nú haft aðsetur á Akureyri í nærri tvo áratugi, en þær áhyggjur reyndust óþarfar. „Það mætti segja að ég þekki kennileitin,“ segir Pálmi og hlær. Hann segist kunna vel sig norðan heiða þar sem sambýliskona hans starfar sem kennari við Háskól- ann á Akureyri, en er raunar staddur í stuttum skreppitúr í Reykjavík sem hann nýtir meðal annars til að undir- búa tónleika í Hörpu þann 7. september næstkomandi. Á tónleikunum fer þessi vinsæli tón- listarmaður yfir rúmlega fjörutíu ára feril sinn í bransanum og á sama tíma kemur út nýr safndiskur með sömu áherslum. „Ég var í stúdíóinu í gær og kláraði upptöku á nýju lagi sem verður á diskn- um,“ segir Pálmi og á þar við lagið Núna eftir Magnús Eiríksson, helsta samstarfsmann sinn til ótal ára. Náði perlunum í einni töku Aðspurður segir Pálmi umfjöllunarefni nýja lagsins í raun hvatningu til fólks að drífa í að framkvæma hlutina strax í stað þess að bíða. „Frestunaráráttan í okkur þvælist oft fyrir,“ tekur hann fram og þá liggur beint við að spyrja hvort hann vinni hratt í hljóðverinu. „Yfirleitt, já. Það er langbesta leið- in, ef mannskapurinn er góður og þú veist að hverju þú ert að leita. Ég hef aldrei verið mikið fyrir yfirlegu. Það heyrist til að mynda vel í bassaleikn- um mínum, þar sem mér finnst best að telja í og láta svo vaða. Þegar ég var að byrja að vinna í stúdíóum á áttunda áratugnum fór hrikalegur tími í upp- tökur. Sum lögin voru tekin upp allt að þrjátíu sinnum og ég gjörsamlega hat- aði þetta frá byrjun. Mér þótti þetta alveg glatað og auðvitað kom að því að ég fékk nóg og missti mig. Þá grýtti ég frá mér heyrnartólunum, spurði hver andskotinn væri í gangi, og það var í síðasta skipti sem ég stundaði þessa bútasaumsvinnu sem var svo algeng. Alveg síðan þá hef ég reynt að ná einni töku og það gengur oftast ágætlega.“ Náðirðu þá öllum þessum perlum sem eru samofnar íslensku þjóðinni, Reyndu aftur, Þitt fyrsta bros, Ísland er land þitt og ótal fleirum, í einni töku? „Mörgum þeirra, já. Þitt fyrsta bros eftir Gunnar Þórðarson er reyndar með erfiðari lögum sem ég hef sungið, en það var bara eitt „teik“ og ég lagaði það ekki neitt. Það er eftirminnilegt því ég stóð í stiga og var að mála íbúð- ina mína þegar Gunnar hringdi í mig og bað mig um að drífa mig í hljóðverið strax því hann vantaði karlrödd. Hann hafði þá gert tilraunir með kvensöng í laginu en það gekk ekki upp og ég náði svona góðu áhlaupi á það og er ánægð- ur enn þann dag í dag. Ég er maður augnabliksins og hef alltaf verið. Það má yfirfæra á sönginn líka. Ég hef alltaf verið til í að taka tilsögn og einn af þeim sem gáfu mér góð ráð var Vil- hjálmur heitinn Vilhjálmsson, sá frá- bæri söngvari og góður vinur minn. Eitt af því sem Villi kenndi mér var að það væri allt í lagi að láta fölsku nót- urnar, eða „fallana“ eins og við köllum það, fljóta með, svo lengi sem tilfinn- ingin væri í lagi.“ Datt inn í bransann Nú standa fyrir dyrum tónleikar í Hörpu í byrjun september þar sem þú ferð yfir langan feril. Er einhver sér- stök ástæða fyrir þessari tímasetn- ingu? „Nei. Það er alltaf verið að mæla lífshlaupin okkar í einhverjum tíma- mótum. Þegar ég varð sextugur fyrir þremur árum var ég beðinn um að halda tónleika til að fagna því, en ég fann mig ekki í því þá. Þegar tón- leikahaldarinn færði þessa hugmynd í tal við mig síðasta vor leist mér vel á og sló til. Bandið sem verður með mér er gott og Magnús Eiríksson og Ellen Kristjánsdóttir, mitt helsta sam- starfsfólk í gegnum tíðina, verður auð- vitað með. Svo verða stelpurnar mínar, Ninna Rún og Ragnheiður Helga, í bakröddum og svo á ég von á að Sig- urður Helgi, strákurinn minn, stígi líka á svið. Ég hefði getað farið þá leið að fylla prógrammið af gestasöngvurum en ég geymi það bara til næstu alda- móta.“ Á tónleikunum rennir þú væntanlega í gegnum helstu smellina á ferlinum? „Já, allt frá því ég hóf ferilinn nít- ján ára gamall árið 1969. Þá bjó ég á Hornafirði, var að vinna í fiski og spila í Bítlabandi, en datt inn í eina af vin- sælustu danssveitum landsins. Ég vissi að Villi Vill var að hætta í Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar og það vant- aði bassaleikara og söngvara, svo ég setti í sjálfsbjargarviðleitnisgír dauð- ans og sendi Magnúsi mjög formlegt bréf, með mynd af mér og allt. Ég vildi óska þess að ég ætti þetta bréf því það er eflaust hrikalega asnalegt, en hálf- um mánuði síðar fékk ég svarbréf frá Magnúsi sem var búinn að panta fyrir mig flugmiða til Reykjavíkur sama dag. Ég flaug suður og Magnús bauð mér út að borða á Grillinu þar sem hann sagðist þurfa að kynnast þessum snillingi. Svo fórum við á skemmtistað- inn Röðul, þar sem hann komst að því að ég kunni ekki rassgat á bassa, enda hafði ég verið gítarleikari fram að því. En Magnús gaf mér séns, gegn því að ég æfði mig eins og brjálaður, og hálf- um mánuði síðar fékk ég skriflegan samning sem fannst einmitt um dag- inn, og hangir nú innrammaður uppi á vegg hjá Sigurði syni mínum, í Safn- aramiðstöðinni á Hverfisgötu. Svona byrjaði þetta nú allt saman og var rosa- legur skóli sem ég bý auðvitað að.