Fréttablaðið - 06.09.2013, Qupperneq 18
6. september 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR |
Viðskiptatækifæri
Áhugasamir aðilar hafi samband við Guðna Halldórsson
sími 414 1200, gudni@kontakt.is
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
Stórt þvottahús
og efnalaug
Glæsilegt og vel tækjum búið þvottahús og efnalaug með
móttökustaði víðsvegar um höfuðborgarsvæðið.
Góður rekstur í miklum og hröðum vexti.
Tækifæri til enn meiri vaxtar án frekari tækjakaupa,
sérstaklega á fyrirtækjamarkaði.
Góð lán geta fylgt.
H
a
u
ku
r
0
9
.1
3
MENNTUN „Þetta er búið að vera fjör
og keyrsla en auðvitað skemmtilegt
líka,“ segir Atli Steinn Bjarnason,
formaður Nemendafélags Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti, en þar
fór fram busavígsla í gær.
„Við skiptum busunum upp í fjóra
hópa og einn þeirra málaði meðal
annars nemendafélagsherbergið,“
segir Atli Steinn um busavígsluna
sem nýnemarnir máttu þola í gær.
„Síðan var sett upp bootcamp-
braut hér á lóðinni,“ segir Atli
Steinn en það voru bootcamp-þjálf-
arar sem settu brautina upp fyrir
utan skólann. Atli Steinn segir að
busarnir hafi ráðið sjálfir hvort
þeir tækju þátt í busuninni.
Ari Eldjárn fór svo með gaman-
mál og hljómsveitin Dorian Grey
spilaði fyrir nemendur.
„Svo verður busaball á Rúbín,“
segir Atli Steinn en ballið fór fram
í gærkvöldi. Þá spilaði glysrokks-
veitin Diamond Thunder fyrir
dansi ásamt rappsveitinni Úlfur
Úlfur.
„Þetta verður bara konfettí og
snilld,“ segir Atli Steinn.
Það voru ekki bara nýnemar í
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
sem voru busaðir í gær. Nemendur
í Menntaskólanum í Reykjavík
buðu nýnema velkomna með marg-
víslegum hætti, meðal annars með
hinni klassísku tolleringu. -vg
Glitpappír, tollering
og þrautabraut
Það var mikið fjör hjá nemendum Fjölbrautaskólans í Breiðholti og hjá nemum í
Menntaskólans í Reykjavík. Nýnemar voru tolleraðir í MR eins og hefðin segir til
um en nemarnir í FB voru látnir mála nemendafélagsherbergið.
ÞRAUTABRAUT Nýnemar í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti þurftu að fara í gegnum þrautabraut.
ÓGIRNILEG BRAUT Busarnir höfðu frjálst val um að taka þátt í brautinni.
BLÓÐUGIR BÖÐLAR Þeir voru ófrýnilegir nemarnir sem tóku á
móti nýjum nemum í MR.
LÍFLEGIR UPPVAKNINGAR Menntaskólanemarnir sýndu spariandlitið í busuninni.
GÆGÐUST ÚT UM GLUGGANN Nýnemum leist illa á
aðstæður.
KLASSÍSK TOLLERING Það er gömul hefð að tollera nýnema í Menntaskólanum í
Reykjavík.
Í MYNDUM | 18
BUSAVÍGSLUR Í FRAMHALDSSKÓLUM LANDSINS