Fréttablaðið - 17.08.2013, Síða 82
17. ágúst 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 38
KROSSGÁTA
VEGLEG VERÐLAUN
LAUSNARORÐ
Ef bókstöfunum í skyggðu reitunum er raðað rétt saman birtist gamalkunnug íslensk bygging.
Sendið lausnarorðið í síðasta lagi 21. ágúst næstkomandi á krossgata@frettabladid.is merkt „17.
ágúst“.
Vikulega er dregið er úr inn-
sendum lausnarorðum og fær
vinningshafi eintak af bókinni
Ærlegi lærlingurinn eftir Vikas
Swarup frá Forlaginu. Vinnings-
hafi síðustu viku var Ómar
Árnason, Hafnarfirði.
Lausnarorð síðustu viku var
H A F N A R F J Ö R Ð U R
1 2 3 4 5 6 7 8 9
10 11
12 13
14 15
16
17 18
19 20
21 22
23
24
25 26
27 28 29 30 31 32
33
34
35
36
37
38 39
Ú T H A F S K A R F I N N G Ö A
R Á E Ð O A H A L I F A X
H Ó L P I N N I R F A Í U L
E O L L A N D N Á M S M A N N A
L A F H R Æ D D F K R U D R
L T E I Á E A V E N S I S
I A I A N I L Í N I Ð I V I
S Ö N G K O N A E N I N N L E G G
R N N D Á G Æ T I R V R I
E F A S A M L E G T Ð D Í Ó Ð A N
G Y E R E I S U M G R
N A F N L E Y S I Þ K B I Ð U N A
F D S P L A K A T I Ð A
S T R A N G I I R S T S R
U F R A N G I S T A R S T U N A
B R Í A R Í I Ð E K A R E
H L M K R O F N S K Ú F F A
F J A L L S T O P P A R T T J
Ó I E M I P O K A B U X U R
B L Ó Ð S Y K U R S A R R M
LÁRÉTT
1. Rennisleip og ræktanleg í Norður-Noregi (11)
6. Óvirða manneskjur, einkum börn (7)
12. Vopn fyrir harðjaxla og smiði (10)
13. Ekki typpið heldur hnúðurinn (9)
14. Tregar bóka tíma fyrir áætlun um sjálfbærni
(13)
15. Borðaðir uppáhalds (6)
17. Hinn spreyti sig á spurningum í misserislok (10)
18. Skúmgalli er klassísk yfirhöfn leynilöggunnar
(9)
19. Ef birtist móður skamma hríð (14)
21. Lipur lúka leikur sjö hálftóna (7)
23. Brothætt barnið brosir svo glampar á varnar-
hjúpinn (10)
24. Uppflettirit almættisins? (11)
25. Líkir dramadís við hjólkerlingu (5)
27. Elskaði loðnu á vorboðanum (8)
29. Smjörkista er rætin hlíð eða spjót Gísla Súrs-
sonar (7)
33. Gilda þessar umdeildu reglur um heitavatn? (8)
34. Steikja lið með aðlaðandi augabrúnir (11)
35. Lendum að lokum hjá rössum sem fyrr (10)
36. Frysta lóð fyrir Frón (7)
37. Hani og heimskingi fúlsar við kræsingum (6)
38. Skil áverka, enda fljótari að læra (6)
39. Set saman nefnd um réttar byggingaaðferðir
(8)
LÓÐRÉTT
1. Drattast til að finna einstakt hundaæðistil-
felli (9)*
2. Smávaxin borga mót gírugra vinnuveitenda
(14)
3. Rauðfætlingarugl er heilnæm jurtahræra
(12)
4. Faldar telja að laumuspil sé rétt stefna (13)
5. Sveifluórói fer um geggjarann er dixílandið
dunar (14)
7. Leyfist að nota afl (4)
8. Segja rennslisstuð ráðast af flóði og fjöru
(10)
9. Er drulluterta illa ort bakkelsi? (8)
10. Höggstaður árstíðarinnar kallar á keðjur og
þrúgur (11)
11. Ertu klikk, krakki, heyrirðu ekki brestina? (7)
16. Ét ofan í mig pár linda og húsgagna (10)
20. Hleð niður formum í fannferginu (12)
22. Lenda við snögga hreyfingu Presleys (11)
23. Fegra veislurnar og fögur fyrirheitin (10)
25. Aðlaga atburð (8)
26. Hugsum í jörðum (8)
28. Hin sanna tá míns besta og ruglaðasta vinar
(7)
30. Kjaftæðið í afa og ömmu leiðir til mín (7)
31. Hefur afnot af broddstaf (7)
32. Burt með brellu, það er stórfínt (7)
*Já, með d-i! Þið kærið þá bara annaðhvort mig eða ykkur kollótt.