“ Margoft við dauðans dyr Til viðbótar við tónleikana í Hörpu og safndiskinn kemur í haust út bók eftir Pálma, nokkurs konar sjálfsævisögu- leg veiðisaga þar sem Pálmi rekur tengingu sína við veiði og útivist allt frá því hann var smápolli á Vopnafirði. Pálmi segir vinnuna við bókina hafa verið einkar ánægjulega, en kom ekki til greina að skrifa hefðbundna ævi- sögu nafntogaðs manns um lífshlaup- ið, ástirnar og ævintýrin? „Nei, það hefur enn sem komið er ekki komið til greina. Ég er alls ekki viðkvæmur fyrir því að ræða um lífs- hlaup mitt og hef aldrei farið í graf- götur með að stundum hefur þetta verið erfitt. Ég barðist við brennivín og dóp í fleiri ár, en ég finn ekki hjá mér neina sérstaka þörf til að kryfja það til mergjar. Ég er meira upptekinn af núinu.“ Í ævisögu Magnúsar Eiríkssonar, vinar þíns og samstarfsmanns, sem kom út fyrir nokkrum árum, er ekki dregin dul á að þú og fleiri tónlistar- menn hafi verið ansi djúpt sokknir í sukkið á tímabili. Hvað fannst þér um það? „Allt í fína. Það var ekkert í þessari bók sem truflaði mig og engar ýkjur. En ég velti því fyrir mér hver væri til- gangurinn fyrir mig persónulega að segja frá tugum ára í óminni og sukki, með öllum þeim sársauka sem því fylgdi? Ég er þakklátur fyrir að hafa komist frá þessu fyrir næstum tveim- ur áratugum síðan og það skiptir mig meira máli en sukksögur af poppara, þótt þær geti verið fyndnar.“ Varstu hætt kominn á einhverjum tímapunkti, jafnvel inni á spítala? „Já, ég var margoft við dauðans dyr og staðan var stundum þannig að ég hefði getað meldað mig yfir á næsta fylleríi. Þeir sem ofnota brennivín eða dóp, nokkuð sem ég set undir sama hatt, eru alltaf í rússneskri rúllettu. En ég var jaxl. Ég var djöfulsins jaxl sem var kýldur niður trekk í trekk en stóð alltaf upp aftur og hjólaði inn í hringinn, bara til að láta slá mig kald- an eina ferðina enn. Svo gerðist eitt- hvað og ég gekk út úr hringnum. Síðan þá hefur edrúgangan mín verið átaka- lítil en ég nýti mér vissulega fortíðina sem reynslubanka. Þegar ég gleymi að vera þakklátur fyrir að vera til og alls- gáður hjálpar það mér að kíkja aðeins til baka.“ Ég er alls ekki viðkvæm- ur fyrir því að ræða um lífshlaup mitt og hef aldrei farið í grafgötur með að stundum hefur þetta verið erfitt. 1950 Fæddur á Vopnafirði og elst þar upp. 1969 Gengur til liðs við Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar. 1973 Leikur Júdas í uppfærslu Leikfélags Reykja- víkur á Jesus Christ Superstar. 1975 Fyrsta Mannakornsplatan, samnefnd sveitinni, kemur út. 1977 Vinnur með Björk Guðmundsdóttur að fyrstu sólóplötu söngkonunnar. 1978 Súpersveitin Brunaliðið sendir frá sér sína fyrstu plötu, Úr öskunni í eldinn. 1981 Fyrsta sólóplata Pálma, Í leit að lífsgæðum, kemur út. Sama ár sigrar lag sem sungið er af Pálma, Af litlum neista, dægurlagasöng- keppni Ríkissjónvarpsins. 1982 Pálmi kemur fram í kvikmyndinni Rokk í Reykjavík með hljómsveitinni Friðryk. 1986 Pálmi syngur Gleðibankann, fyrsta íslenska Eurovision-lagið, í Bergen ásamt Helgu Möller og Eiríki Haukssyni. 1990 Leikur með Sléttuúlfunum, landsliði ís- lenskra poppara, á plötunni Líf og fjör í Fagradal. 2005 Pálmi fagnar 40 ára tónlistarafmæli sínu á Vopnafirði. 2007 Mannakorn er lokaatriðið á stórtónleikum Rásar 2 á Klambratúni á menningarnótt. Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is Fékk nóg og gekk út úr hringnum MAÐUR AUGNABLIKSINS Pálmi Gunnarsson sendir frá sér sjálfsævisögulega veiðisögu í haust. Hann segir ekki hafa komið til greina að skrifa hefðbundna popparasögu. „Ég barðist við brennivín og dóp í fleiri ár, en ég finn ekki hjá mér neina sérstaka þörf til að kryfja það til mergjar. Ég er meira upptekinn af núinu.“ FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.