Fréttablaðið - 26.09.2013, Blaðsíða 62
26. september 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 50
„Við erum mjög spennt fyrir
þessu samstarfi,“ segir Þorvaldur
Bjarni Þorvaldsson í Todmobile.
Jon Anderson, upprunalegur
söngvari ensku proggsveitarinnar
heimsfrægu Yes, kemur fram á
árlegum tónleikum Todmobile í
Eldborgarsal Hörpu 15. nóvember.
Flutt verða vinsælustu lög Yes og
Todmobile.
Anderson er einn af stofn-
meðlimum Yes en hætti í sveitinni
undir lok áttunda áratugarins.
Hann sneri aftur í hana á þeim
níunda og þá kom út eitt vin-
sælasta lag hennar, Owner Of
A Lonely Heart. Tvær plötur
sveitar innar náðu efsta sæti
breska vinsældarlistans á áttunda
áratugnum.
Þorvaldur Bjarni kynntist
Ander son þegar sá síðarnefndi
var að leita að samstarfsmönnum
fyrir sinfóníska tónlist sem hann
var að vinna. Þorvaldur sendi
honum hluta af þeirri sinfón-
ísku tónlist sem hann var að gera
á þeim tíma, þar á meðal tónlist
fyrir kvikmyndina Astropíu og
söngleikinn Gosa, og hitti hún
í mark hjá honum. „Við vorum í
sambandi eftir það og fundum út
að við vorum algjörlega á sömu
blaðsíðu í músíkinni,“ segir Þor-
valdur Bjarni, spurður út í vináttu
þeirra. Í framhaldinu skiptust
þeir á að senda á milli sín tónlist
og sömdu þeir einhver lög saman,
þar á meðal eitt lag sem verður
frumflutt á tónleikunum í Hörpu.
Aðspurður segir Þorvaldur
Bjarni að hljómsveitin Yes sé tví-
mælalaust einn af stórum áhrifa-
völdum sínum í tónlistinni, ásamt
David Bowie, Led Zeppelin, Roxy
Music og King Crimson. „Ef hægt
er að flokka Todmobile í einhvern
geira í íslensku tónlistarlífi höfum
við alltaf verið að míga utan í
progg. Þótt sum af popplögun-
um okkar hafi slegið í gegn er
uppistaðan alltaf þessi stóru lög
sem hafa nýst okkur frá-
bærlega á tónleikum. Við
erum fyrst og fremst
tónleikasveit og það
sama má segja um
Yes.“
Miðasala á
tón leika na í
Eldborg hefst í
næstu viku.
freyr@frettabladid.is
Söngvari Yes stígur á
svið með Todmobile
Jon Anderson, stofnmeðlimur Yes, syngur með Todmobile í Eldborg.
ÁHUGAVERT SAMSTARF Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og félagar í Todmobile spila
með Jon Anderson á tónleikum í Eldborg.
Hljómsveitin Todmobile er að
undirbúa tvöfalda plötu. Á fyrri
helmingnum verða glæný lög
en á þeim síðari verður upptaka
frá fyrstu tónleikum Todmobile í
Eldborg. Mynddiskur frá tónleik-
unum fylgir einnig í kaupbæti.
Halldór Baldursson, skopmynda-
teiknari hjá Fréttablaðinu, hannar
umslag plötunnar. Hann var einnig
maðurinn á bak við umslag Spillt,
sem kom út með Todmobile
fyrir tuttugu árum við miklar
vinsældir.
Tvöföld plata frá Todmobile
„Þegar skipulagið býður ekki upp á
að elda kvöldmat heima er gott að
leita til Tókýó Sushi í Glæsibæ. Svo
eru mjög góðar pitsur á Eld ofninum
á Bústaðaveginum.“
Birta Björnsdóttir, sjónvarpskona í Íslandi
í dag.
BESTI BITINN
JON
ANDER-
SON
Tónlistar-
maðurinn
er einn af
stofnendum hljóm-
sveitarinnar Yes.
NORDICPHOTOS/GETTY
„Ég er ótrúlega spennt fyrir þessu nýja verkefni.
Ég er á fullu í háskólanum og er í Stúdentaráði
líka,“ segir Ástrós Erla Benediktsdóttir, nýráðinn
yfirkennari og skólastjóri við förðunarskólann NN
Make Up School.