DÝR VIKUNNAR MARA
Mörur eru stór nagdýr sem finnast víða í sunnanverðri Suður-Ameríku. Þær
líkjast stórum hérum eða kanínum með langar lappir og lítil eyru, og eru
fjórða stærsta nagdýr veraldar, á eftir flóðsvínum, bjórum og puntsvínum.
Fullvaxin getur maran orðið 45 sentimetrar á hæð og allt að ellefu kíló að
þyngd.
Til eru tvær tegundir af mörum, annars vegar sú smærri sem kennd
er við Chaco-svæðið í Bólivíu, Paragvæ, norðanverðri Argentínu og hluta
Brasilíu. Hins vegar Patagóníu-maran, sem er stærri og lifir syðst í álfunni, á
svæði sem kallað er Patagónía.
Mörur eru nokkuð fráar á fæti– geta hlaupið á upp undir 30 kílómetra
hraða– og stokkið býsna hátt, allt að 1,8 metra.
Þær velja sér maka fyrir lífstíð og skipta ekki nema ef sá fellur frá. Þær
eru hins vegar líka hópdýr, sem er allsérstök blanda í spendýraríkinu. Ung-
arnir eru mjög þroskaðir við fæðingu og geta byrjað að ganga, eða öllu
heldur hoppa, um nánast strax og þeir eru komnir úr móðurkviði.
Mörur búa í holum sem þær grafa sér í jörðina og eru fljótar að forða
ungunum þar niður ef hætta steðjar að. Þær eru talsverðar mannafælur
og breyta jafnvel lifnaðarmynstri sínu verulega til að forðast samskipti við
mannfólk, hætta til dæmis að ferðast um á daginn og gerast næturdýr.
Á hinn bóginn er auðvelt að hæna þær að mannfólki frá unga aldri ef
vilji er til þess, þótt ekki séu þekkt mörg dæmi þess að þær séu beinlínis
gæludýr.
Og maran á ekkert skylt við óvættina sem við Íslendingar köllum möru.
Sagan segir að hún leggist á fólk í svefni og valdi því martröðum. Ekki er
vitað til þess að suður-ameríska maran hafi orðið uppvís að því. - sh
Mannfælið en trygglynt
risanagdýr
MEÐ MIKINN STÖKKKRAFT Maran getur stokkið mannhæðarhátt þótt hún sé
tiltölulega letileg á þessari mynd.
Hreysti – Gleði – Vellíðan – Hreyfing – Styrkur – Samhæfing – Tækni – Túlkun
Vilt þú læra á listskauta?
Listskautanámskeið
Fyrir 5 – 16 ára
Fríir prufutímar!
Námskeiðin hefjast laugardaginn 31. ágúst og eru ætluð bæði strákum og
stelpum.
Hægt er að velja 8 vikna námskeið (31. ágúst - 23. október) eða 15 vikna
námskeið (31. ágúst - 15. desember).
Æfingar fara fram í Egilshöllinni / Kennt er í litlum hópum þar sem skipt er eftir
bæði getu og aldri.
Liðleiki, jafnvægi, þol, styrkur, snerpa, túlkun, samhæfing og tækni
Stundatafla
• Laugardagar: Svell kl. 12:20 – 13:00
• Miðvikudagar: Svell kl. 16:20 – 17:00 / Þrek kl. 17:20 – 18:00
Nánari upplýsingar varðandi námskeiðin veita:
• Berglind Rós Einarsdóttir, yfirþjálfari s: 899-3058
• Erlendína Kristjánsson, skautastjóri s: 697-3990
• Kristrún Elva Jónsdóttir, gjaldkeri s: 849-6746
Skráning
www.bjorninn.com/Listskautar
Skráningardagar verða í Egilshöll (við skautasvellið á 2. hæð) laugardaginn
24. ágúst og laugardaginn 31. ágúst kl. 10 - 13 þar sem hægt verður að fá
frekari upplýsingar varðandi námskeiðin, s.s. þjálfun, skráningu og annað
sem viðkemur íþróttinni.
Einnig má senda tölvupóst á gjaldkerilist@bjorninn.com
Þjálfarar listskautadeildar:
Erlendína Kristjánsson,
skautastjóri og þjálfari
Clair Wileman,
yfirþjálfari A og B deilda
Andrew Place,
ólympíufari, yfirþjálfari C
deildar
Berglind Rós Einarsdóttir,
yfirþjálfari skautaskóladeildar