Fréttablaðið - 17.08.2013, Page 36
KYNNING − AUGLÝSINGSkólar & námskeið LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 20132
Spjaldtölvur hafa verið nýttar í nokkrum grunnskólum landsins undan farin tvö ár
með góðum árangri. Norðlinga-
skóli í Reykjavík hefur verið í farar-
broddi við innleiðingu spjaldtölva
í kennslu og verður næsta önn
sú f jórða í röðinni þar sem
spjaldtölvur eru notaðar markvisst
í kennslu á unglingastigi. Ragnar
Þór Pétursson, umsjónarkennari í
8. og 10. bekk, hefur leitt innleið-
inguna í skólanum. Hann segir
að þegar kennarar deildarinnar
hafi velt fyrir sér skólaþróun hafi
þeir komist að þeirri niðurstöðu
að spjaldtölvur yrðu líklega veru-
lega góður kostur. „Það gekk þó
ekki baráttulaust að fá sam-
þykki f yrir því á
sínum tíma en á
endanum tókst að
spjaldtölvuvæða
ei n n á rga ng. Í
vetur ættu allir
nemendur þriggja
árganga unglinga-
deildar skólans að
hafa iPad.“
Spjaldtölvu-
væðingin hefur
gert nemendur
mun sjálfstæðari
að sögn Ragnars
og þeir leita fjölbreyttari leiða
við að ná markmiðum sínum.
„Ábyrgð þeirra á
eigin námi er mun
meir i og þetta
frelsar kennara frá
því til dæmis að vera
málpípur og túlkar í
efnum þar sem það er í raun og
veru óþarft. Námið er miklu inni-
haldsríkara og betra og sá tími
sem fer í samskipti og samveru
er betur nýttur.“ Hann segir
einnig mikið hagræði hljótast af
þessu fyrir nemendur, kennara
og foreldra. „Mér sýnist að
notkun spjaldtölvanna muni spara
foreldrum unglingastigsins tæpar
tvær milljónir í innkaup fyrir
skólann.“
Fyrir kennara er að sögn
Ragnars mesti munurinn sá að
þeir eru farnir að sjá fram á að
geta sinnt hverjum nemanda
betur og þurfi ekki lengur að
nálgast námshópa sem hjarðir
sem mata þarf allar í einu. „Auk
þess er gaman að geta undir búið
kennslu og unnið úr henni með
öðrum kennurum í stað þess að
vera mikið til fastur inni í faginu
sínu, einn með ábyrgðina og alla
vinnuna. Við vinnum mikið meira
saman.“
Spjaldtölvurnar komnar til að vera
Norðlingaskóli í Reykjavík er í fararbroddi grunnskóla sem hafa innleitt spjaldtölvur í kennslu hérlendis. Næsta vetur munu allir
nemendur unglingadeildar nota iPad. Mikil hagræðing felst af innleiðingu þeirra fyrir nemendur, kennara og foreldra.
Ragnar Þór Pétursson, umsjónarkennari í Norðlingaskóla. Notkun spjaldtölva hefur aukist mikið í grunnskólum landsins. MYND/GETTY
Með skiptinámi gefst tækifæri til að stunda nám í dýrum háskólum erlendis.
„Það er mikil lífsreynsla að fara erlendis og þurfa að standa
algjörlega á eigin fótum í nýju landi,“ segir Harpa Sif Arnarsdóttir,
verkefnastjóri á skrifstofu alþjóðasamskipta Háskóla Íslands.
„Skiptinemarnir tala um að reynslan sé þroskandi, auki víðsýni
og síðar í lífinu finnst þeim þeir hafa grætt á skiptináminu. Í
okkar alþjóðavædda samfélagi er mikils virði að hafa reynslu úr
erlendum háskólum.“
Harpa bætir við að skiptinám tryggi að vissu leyti jafnrétti
til náms, því skiptinámið sé endurgjaldslaust ef frá er talið
skráningargjald í Háskóla Íslands sem er 60.000 krónur. „Boðið er
upp á skiptinám í mjög flottum skólum erlendis þar sem árið eða
önnin getur kostað fleiri milljónir. Þarna fá nemendur tækifæri
til að stunda nám í allt að ár, án þess að þurfa að hafa áhyggjur af
þessum gjöldum. Þetta er góður kostur fyrir þá sem hafa ekki efni
á að fara í nám erlendis en dreymir um það.“
Um 250 einstaklingar fara árlega í skiptinám frá Háskóla
Íslands. Flestir sækjast eftir að fara til Norðurlandanna,
Bretlands, Bandaríkjanna, Ástralíu og Japan.
Umsóknarfrestur í skiptinám til Evrópu vorið 2014 er
16. september.
Skiptinám og jafnrétti
Global Citizens Made at ISI
Alþjóðaskólinn er einkarekinn grunnskóli sem býður upp á alþjóðlega menntun
fyrir grunnskólabörn á aldrinum 5 –12 ára. Áhersla er lögð á alþjóðlega vitund
og jákvæðan aga í tvítyngdu umhverfi. Tvær námsleiðir eru í boði. Annarsvegar
námsbraut þar sem kennsla fer eingögnu fram á ensku og hinsvegar tvítyngd
námsbraut þar sem kennsla fer fram á íslensku og ensku.
The International School of Iceland offers a dynamic learning environment for
primary school children (K-7). Our emphasis is on international mindedness and
positive discipline in a bilingual environment.
For more information please visit our website at: www.internatonalschool.is
Alþjóðaskólinn á Íslandi / Lönguhlið 8 / 210 Garðabæ
Sími 590-3106 / admin@internationalschool.is / www.internationalschool.is
Great Learning
Great Teaching
Great Fun