Fréttablaðið - 26.09.2013, Side 1

Fréttablaðið - 26.09.2013, Side 1
FRÉTTIR MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Fimmtudagur 22 ENGIN DÝRAMYNSTURDýragarðurinn Chessington World of Adventures í Bretlandi hefur beðið gesti sína að klæðast ekki fötum með hlébarða- eða tígrisdýramynstri í nýlegu friðlandi garðsins. Dýragæslumenn hafa tekið eftir að slík mynstur hræða dýrin í garðinum. ÍSLENSK ULL ÍSLÁR Laugavegi 63 • S: 551 4422 Vertu vinur á Facebook Yfirhafnir laxdal.is/yfirhafnir Skoðið GLÆSILEGAR Hettu- Dúnúlpur m/ekta skinni Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955 TÆKIFÆRISGJAFIR www.tk.is NÝTT MUNNBLÁSIÐ - HANDUNNIÐFæst eingöngu hjá IV V ha nd un ni ð fr á Íta líu Tertudiskur á fæti kr. 10.900.- Diskur kr. 7.950.- Skálar kr. 3.550.- Bláar og svartar HÁAR Í MITTIÐ!ÞRJÁR SÍDDIR SPARNEYTNIR BÍLARFIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2013 Kynningarblað Metanbílar, rafbílar, sparakstur og góð ráð. M 2.990 ÞÚ . KR. 2 SÉRBLÖÐ Sparneytnir bílar | Fólk Sími: 512 5000 26. september 2013 226. tölublað 13. árgangur MENNING Ástrós Erla Benedikts- dóttir er skólastjóri nýja förðunar- skólans NN Make Up School. 50 SPORT Katrín Jónsdóttir kveður íslenska kvennalandsliðið í fótbolta í kvöld eftir 19 ára þjónustu. 44 Eygló Erla Ingvarsdóttir Eymundsson Nú er opio allan sólarhringinn í Engihjalla SKOÐUN Vilja stuðla að umræðu um samkeppnishvata í heilbrigðis- og menntamálum, skrifar Páll Gunnar. 22 STJÓRNMÁL Alþýðusambandið, Samtök atvinnulífsins og Viðskipta- ráð hafa skrifað Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra og lýst áhuga sínum á að taka þátt í úttekt á stöðu aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Ríkisstjórnin ákvað fljótlega eftir að hún komst til valda að gera hlé á viðræðunum en að gerð yrði úttekt á stöðu þeirra og þróun mála innan Evrópusam- bandsins. Að þessari vinnu vilja aðilar vinnumarkaðarins koma. „Við viljum ráðast í úttekt á stöðu aðildarviðræðna og öðrum þeim kostum sem við stöndum frammi fyrir hvað varðar peningamál og efnahagsumgjörðina,“ segir Þor- steinn Víglundsson, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins. Aðilar vinnumarkaðarins vilja að skipaður verði hópur fagfólks til að gera úttektina. Bréfinu fylgja hug- leiðingar um hvað þurfi að kort- leggja og hvaða spurninga þurfi að spyrja varðandi ESB. Samtökin vilja fá svör við því hvernig hægt sé að taka aftur upp viðræður við ESB og ljúka þeim á þann hátt að þjóðin geti tekið afstöðu til aðildar. „Það eru ýmis tækifæri fólgin í Evrópusamvinnu en það eru líka ýmis ljón í veginum þegar kemur að sjávarútvegs-, landbúnaðar- og byggðamálum,“ segir Gylfi Arn- björnsson, forseti Alþýðusambands- ins. Hann segir að ASÍ vilji ekki úti- loka neina möguleika í stöðunni. Það sé bæði gott og viturlegt að skoða kosti og galla Evrópu- samvinnu. Gylfi segir að sam- tök á vinnumarkaði vilji gjarnan koma því til leiðar að umræða um Evrópusambandsmál verði á mál- efnalegri nótum en hún hefur verið síðustu vikur og mánuði. Stjórnvöld hafa ekki svarað bréfi aðila vinnumarkaðarins. - jme Samtök á vinnumarkaði vilja vera með í úttekt á viðræðum SA, ASÍ og Viðskiptaráð vilja taka þátt í fyrirhugaðri úttekt stjórnvalda á stöðu aðildarviðræðna við Evrópusam- bandið. Hafa ritað forstætisráðherra formlegt bréf þar sem þau lýsa áhuga sínum. Stjórnvöld hafa ekki svarað. TÍUÞÚSUNDKALL Már Guðmundsson seðlabankastjóri með nýja tíu þúsund króna seðilinn sem bankinn setur í umferð í næsta mánuði. Seðillinn er tileinkaður Jónasi Hallgrímssyni. Sjá síðu 8 FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Bolungarvík 4° NA 7 Akureyri 5° NA 3 Egilsstaðir 7° NV 2 Kirkjubæjarkl. 