Fréttablaðið - 26.09.2013, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 26.09.2013, Blaðsíða 34
KYNNING − AUGLÝSINGSparneytnir bílar FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 20134 ÁHUGI EYKST Á RAFBÍLUM Þýskir bílaframleiðendur hafa upplýst að þeir muni koma með á markað sextán nýja rafbíla fyrir árið 2016. Að auki komi Audi, BMW, Ford, Mitsubishi og Mercedes og jafnvel fleiri með nýja tvinnbíla strax á næsta ári. Bílaframleiðendur eru meðvitaðir um að umhverfisvænir bílar eru framtíðin og mátti sjá glæsilega rafbíla á bílasýningu í Frankfurt nú í september. Evrópubandalagið hefur lagt til að bílar losi ekki meira en sem svarar 95 grömmum af koltvíildi árið 2020. Margir telja að því markmiði verði einungis náð með aukningu á rafbílum og síðan tvinnbílum. Á bílasýningunni í Frankfurt, sem er sú stærsta í Evrópu, mátti sjá aukinn áhuga framleiðenda á umhverfisvænni bílum og að það er margt að gerast í þeim efnum. FYRSTU RAFBÍLARNIR Ólíkt því sem margir halda er rafbíllinn alls ekki nýleg uppfinning. Fyrsti rafbíllinn er talinn vera frá árinu 1888 og var smíðaður í Þýskalandi. Rafbílar nutu talsverðra vinsælda í lok 19. aldar og á fyrstu áratugum þeirrar tuttugustu, þá helst í Bandaríkjunum. Rafmagnið þótti þægilegur og hentugur kostur til að knýja bíla á þessu tímabili, sérstaklega í innanbæjarakstri. Þeir gáfu auk þess frá sér mun minni hávaða en bensínbifreiðar og voru lausar við þann mikla óþef sem barst frá bensíninu. Ekki þurfti heldur að skipta um gíra á rafbílum, ólíkt bensínknúnum bifreiðum, og eigendur rafbíla þurftu ekki að snúa þeim í gang með handafli eins og nauðsynlegt var á bifreiðum sem gengu fyrir bensíni. Fyrir aldamótin 1900 áttu ýmsar teg- undir rafbíla bæði hraða- og lengdamet. Þannig rauf rafbíllinn Jamais Contente 100 kílómetra múrinn árið 1899 þegar hann náði 106 kílómetra hraða. Fram á þriðja áratug síðustu aldar áttu rafbílar í fullu tré við bensínknúna bíla þegar kom að almennu notagildi. Það breyttist þó upp úr 1930 þegar framleiðsla bensín- knúinna bifreiða jókst hratt á sama tíma og olíuiðnaðurinn hóf einnig að vaxa að umfangi. Á stuttum tíma varð rafbíllinn nær úreldur en bensínknúnar bifreiðar kostuð þá um helmingi minna en rafbílar. AUKAFARANGUR EYKUR ELDSNEYTISEYÐSLU Farangursbox sem fest eru á toppgrind bílsins auka geymslu- plássið til muna svo fjölskyldan kemst jafnvel af með minni og eyðslugrennri bíl. Boxið eykur þó vindmótstöðu bílsins og fullhlaðið eykur boxið þar að auki eldsneytiseyðslu bílsins um allt að fimm prósent. Farangursboxið skal því skilja eftir í bílskúrnum þegar það er ekki í notkun. Eins ætti að forðast að aka um með óþarfa farangur og dót í bílnum því 45 kíló í skott- inu auka eldsneytiseyðslu um eitt til tvö prósent. Heimild: www.fueleconomy.gov www.adalskodun.is og www.adal.is Aðalskoðun, faggiltur skoðunaraðili í 19 ár Reykjavík Grjóthálsi 10 Sími 590 6940 Reykjavík Skeifunni 5 Sími 590 6930 Hafnarfjörður Hjallahrauni 4 (við Helluhraun) Sími 590 6900 Kópavogur Skemmuvegi 6 (bleik gata) Sími 590 6935 Reykjanesbær Holtsgötu 52 (við Njarðarbraut) Sími 590 6970 HJÁ AÐALSKOÐUN ER BÍLLINN Í GÓÐUM HÖNDUM VERIÐ VELKOMIN Á GRJÓTHÁLSINN Þaulreyndir fagmenn taka vel á móti þér þegar þú lætur skoða bílinn þinn hjá Aðalskoðun. Nýjasta skoðunarstöðin okkar er að Grjóthálsi 10. Hlökkum til að sjá þig, það er alltaf heitt á könnunni. Opið kl. 8-17 virka daga – sími 590 6900
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.