Fréttablaðið - 17.08.2013, Síða 61
| ATVINNA |
Ert þú ung kona á aldrinum
20-35 ára í atvinnuleit?
Aðstoðarkona óskast!
Ég er rúmlega tvítug kona með hreyfihömlun og leita eftir
aðstoðarkonu í spennandi og krefjandi starf. Ég bý í
Reykjavík og stunda bæði háskólanám og vinnu.
Ég þarfnast aðstoðar við flestar athafnir daglegs lífs, m.a.
við hreinlæti, klæðnað, tiltekt, vinnu, skóla, ferðalög o.fl. svo
ég geti lifað eins og hver önnur ung manneskja í íslensku
samfélagi. Ég ferðast töluvert og fylgja aðstoðarkonur mér í
þeim ferðum, innan lands sem utan.
Ég óska eftir aðstoðarkonum á aldrinum 20-35 ára sem eru
sjálfstæðar, jákvæðar, ábyrgar og geta verið sveigjanlegar.
Mikilvægt er að umsækjandi sé reyklaus, hafi góða færni
í mannlegum samskiptum og grunnkunnáttu í ensku. Ekki
er gerð krafa um starfsreynslu af vinnu með fötluðu fólki.
Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf. Hægt
er að lesa sér til um notendastýrða persónulega aðstoð og
hugmyndafræði um sjálfstætt líf á heimasíðu
NPA miðstöðvarinnar, www.npa.is.
Um er að ræða fullt starf og er starfið í formi vaktavinnu en
mikilvægt er að umsækjandi geti unnið dagvinnu.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf í byrjun september.
Sé frekari upplýsinga óskað, sendið fyrirspurn á: embla@
npa.is. Umsókn ásamt almennri ferilskrá og upplýsingum
um meðmælendur skal senda á netfangið embla@npa.is.
Umsóknarfrestur er til og með 22. ágúst 2013.
Bæjarból
sérkennslustjóri
leikskólakennari
Lundaból
sérkennslustjóri
Akrar
sérkennari
leikskólakennari
www.gardabaer.is
LAUS STÖRF Í
LEIKSKÓLUM
GARÐABÆJAR
Yfirþjónn/vaktstjóri í sal
í Turninum-Nítjánda veitingastað
Við leitum eftir góðum yfirþjón/vaktstjóra í sal hjá okkur.
Viðkomandi þarf að búa yfir þekkingu og reynslu, jákvæðni
og sýna frumkvæði í starfi. Um er að ræða fullt starf í
vaktavinnu.
Hæfniskröfur:
• Faglærður framreiðslumaður eða einstaklingur með
mikla reynslu af framreiðslustörfum.
• Sterkur stjórnandi með góða, örugga og fágaða
framkomu.
• Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund.
• Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði.
Nánari upplýsingar um starfið veitir framkvæmdastjóri.
Umsóknir ásamt ferilskrá og mynd óskast sendar á
runar@turninn.is fyrir 30. ágúst.
Turninn-Nítjánda sérhæfir sig í stórveislum s.s. brúð-
kaupum, árshátíðum, erfidrykkjum og veislum út úr húsi.
Ásamt því að bjóða upp á kvöldverðarhlaðborð og brunch
um helgar.
Turninn-Nítjánda – Turninum – Smáratorgi 3 –
201 Kópavogur – Sími 575 7500
Óskað er eftir framkvæmdastjóra
listahátíðarinnar Listar án landamæra
sem haldin er árlega, að vori.
Starfið er fjölbreytt og skapandi og er starfshlutfall
breytilegt yfir árið. Starf framkvæmdastjóra felur m.a.
í sér skipulagningu og mótun dagskrár, sýningarstjórn,
fjáröflun, kynningarmál og framkvæmd hátíðarinnar.
Umsækjendur mega gjarnan hafa: Þekkingu og áhuga
á málefnum fatlaðs fólks, listrænan bakgrunn, góða
samskiptahæfni, ríkt frumkvæði, metnað, sveigjanleika og
reynslu af skipulagningu og fjármögnun viðburða.