8° SV 2 Reykjavík 10° N 3 DÁLÍTIÐ VÆTA Í dag verður yfirleitt fremur hæg norðaustlæg eða breytileg átt. Dálítil væta en úrkomulítið S- og V-til. Hiti 4-10 stig. 4 DÓMSMÁL Saksóknari krefst sextán ára fangelsis- dóms yfir Friðriki Brynjari Friðrikssyni, sem ákærður er fyrir að hafa ráðið Karli Jónssyni bana með eldhúshníf í íbúð þess síðarnefnda við Blómvang á Egilsstöðum í maí. „Við ákvörðun refsingar verður að horfa til þess að þarna var um svakalega ofsafengna árás að ræða gegn nánast algjörlega ókunnugum manni,“ sagði Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari þegar hún flutti málið í Héraðsdómi Reykjaness í gærkvöldi. Hún sagði framburð Friðriks hafa breyst í sífellu og að svo virtist sem hann hefði lagað hann jafnóðum að því sem fram hefði komið við rannsóknina. Hann ætti sér ekki neinar málsbætur. Fullyrðing hans um að Karl hefði kynferðislegar langanir til barna hefði verið rannsökuð sérstaklega í þaula án þess að nokkuð kæmi fram sem renndi stoðum undir hana. „Það liggur sextán ára fangelsi við broti af þessu tagi og ég held að það sé engin ástæða til að færa þá refsingu eitthvað niður,“ sagði Kolbrún. Guðrún Sesselja Arnardóttir, verjandi Friðriks, viðurkenndi að framburður hans hefði verið reikull, en eitt hefði þó verið stöðugt: Hann hefði aldrei viljað kannast við að hafa beitt hníf. Hún sagði að ekki væri útilokað að Friðrik hefði, eins og hann heldur sjálfur fram, lent í stimpingum við Karl og yfirgefið íbúð hans, komið aftur skömmu síðar og þá hefði Karl verið látinn. Raunverulegur gerandi gæti jafnvel hafa verið enn inni í íbúðinni – til dæmis inni á baðherbergi. „Auðvitað er þetta ekki líklegt, þetta er ekki senni- legt – þetta er frekar ótrúlegt – en er þetta ómögu- legt? Raunveruleikinn er stundum ótrúlegri en nokkur skáldskapur,“ sagði verjandinn. - sh / sjá síðu 6 Saksóknari segir morðárás á Egilsstöðum hafa verið „svakalega ofsafengna“: Krefst 16 ára dóms fyrir morð Við ákvörðun refsingar verður að horfa til þess að þarna var um svakalega ofsafengna árás að ræða. Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari GYLFI ARNBJÖNSSON ÞORSTEINN VÍGLUNDSSON Lítið vitað um áhrif brennisteinsvetnis Mikil þörf er sögð á rannsóknum á heilsufarsáhrifum brennisteins- vetnis. Áhrif á tæki og mannvirki eru sönnuð. 12 Fordæmalaus ákvörðun Svandís Svavarsdóttir, þingmaður VG og fyrrverandi umhverfisráðherra, segir áform um að afturkalla lög um nátt- úruvernd fordæmalaus og svik. 2 Lítið svigrúm til hækkana Samtök atvinnulífsins telja að í nýjum kjarasamningum verði að nást „þjóðarsátt“ um lækkun verðbólgu og vaxta. 4 Boðar sættir og samlyndi Rúhaní Íransforseti virðist staðráðinn í að bæta samskiptin við Bandaríkin og önnur Vesturlönd. 10 FÓLK „Ég er mjög hamingjusöm,“ sagði Susanne Alsing, eigandi læðunnar Nuk, sem strauk úr einkaþotu á Reykjavíkurflugvelli á mánudags- kvöld. Hún fann köttinn á flug- vallarsvæðinu um klukkan átta í gær- kvöldi. „Ég var að leita að henni þegar ég varð vör við hana undir skýli, einhverjum 300 metrum frá flugvélinni,“ sagði Alsing. Talið var að kötturinn hefði farið af flugvallarsvæðinu og upp í Öskjuhlíð. Í örvæntingu sinni fékk Susanne aðstoð frá björgunarsveitum við leit að kett- inum. Þá hét hún því að hver sá sem fyndi læðuna fengi hundrað þúsund krónur í fundarlaun. „Nuk var dálítið ringluð en það rjátlaðist af henni eftir nokkr- ar mínútur,“ sagði Alsing spurð hvernig kettinum liði. - vg / sjá síðu 2 Eigandinn fann köttinn sjálf: Fann Nuk á flugvellinum SUSANNE ALSING

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.