Fréttablaðið - 26.09.2013, Blaðsíða 48
26. september 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 36
TÓNNINN
GEFINN
Freyr Bjarnason
Þriðja plata kanadíska rapparans
Drake, Nothing Was The Same, er
nýkomin út. Fylgir hún í kjölfar
tveggja annarra platna sem komu
út í sumar sem flestir rappáhuga-
menn biðu einnig spenntir eftir,
Yeezus með Kanye West og Magna
Carta Holy Grail með Jay Z.
Nothing Was The Same kemur út
á vegum Young Money Entertain-
ment, Cash Money Records og Uni-
versal Republic. Við upptökurnar
fékk Drake til liðs við sig hóp
gesta rappara, eða 2 Chainz, Big
Sean, Jay Z, Jhené Aiko og Sampha.
Einnig syngur Majid Jordan í smá-
skífulaginu Hold On, We´re Going
Home. Tvö önnur lög hafa komið
út á smáskífum, Started From
the Bottom og All Me, þar sem 2
Chainz og Big Sean syngja.
Drake er frá borginni Toronto og
verður 27 ára í næsta mánuð. Hann
varð fyrst þekktur fyrir hlutverk
sitt sem Jimmy Brooks í kana dísku
unglingaþáttunum Degrassi: The
Next Generation. Árið 2006 steig
hann fram á sjónarsviðið sem
rappari og R&B-söngvari, fyrst
með laginu Replacement Girl.
Brátt var hann orðinn einn um-
talaðasti listamaðurinn í hip hop-
bransanum án útgáfusamnings.
Ekki skemmdi fyrir að hann naut
stuðnings risanna Kanye West, Jay
Z og Lil Wayne.
Sumarið 2009 komst smáskífu-
lag Drake, Best I Ever Had, í annað
sæti Billboard-listans í flokki
R&B- og hip hop-tónlistar. Útgáfu-
fyrirtækið Universal Motown
tryggði sér krafta hans og gaf út
EP-plötuna So Far Gone sem fékk
mjög góðar viðtökur. Enn betri
hlaut fyrsta stóra platan, Thank
Me Later, þar sem Alicia Keys,
Jay Z og Lil Wayne voru á meðal
gesta. Hún fór beint á topp Bill-
board-listans í Bandaríkjunum.
Sú næsta, Take Care, kom út 2011
og fór einnig á toppinn hjá Bill-
board og tryggði Drake að auki
Grammy-verðlaunin. Sú plata festi
hann í sessi sem einn vinsælasta
tónlistar mann Kanada.
Platan Nothing Was The Same
hefur fengið mjög góða dóma bæði
hjá Rolling Stone og Pitchfork.
Fyrrnefnda tímaritið gefur henni
fjórar stjörnur af fimm mögu-
legum en síðarnefnda vefsíðan
gefur henni 8,6 af 10.
freyr@frettabladid.is
Í fótspor tveggja risa
Hinn kanadíski Drake hefur gefi ð út sína þriðju plötu, Nothing Was The Same.
Hún fylgir í kjölfar nýjustu verka kollega hans, rapparanna Jay Z og Kanye West.
Drake fer með lítið hlutverk í gamanmyndinni Anchorman 2: The Legend
Continues sem kemur í bíó um næstu jól. Rapparinn spurði aðalleikarann
Will Ferrell hvort hann mætti leika í myndinni. Honum og leikstjóranum
Adam Kay leist vel á það. Rapparinn Kanye West kemur einnig lítillega við
sögu í myndinni.
Leikur í gamanmyndinni Anchorman 2
DRAKE Rapparinn Drake hefur gefið út sína þriðju plötu, Nothing Was The Same. NORDICPHOTOS/GETTY
Ekki veit ég hvernig To Be With You með Mr. Big síaðist inn í undir-
meðvitund mína. Engu að síður hef ég vaknað með lagið á heilanum
síðustu daga, alltaf jafn undrandi yfir hvernig það náði fótfestu.
Einhverjir halda kannski að ég ætli að nota þennan pistil til að úthúða
laginu en það er ekki ætlunin. Vissulega er það ekki í uppáhaldi en samt
er það ekkert leiðinlegt, enda er viðlagið grípandi með afbrigðum.
To Be With You kom út árið 1991 og er tekið af plötunni Lean Into
It. Lagið er það fyrsta og eina með Mr. Big sem hefur komist á topp
bandaríska Billboard-listans en alls fór það á toppinn í fimmtán löndum,
hvorki meira né minna. Annars er Mr. Big starfandi enn þann dag í dag.
Sveitin var stofnuð í
Kaliforníu árið 1988,
hætti störfum 2002
en sneri aftur 2009.
Áður en To Be With
You varð óvæntur
hluti af mínu lífi var
ég með Beyoncé-lag-
ið Halo á heilanum
á hverjum einasta
morgni í ansi langan
tíma. Ástæðan fyrir
því er reyndar kunn
því það var sungið
óspart í steggjun
sem ég var hluti af.
Að sjálfsögðu frábærlega sungið lag (ekki af steggnum reyndar) sem grípur
mann heljartökum. Lagið kom út 2009, eða átján árum á eftir To Be With
You, og fór hæst í fimmta sæti Billboard-listans. Beyoncé kemst því ekki
með tærnar þar sem Mr. Big hafði hælana, allavega í þessu tilfelli.
Þegar ég hóf þennan pistil vissi ég ekkert hvert hann myndi leiða mig.
En eftir að hafa rannsakað bæði lögin vel og vandlega kom í ljós að þau
eiga eitt sameiginlegt, fyrir utan að þau eru ballöður og að ég hef verið
með þau bæði á heilanum, og það er írska strákabandið Westlife. Þeir
félagar eru miklir aðdáendur laganna, hafa flutt þau bæði opinberlega og
vafalítið gert það af mikilli innlifun.
Sem betur fer get ég ekki nefnt eitt lag með Westlife, þó svo að eflaust
hafi ég heyrt þau nokkur, og ætti því að vera nokkuð „safe“ næstu
morgna. Hvaða lag tekur við af To Be With You hjá mér verður því áfram
ráðgáta, allt þar til það skýtur upp kollinum einn „góðan“ veðurdag.
Með Mr. Big á heilanum
Hallur Ingólfsson - Öræfi
Mark Lanegan - Imitations
Snorri Helgason - Autumn Skies
Í spilaranum
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/
Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is.
LAGALISTINN TÓNLISTINN
19.9.2013 ➜ 25.9.2013
1 Lorde Royals
2 Katy Perry Roar
3 Dikta Talking
4 Lana Del Ray Summertime Sadness
5 Arctic Monkeys Do I Wanna Know?
6 Ellie Goulding Burn
7 Miley Cyrus We Can‘t Stop
8 Emiliana Torrini Speed Of Dark
9 Taylor Swift / Ed Sheeran Everything Has Changed
10 Naughty Boy / Sam Smith La La La
1 Ýmsir Pottþétt 60
2 Emilíana Torrini Tookah
3 Úr söngleik Borgarleikhússins Mary Poppins
4 Pálmi Gunnarsson Þorparinn
5 Ýmsir Inspired by Harpa
6 Ýmsir This Is Icelandic Indie Music
7 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn
8 Of Monsters And Men My Head Is An Animal
9 Sigur Rós Kveikur
10 Samaris Samaris
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot
á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum
25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar
þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex
daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu.
Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða
þjónustu beint inn á heimilin.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU