Fréttablaðið - 26.09.2013, Side 2

Fréttablaðið - 26.09.2013, Side 2
26. september 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 STJÓRNSÝSLA „Það er greinilegt að þarna urðu mistök sem við hörmum og við ætlum að endur- skoða hvort við hefðum getað gert betur,“ segir Kári Gunnlaugs- son, yfirtollvörður eftirlitsdeildar Tollstjóra, um atvikið sem varð á Reykjavíkurflugvelli aðfaranótt þriðjudags þegar danska læðan Nuk strauk úr einkaflugvél eig- anda síns. Starfsmenn Tollstjóra funduðu í gær vegna málsins og tóku ákvörð- un um að fara í endurskoðun á verklagi við tollaeftirlit þegar dýr finnast í einkaflugvélum. Kári segir að tollafgreiðsla umræddrar einkaflugvélar hafi farið fram m e ð h e f ð - bundnum hætti. „ Þ egar tol l - verðir sáu dýrið var óskað eftir því að það yrði geymt í lokuðu búri og að hvorki það né úrgang- ur úr því færi frá borði. Okkur var því ekki kunnugt um að dýrið fengi að ganga frjálst um vélina.“ Þegar einkaflugvélar sem lenda á Reykjavíkurflugvelli hafa farið í gegnum skoðun Tollstjóra er eina eftirlitið með þeim og áhöfn þeirra fólgið í því að Isavia, sem fer með rekstur flugvallarins, gætir þess að óviðkomandi aðilar fari ekki inn á flugvallarsvæðið eða út á flug- brautir. Spurður hvort ekki sé ákveðin brotalöm fólgin í því að farþegar einkaflugvéla geti sleppt dýrum sínum lausum að lokinni toll- skoðun segir Kári að svo sé. „Við hins vegar getum ekki vaktað ein- staka vélar því við erum ekki með mannskap til þess. En við reynum að hafa gott eftirlit með þessu og erum í góðu samstarfi við Mat- vælastofnun. Hluti af þessari end- urskoðun á verkferlum okkar mun felast í því hvort við getum séð til þess að dýrin séu geymd í lokuðu rými á meðan þau eru hér á landi.“ Að sögn Kára er nokkuð um að dýr komi hingað til lands í fylgd eigenda í einkaflugvélum. Hann nefnir þekkt dæmi frá síðasta ári þegar tónlistarkonan Lady Gaga kom hingað til lands með hund- inn sinn og lenti á Reykjavíkur- flugvelli. „Það á sérstaklega við þegar aðilar eru að millilenda hér í lengri ferðum á milli landa sem hleypa dýrum óhindrað inn,“ segir Kári. Hann segir að mál danska katt- arins sé vissulega slæmt. „Málið byggir fyrst og fremst á mann- legum mistökum eiganda dýrsins sem taldi nauðsynlegt að opna rifu á hurð flugvélarinnar svo köttur- inn kafnaði ekki,“ segir Kári. haraldur@frettabladid.is Endurskoða verklag vegna kattarins Nuk Starfsmenn Tollstjóra funduðu í gær vegna hvarfs dönsku læðunnar Nuk úr einka- flugvél á Reykjavíkurflugvelli aðfaranótt þriðjudags. Yfirtollvörður segir embættið ætla að endurskoða verklag við tollaeftirlit þegar dýr finnast í einkaflugvélum. UMFANGSMIKIL LEIT Björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni að Nuk á miðviku- dag og sex búrum var komið fyrir í nágrenni Reykjavíkurflugvallar. MYND/VILHELM KÁRI GUNNLAUGSSON. REYKJAVÍK Orkuveita Reykjavíkur ætlar að greiða skuldir fyrirtækis- ins niður um 80,3 milljarða króna á næstu árum samkvæmt fjárhags- áætlun sem stjórn fyrirtækisins hefur samþykkt. Lögð er áhersla á áframhaldandi aðhald meðan stað- inn sé vörður um grunnþjónustu. Gert er ráð fyrir að gjaldskrár Orkuveitunnar fylgi verðlagi en þróun ytri þátta, svo sem geng- is, vaxta og álverðs, getur raskað þeim áformum og þung skulda- byrði í erlendum gjaldmiðlum gerir fyrirtækið viðkvæmara fyrir sveiflum þessara þátta. -ebg Lögð áhersla á aðhald: Orkuveitan greiðir skuldir MENNTAMÁL Félag skólastjórn- enda í Reykjavík segir stefnu grunnskóla borgarinnar að tryggja öryggi og velferð nemenda. Félagið sendi frá sér yfirlýsingu vegna fjölmiðlaumræðu síðustu daga. Þar segir að unnið sé eftir skýrum ferlum þegar upp koma erfið mál. Sé ekki hægt að leysa mál innan skólans séu kallaðir til sérfræðingar. Þá eru skólastjórn- endur og aðrir starfsmenn skóla sagðir bundnir trúnaði og geti því ekki tjáð sig um einstök mál. -ebg Skólar bundnir trúnaði: Sérfræðingar eru kallaðir til STJÓRNMÁL Svandís Svavarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi umhverfisráðherra, segir að áform Sigurðar Inga Jóhanns- sonar umhverfisráðherra um að afturkalla lög um náttúruvernd séu fordæmalaus og þar að auki svik við samkomulag sem gert var á síðasta kjörtímabili. Málið var afgreitt frá Alþingi stuttu fyrir