NN Make Up School er í eigu förðunarmeistarans
Kristínar Stefánsdóttir, sem gaf nýverið út bókina
Förðun skref fyrir skref, og opnar skólinn í byrjun
október.
„Það er svolítið skondið hvernig þetta byrjaði.
Ég var fengin til þess að sitja fyrir í förðunar-
bók Kristínar og áður en ég vissi af var ég farin
að aðstoða við stíliseringu í bókinni og hjálpa til
við hitt og þetta. Í framhaldi af því kynntist ég
Kristínu betur og hún sagði mér frá skólanum sem
hún stefndi á að opna. Við náðum mjög vel saman
og henni leist vel á mig. Þegar hún svo bauð mér að
vera yfirkennari og skólastjóri kom ekkert annað til
greina en að taka starfinu. Það hefur verið draumur
lengi að kenna förðun,“ segir Ástrós, sem útskrifað-
ist sem förðunar fræðingur fyrir þremur árum.
Ástrós hefur í nógu að snúast en hún er að klára
B.A-nám í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands, ásamt
því að sitja í Stúdentaráði fyrir hönd Vöku og vera í
félags- og menningarmálanefnd Háskólans.
„Ég hef engar áhyggjur af því að þetta gangi ekki
upp. Ég þarf bara að skipuleggja mig rosalega vel
og vakna snemma. Kærastinn minn er bakhöndin
mín og ef hann treystir mér veit ég að ég er að gera
rétt,“ segir Ástrós að lokum. - áo
Hlakkar til að verða skólastjóri
Ástrós Erla Benediktsdóttir er nýráðin yfi rkennari og skólastjóri í förðunarskóla.
MJÖG SPENNT Ástrós Erla Benediktsdóttir er spennt fyrir
nýja hlutverkinu. Hún verður yfirkennari og skólastjóri í
nýjum förðunarskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
STÓRBÆTTU
LÍF ÞITT
með breyttu mataræði!
Sannkölluð fróðleiksnáma fyrir alla þá sem vilja
bæta líf sitt með aukinni vitund um mataræði og
sjúkdóma og taka upp hollari lífshætti.
„Jóhanna hefur
skrifað merkilegt rit um
leiðir til betra lífs og hvet ég
fólk til að lesa bókina og
íhuga efnið.“
SIGMUNDUR GUÐBJARNAS
ON
FYRRVERANDI REKTOR HÍ
1. SÆTI
METSÖLULISTA EYMUNDSSON ALLAR BÆKUR 21.08.13 til 27.08.13
Fiskikóngurinn
Sogavegi 3 • www.fiskikongurinn.is
Bragi Valdimar Skúlason úr Baggalúti er að
þýða enska söngleikinn Spamalot fyrir upp-
færslu Þjóðleikhússins á næsta ári.
„Ég var að þýða Jeppa á Fjalli fyrir
Borgar leikhúsið og stökk svo yfir borgina
og er á kafi í Spamalot núna. Það er rosa
gaman,“ segir Bragi Valdimar.
Aðspurður segist hann mikill aðdáandi
Monty Python en söngleikurinn er að mestu
byggður á kvikmynd grínhópsins, The Holy
Grail. „Ég er löngu forfallinn aðdáandi.
Maður gleypti þetta í sig allt í barnæsku,“
segir hann og er sammála því að Baggalútur
hafi verið undir áhrifum frá Monty Python
í gegnum árin. „Ætli maður verði ekki að
fallast á það. Það eru einhvers konar súrheit
sem hafa fylgt manni.“
Hann segir erfitt að þýða söngleikinn yfir
á íslensku. „Það er mikið af orðaleikjum.
Þetta er skrifað fyrir fólk sem þekkir söng-
leiki og það er eiginlega verið að gera grín
að söngleikjum, sem er dálítið skemmtilegt.
Þarna eru tilvísanir í allar áttir og það er
gaman að glíma við þetta.“
Erfi ðir orðaleikir í Spamalot
Bragi Valdimar Skúlason þýðir söngleikinn Spamalot fyrir Þjóðleikhúsið.
BRAGI VALDIMAR Baggalúturinn er að þýða söng-
leikinn Spamalot fyrir Þjóðleikhúsið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
➜ Spamalot er fyrsti söngleikurinn
sem Bragi Valdimar
Skúlason þýðir.