Fréttablaðið - 26.09.2013, Blaðsíða 4
26. september 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
LEIÐRÉTT
Rangt var farið með tölur um fjölgun
heimafæðinga hér á landi síðastliðin
tíu ár í frétt blaðsins í gær. Hið rétta
er að slíkum fæðingum fjölgaði um
296 prósent milli 2002 og 2012. Þá
var heimafæðingaljósmóðirin Arney
Þórarinsdóttir rangnefnd í fréttinni.
STJÓRNSÝSLA
Heimsótti Þjóðminjasafnið
Forsætisráðherra heimsótti Þjóðminja-
safnið í byrjun vikunnar. „Dagskrá
forsætisráðherra lauk með kynningu í
Þjóðmenningarhúsi á áformum safnsins
varðandi uppbyggingu þar í næstu fram-
tíð,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Málefni tengd varðveislu menningar-
arfsins og minjavernd heyra undir for-
sætisráðuneytið.
STJÓRNSÝSLA Sigurður Már Jóns-
son hefur verið ráðinn upplýsinga-
fulltrúi ríkisstjórnarinnar og
hefur störf 1.
október næst-
komandi.
Sigurður,
sem fæddur
er 1960, hefur
starfað við
blaðamennsku
síðan 1985, þar
á meðal sem
aðstoðarrit-
stjóri og rit-
stjóri Viðskiptablaðsins. Sigurður
sagði í samtali við Fréttablaðið að
ráðningin hefði ekki átt sér langan
aðdraganda. - hg
Réðu Sigurð Má Jónsson:
Nýr upplýsinga-
fulltrúi ríkisins
SIGURÐUR MÁR
JÓNSSON.
SVÍÞJÓÐ Steinn úr ólífu varð til
þess að upp komst um þjófa í
Svíþjóð sem taldir eru tilheyra
alþjóðlegu þjófagengi.
Fjórir menn eru nú í haldi grun-
aðir um fjölda innbrota í íbúðir í
Stokkhólmi, Eskilstuna og Upp-
sölum í sumar. Meðal sönnunar-
gagna er steinn úr ólífu sem lá á
eldhúsgólfinu í einu húsanna sem
brotist var inn í. Erfðaefni fannst
á steininum, sem var úr ólífu sem
einn þjófanna hafði gætt sér á.
Við handtöku mannanna fann
lögreglan tvo stóra geymslustaði
með þýfi úr um þrjátíu innbrotum.
-ibs
Innbrot í Svíþjóð:
Steinn úr ólífu
sönnunargagn
ÓLÍFUR Erfðaefni úr þjófi fannst á
steini úr ólífu. NORDICPHOTOS/GETTY
NEYTENDUR Bónus karríkrydd,
framleitt í síðasta mánuði, hefur
verið innkallað vegna gruns um
salmonellumengun.
Í tilkynningu frá Matvæla-
stofnun kemur fram að Salmo-
nella muenchen hafi greinst í
einni dós af vörunni við innra
eftir lit hjá Kötlu matvælaiðju
sem framleiðir kryddið.
Þeim sem hafa keypt vöruna
þar sem síðasti söludagur er
13.08.2014 er bent á að skila
henni til framleiðanda. - þj
Vara frá Kötlu innkölluð:
Salmonella
í karríkryddi
INNKALLAÐ Bónus karríkrydd hefur
verið innkallað. MYND/MAST
84% Íslendinga segjast oftast nota olíu við
matargerð en hlutfall þeirra sem
nota smjörlíki er aðeins um 8%.
Í elsta aldurshópnum nota 73%
oftast olíu, 14% smjörlíki og 10%
smjör, en í öðrum aldurshópum er
hlutfallið 88% olía, 6% smjörlíki og
4% smjör.
Heimild: Hvað borða Íslendingar.
Könnun á mataræði Íslendinga, 2011.
ORKUMÁL Sala á raforku frá Íslandi til útlanda
í gegnum sæstreng gæti skilað þjóðarbúinu
40 milljörðum króna á ári. Þetta kemur fram
í skýrslu sem fjármálafyrirtækið GAMMA
vann fyrir Landsvirkjun um áhrif sæstrengs
á hag íslenskra heimila.
Í skýrslunni kemur fram að lagning
sæstrengs auki öryggi og skilvirkni í orku-
vinnslu.
Ásgeir Jónsson, efnahagsráðgjafi GAMMA,
segir viðbúið að raforkuverð muni hækka hér
á landi með tilkomu sæstrengs en hægt væri
að bregðast við því með því að nota hluta af
hagnaði raforkusölunnar til að niðurgreiða
verð til heimila. „Raforkuverð á Íslandi er
mun lægra en þekkist í Evrópu. Það gæti ein-
hver hækkun átt sér stað en óvíst er hversu
mikil hún kynni að verða. Raforkuverð á
Íslandi verður alltaf lægra en í útlöndum.
Bara flutningskostnaður í gegnum strenginn
þýðir að við verðum með lægra raforkuverð
en úti,“ segir Ásgeir.