kosningar í vor en gildistöku var frestað sam- kvæmt samkomulagi milli þáverandi stjórnar og stjórnarandstöðu. „Það að ráðherra skuli með þessu móti kippa löggjöfinni í heild úr sambandi held ég að sé fordæmalaust. Ráðherra hefði verið í lófa lagið að skoða það sem hann vil skoða betur en kannski hefur hann einfald- lega horn í síðu náttúru- verndar,“ segir Svandís. Frumvarpið var mjög umdeilt. Meðal þeirra sem mót- mæltu frumvarpinu var Ferðaklúbburinn 4x4. Sveinbjörn Halldórsson, formaður ferðaklúbbs- ins, fagnar ákvörðun ráðherra. „Hann [ráð- herra] sýnir með þessu mikla ábyrgð í starfi. Við báðum um það á sínum tíma að þetta yrði tekið af dagskrá og endur skoðað í heild,“ segir Sveinbjörn. - hks Fyrrverandi umhverfisráðherra sakar núverandi ráðherra um svik: Segir ákvörðun fordæmalausa SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR Ástráður, er þetta ekki orðið gott? Nei, orðið er ennþá laust. Ástráður Eysteinsson, forseti Hugvísindasviðs Háskólans, kynnti á þriðjudag leitina að fegurstu orðum íslenskunnar. SVEITARSTJÓRNARMÁL Gísli Marteinn Baldursson mun hætta afskiptum af pólitík og láta af störfum sem borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Þetta kom fram í tilkynningu frá Páli Magnússyni útvarps- stjóra RÚV í gær en Gísli mun á næstunni hafa umsjón með nýjum umræðuþætti í Sjónvarpinu sem verður á dagskrá fyrir hádegi á sunnudögum. Gísli Marteinn birti á vef sínum pistil um ákvörð- unina. „Það er heilmikið álag að vera í stjórnmálum. Ég hélt alltaf að það hlyti að vera auðveldara ef ég vissi fyrir hvað ég stæði og hefði trú á mínum hug- myndum,“ segir Gísli og bætir við að honum finnist leiðinlegt að standa í stöðugum illdeilum, ekki síst við félaga og vini sem honum þyki vænt um. Ekki er staðfest hvenær Gísli Marteinn hættir störfum hjá borginni en Júlíus Vífill Ingvarsson oddviti sjálfstæðismanna segir að ekki hafi verið ákveðið hvernig þeim störfum sem Gísli hefur sinnt verði deilt niður. Jórunn Frímannsdóttir er fyrsti varaborgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins en hefur samkvæmt heimildum Fréttablaðsins lítið tekið þátt í pólitísku starfi undanfarið. Næst á eftir Jórunni á lista er Hildur Sverrisdóttir, sem hefur starfað með Gísla Marteini í umhverfis- og skipulagsráði undanfarin ár. - ebg Nýr borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins mun hefja störf bráðlega: Gísli Marteinn hættir í pólitík HÆTTUR Unnið er að því að deila verkefnum Gísla Marteins milli borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SPURNING DAGSINS Málið byggir fyrst og fremst á mannlegum mistökum eiganda dýrsins sem taldi nauðsynlegt að opna rifu á hurð flugvélar- innar svo kötturinn kafnaði ekki. Kári Gunnlaugsson yfirtollvörður. MENNTAMÁL Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn var haldinn í fjórtánda sinn víða um heim í gær fyrir tilstuðlan Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Í tilefni dagsins buðu íslenskir kúabændur og Mjólkursamsalan öllum 70.000 leikskóla- og grunnskólabörnum landsins upp á mjólk í skólunum. Reiknað er með að hérlendis hafi alls sextán þúsund lítrar af mjólk verið drukknir þennan dag. Skólamjólkurdagurinn var kynntur í Hraunvallaskóla í Hafnarfirði í gærmorgun. Þar var ljóst að börnun- um leiddist ekki gjöfin góða, enda holl og bragðgóð. - vg Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn var haldinn í gær: Gáfu 70 þúsund börnum mjólk ÁNÆGÐ MEÐ GJÖFINA Krakkarnir í Hraunvallaskóla í Hafnarfirði voru augljóslega ánægðir með að fá mjólk að gjöf á skólamjólkurdeginum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR EFNAHAGSMÁL Skráð atvinnuleysi í ágúst var 4,4 prósent. Atvinnu- leysi hefur minnkað um 1,3 pró- sentustig frá sama mánuði í fyrra þegar það var 5,7 prósent. Þetta kemur fram í Vinnumarkaðs- rannsókn Hagstofu Íslands. Atvinnuleysi í mánuðinum var 4,6 prósent meðal karla miðað við 4,9 prósent í ágúst í fyrra. Á meðal kvenna var það 4,2 pró- sent miðað við 6,7 prósent í ágúst 2012. Í ágúst voru 188.300 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 180.000 starfandi og 8.300 án vinnu og í atvinnuleit. - hg 188.300 á vinnumarkaði: Minna atvinnu- leysi var í ágúst

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.