Umsóknir sendist á netfangið:
listanlandamaera@gmail.com til og með 19. ágúst.
Frekari upplýsingar fást í síma 691-8756, www.listin.is
eða listanlandamaera@gmail.com
Grunnskóli Raufarhafnar
auglýsir eftir kennurum
Grunnskóli Raufarhafnar er samrekinn grunn- og leikskóli
með 13 nemendur þar sem Uppbyggingarstefnan er höfð að
leiðarljósi. Skólinn nýtur mikils stuðning frá samfélaginu og
leggjum við áherlsu á samvinnu sem og jákvæðni.
Við leitum að áhugasömum, fjölhæfum og jákvæðum kennara
í bekkjarkennslu á yngsta stigi þar sem þekking á byjrenda-
læsi er mikilvæg. Um fullt starf er að ræða.
Einnig leitum við að íþróttakennara sem og list-og verkgreina-
kennara í hlutastarf en möguleiki er á fullu starfi.
Upplýsingar veitir Frida Elisabeth Jörgensen skólastjóri
í síma 694-9063 og frida@raufarhofn.is
Umsóknarfrestur er til 21. ágúst 2013.
Lausar kennarastöður við
grunnskóla Norðurþings:
Norðurþing er öflugt sveitarfélag sem einkennist af fjölbreyttu
mannlífi og miklum sköpunarkrafti manns og náttúru.
UNO er líflegur ítalskur veitingastaður
við Ingólfstorg, í hjarta borgarinnar.
Þjónar, matreiðslumenn
og aðstoðarfólk
Veitingastaðurinn UNO við Ingólfstorg
vill bæta lærðum matreiðslumönnum,
þjónum og aðstoðarfólki í sal við kraftmikla
liðsheild staðarins.
Í boði eru framtíðarstörf fyrir rétta fólkið
sem hefur metnað og kraft til að gera
frábæran stað enn betri.
Vinsamlega sendið ferilskrá á u o@uno.is
Tækniritari óskast til framtíðarstarfa á skrifstofu
tæknisviðs. Vinnutími er alla virka daga frá
kl. 08:00-16:00.
STARFIÐ/HELSTU VERKEFNI:
• Yfirfara daglega gögn frá flugvirkjum á línu, leiðrétta
og færa upplýsingar í viðhaldsgrunn, afrita og setja
gögn í skjalavörslu.
• Gefa út skýrslu mánaðarlega um notkun flugvéla
félagsins og vista í viðeigandi gagnagrunn.
• Yfirfara allar athugasemdir, viðgerðir og hlutaskipti
og trygg ja að viðeigandi gögn fylgi frá flugvirkjum.
• Yfirfara eftir þörfum frágengnar vinnubeiðnir
(Work Orders), afrita og setja viðkomandi gögn
í skjalavörslu.
• Viðhalda gögnum fyrir flugvélar, hreyfla, skrúfur og
aðra íhluti sem skráðir eru í viðhaldsgrunn félagsins.
• Uppfæra og viðhalda skipulagi á skjalaskápum
tæknisviðs.
HÆFNISKRÖFUR:
Stúdentspróf eða sambærileg menntun, mjög
góð ensku- og tölvu kunnátta. Reynsla af almennri
skrifstofuvinnu og skjala stjórnun. Starfsreynsla
úr flugrekstrarumhverfi æskileg. Heiðarleiki, góð
samskipta hæfni, sjálfstæði, nákvæmni og reglusemi,
frumkvæði og jákvætt hugarfar.
Umsóknarfrestur er til 26. ágúst nk. Tekið er við
umsóknum í gegnum heimasíðu félagsins á þar
til gerðu eyðublaði, hægt er að heng ja við eigin
ferilskrá og önnur gögn sem skipt gætu máli.
FLUGFELAG.IS
TÆKNIRITARI
ÓSKAST
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS
LAUGARDAGUR 17. ágúst 2013 17