Ásgeir segir hagkvæmast að leggja
sæstreng til Bretlands. „Það er töluverður
skortur á grænni orku í Bretlandi. Bretar eru
lengst frá því að uppfylla markmiðin um nýt-
ingu grænnar orku og þeir eru því tilbúnir að
bjóða hátt verð,“ segir Ásgeir. - hks
Raforkuverð gæti hækkað með tilkomu sæstrengs til Bretlands en ábati er sagður gríðarlegur:
Strengur gæti skilað 40 milljörðum árlega
FUNDAÐ UM SÆSTRENG Hörður Arnarson var meðal
gesta á fundinum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sigurður Helgi Grímsson sigurdurhg@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Laugardagur
5-10 m/s.
ÚRKOMULÍTIÐ SYÐRA Það verður norðlæg átt ríkjandi á landinu næstu daga með
úrkomu norðan og austan til en annars úrkomulítið. Gengur í suðlæga átt um helgina
og léttir víðast hvar til.
4°
7
m/s
5°
5
m/s
10°
3
m/s
10°
2
m/s
Á morgun
3-8 m/s.
Gildistími korta er um hádegi
7°
3°
6°
4°
2°
Alicante
Basel
Berlín
28°
25°
14°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
14°
20°
24°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
13°
13°
27°
London
Mallorca
New York
19°
28°
21°
Orlando
Ósló
París
31°
13°
24°
San Francisco
Stokkhólmur
20°
9°
8°
2
m/s
8°
3
m/s
7°
2
m/s
6°
4
m/s
5°
3
m/s
6°
5
m/s
3°
2
m/s
7°
2°
9°
5°
2°
KJARASAMNINGAR „Við viljum nýja þjóðarsátt um
betri lífskjör með lækkun verðbólgu og vaxta,“
sagði Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, þegar samtökin kynntu
áherslur sínar í komandi kjarasamningum.
Samtökin telja að betra efnahagsumhverfi leiði
til aukinna fjárfestinga fyrirtækja og kröftugri
hagvaxtar.
Þau telja að aukin fjárfesting skili 10 til 15
þúsund störfum á næsta ári. Samtökin telja ekki
mikið svigrúm til launahækkana. Þorsteinn segir
að samtökin líti til Norðurlandanna í því sam-
bandi. Þar hafi mönnum tekist að halda verðbólgu
í skefjum en þar hafa launabreytingar á ári verið
hálft til tvö prósent. Reynslan frá Norðurlöndunum
sýni að hægt sé að auka kaupmátt með hófstilltum
launahækkunum yfir lengri tíma og það hafi gerst
á tímum þjóðarsáttarsamninganna hér á landi.
Björgólfur Jóhannsson, formaður samtakanna
segir að þau vilji semja til eins árs. Á þeim tíma
ætti að vera komin skýrari mynd af stefnu ríkis-
stjórnarinnar í ríkisfjármálum næstu ár og áform
um afnám gjaldeyrishafa ætti að liggja fyrir.
Samtökin telja að á næsta ári verði að huga að
því að breyta vinnulagi við gerð kjarasamninga.
Þeir verði að byggjast meira á getu hverrar
atvinnugreinar til að greiða laun. „Það yrði samið
um kostnaðarsvigrúm kjarasamnings en ekki
hin eiginlegu laun í heildarkjarasamningi,“ segir
Þorsteinn. Samningar um laun myndu færast inn í
fyrirtækin. johanna@frettabladid.is
Lítið svigrúm sagt
til launahækkana
Samtök atvinnulífsins telja að í nýjum kjarasamningum verði að nást sátt um
lækkun verðbólgu og vaxta. Samtökin vilja ekki semja lengur en til eins árs.
Stefna verði að „þjóðarsátt“. Kallað á breytt vinnulag við gerð kjarasamninga.
NÝ ÞJÓÐARSÁTT Samtök atvinnulífsins vilja nýja þjóðarsátta-
samninga. Aðildarfyrirtæki SA eru um tvö þúsund. Hjá félags-
mönnum SA starfar um helmingur launamanna á almenna
vinnumarkaðnum hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Samtök atvinnulífsins segja að skuldir heimilanna
nemi tvö þúsund milljörðum króna. Hver prósenta í
verðbólgu leggi 20 milljarða króna byrði á heimilin
í formi vaxta og verðbóta. Heildarlaun landsmanna
nema 800 milljörðum króna og því hækka tekjur
heimilanna um 8 milljarða þegar laun hækka um
eina prósentu og um fimm milljarða eftir greiðslu
tekjuskatts. Ávinningur heimilanna af eins prósents
hjöðnun verðbólgu sé að minnsta kosti fjórfalt meiri
en af eins prósenta launahækkun.
Skulda tvö þúsund milljarða
Samtök atvinnulífsins segja að nærri níu þúsund
manns hafi flutt af landi brott umfram aðflutta á
árunum 2009 til 2012. Þrátt fyrir það vanti enn um
átta þúsund störf fyrir fólk á Íslandi sem er án vinnu.
Ef vel ætti að vera þyrfti því að skapa 10-15 þúsund
störf hér á landi á næstu árum en á hverju ári bætast
allt að tvö þúsund manns við vinnumarkaðinn.
Vantar átta þúsund störf
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
pizzaostur á tilboði
Þú finnur girnilegar uppskriftir
á gottimatinn.is
tilboð